Page 1 of 1
Ómannúðlegar veiðar.
Posted: 08 Dec 2012 03:26
by dain
Nú spyr ég eins og bjáni, þrátt fyrir að ég þykist vita svarið en er ekki ólöglegt að veiða minka með hundum, þeas. að láta hundana veiða og drepa minkinn? Og má nota skammbyssur við slíkar veiðar?
Re: Ómannúðlegar veiðar.
Posted: 08 Dec 2012 08:41
by Pálmi
Það er löglegt að nota hunda við minkaveiðar og það má líka nota skammbyssur ef þær eru "rétt" skráðar.
Re: Ómannúðlegar veiðar.
Posted: 08 Dec 2012 08:43
by kra
Pálmi, var ekki í lögum að ekki mætti skjóta kvikindið nema "fríhendis" frá öxl
Asnalegt að leggja skammbyssuna upp við öxl..

Re: Ómannúðlegar veiðar.
Posted: 08 Dec 2012 10:53
by maggragg
kra wrote:Pálmi, var ekki í lögum að ekki mætti skjóta kvikindið nema "fríhendis" frá öxl
Asnalegt að leggja skammbyssuna upp við öxl..

Jú, þetta er víst rétt.
9. gr. Við veiðar má eingöngu nota skotvopn sem úr má skjóta fríhendis frá öxl með þeim undantekningum sem upp eru taldar í liðum 3, 4, 7 og 16 hér á eftir og nánar er kveðið á um í reglugerðum. Við fuglaveiðar er óheimilt að nota haglabyssu með hlaupvídd stærri en nr. 12.
Fyrir skammbyssunum liggur fyrir að UST þarf að gefa út undanþágu til að nota megi þær til þessara veiða.
Re: Ómannúðlegar veiðar.
Posted: 08 Dec 2012 12:28
by kra
Hingað til hefur maður notað þá aðferð sem dugar á minkinn, hverju nafni sem það heitir. Enda þessi grein í villidýralögunum fáranlega vitlaus
Re: Ómannúðlegar veiðar.
Posted: 08 Dec 2012 12:35
by maggragg
Enda nokkrar undanþágur til við minkaveiða, t.d. að nota hund sem má, og ljósgjafa ásamt fótbogum. Hinsvegar hefur verið lagt til í nýjum dýraverndunarlögum að herða enn frekar að leyfðum aðferðum til minkaveiða, t.d. með því að banna drekkingargildrur og fótboga. Það á þó eftir að koma í ljós en krafan er sterk og í takt við annað sem er að gerast í þessum málum hjá ráðherra.
Re: Ómannúðlegar veiðar.
Posted: 08 Dec 2012 13:31
by E.Har
Í fyrstalagi þá eru minkaveiðar með hund ekki ómannúðlegar.
taka venjulega mjög fljótt af og í mínum huga er það grunnatriði mannúðlegra veiða.
Í annan stað þá var minkur felldur út úr veillidýralögunum fyrir nokkrum árum og settur í flokk með músum og rottum og því ekki gerð krafa um að skjóta verði frá öxl.
Í svartbók sem er í vinnslu ( anstaðan við hvítbók) er mikið talað um aukna friðun á mink. Banna á sérstaklega hættulegar gildrur, ( hvað það þýðir veit ég ekki ) og hunda sem elta uppi bráð, en má nota benda. Þetta leggur auðvitað minkaveiðar niður.
Re: Ómannúðlegar veiðar.
Posted: 08 Dec 2012 17:47
by Morri
Sælir
Maggiragg segir:
""""""
Fyrir skammbyssunum liggur fyrir að UST þarf að gefa út undanþágu til að nota megi þær til þessara veiða.
"""""""""""""
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um skotvopn, skotfæri o.fl., nr. 787/1998.
b) Flokkur C: í 3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Leyfi fyrir skotvopnum sem sérstaklega eru ætluð til minkaveiða eða meindýraeyðingar (t.d. skammbyssur fyrir haglaskot) má aðeins veita að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar. Áskilið er að umsækjandi hafi haft aukin skotvopnaréttindi (B flokkur) í eitt ár. Slík leyfi vegna þeirra sem stunda minkaveiðar skal að jafnaði ekki veita til að eignast skotvopn heldur einungis til láns eða leigu. Lögreglustjóri skal senda slíkar umsóknir með umsögn sinni til ríkislögreglustjóra til ákvörðunar.
Hvergi er getið að UST þurfi að veita "undanþágu" enda orðið undanþága hvergi orðuð í þessari grein.
UST þarf hinsvegar að gefa umsögn um þessi mál, leyfisveitingin er hjá Lögreglustjóra/Ríkislögreglustjóra
Re: Ómannúðlegar veiðar.
Posted: 08 Dec 2012 18:10
by maggragg
Þetta er rétt hjá þér Ómar.
Ríkislögreglustjóri getur heimilað skammbyssuna gegn umsögn UST, og lögreglustjóra, en ég tel hinsvegar að UST vegi ansi sterkt og ef UST telur umsækjanda ekki hafa þörf fyrir skammbyssu til þessara starfa muni RLS líklega ekki veita það leyfi. Það var rangt hjá mér að UST veiti undanþáguna. Það er RLS að fenginni umsögn UST eins og þú bendir réttilega á.
Re: Ómannúðlegar veiðar.
Posted: 08 Dec 2012 18:19
by Aflabrestur
Sælir.
Ég fékk mína .410 skammbyssu nú bara skráða á D leyfið á sínum tíma man ekki hvort það var eh. kvöð á henni þá. En í dag er hún kominn á "safnleyfið" þannig að ég má ekki einusinni eiga skot í hana (heppinn að eiga aðra .410 í fullri stærð) raunar er hún safngripur útaf fyrir sig smíðuð úr 12ga H&R eihleypu af Hallgrími Marinósyni heitnum.