Page 1 of 1
Sót á hylkjum
Posted: 11 Dec 2012 15:54
by iceboy
Ég er með eina spurningu fyrir ykkur ágætu menn sem hafið meiri reynslu en ég í endurhleðslu.
Ég er með skot sem ég hlóð og notaði á hreindýrið, og gæs reyndar líka. grúppa vel og allt eins og það á að vera.
Svo hlóð ég önnur skot og þegar búið er að skjóta þeim þá eru hylkin svört af sóti.
Hvað veldur því? Það var einn sem benti mér á að þetta gæti verið afþví að hleðaslan sé of lítil, ég er samt svoltið ragur við að bæta bara í hylkið og sjá hvað gerist, sérstaklega afþví að ég er að byrja í þessu.
ég er að nota N-160
Önnur spurning, mér var bent á að nota hleðsluupplýsingar um kúlu með sömu þyngd, er það í lagi þó svo að ég sé með kúlu frá öðrum framleiðanda?
Hvar finn ég upplýsingar um fleiri kúlutegundir?
Ég er með Hornady bókina og VV bæklinginn.
Re: Sót á hylkjum
Posted: 11 Dec 2012 16:18
by maggragg
Sæll, hvaða hylki og kúlu ertu að nota?
Algengt er að hylki sóti sig sé þrýstingur ekki nægur til að hálsin þenjist út og læsist við hálsin en einnig geta verið aðrar skýringar eins og á hálsinn sé skemmdur. En þá myndi sótið sjást á öllum hylkjum. Eina leiðin til að kanna hvort að hleðslan sé of lítil er að prófa sig áfram í litlum þrepum. Þó þú hafir fleirri hleðslubækur, verðurðu alltaf að byrja frá grunni og vinna þig upp. Hleðslubækurnar eru jú alltaf aðeins til viðmiðunar þó maður sé undir max er maður samt ekki öruggur.
Ég hef áður en ég byrja að þróa nýja hleðslu byrjað að hlaða nokkur pör af skotum upp í MAX með 0,5 - 03 graina bili til að finna út hvenær ég fer að sjá þrystingsmerki. Þegar ég sé þrystingsmerki, þá bakka ég um eitt þrep, 0,3 grain og það er mín MAX hleðsla sem ég svo miða við. Hún getur verið önnur en í hleðslubók, enda lásar og hlaup mismunandi og því er ekki víst að max í bók sé MAX í bók sé MAX í manns eigin riffli. Hafa verður í huga hitastig þegar þetta er gert. Þetta er mín aðferð við að kanna þetta.
Það eru væntanlega fleirri með aðrar hugmyndir um hvað gæti orsakað sótið.
Re: Sót á hylkjum
Posted: 11 Dec 2012 16:22
by E.Har
Eru þetta ný hylki?
Ertu nærri maxinu skv hleðslutöflum?
Re: Sót á hylkjum
Posted: 11 Dec 2012 16:46
by iceboy
ég er með Norma og Lapua hylki og eru þau notuð, ég veit ekki hversu oft þau eru hlaðin.
En það er eitt sem mér var sagt úti á skotsvæði um daginn að gæti verið ástæðan fyrir þessu og magnús kemur aðeins inná eða ég held að það gæti verið.
Ég hef aldrei trimmað hylkin og veit ekki hvenar það var gert og ég heff grun um að þau séu orðin aðeins of löng.
Það er orðið aðeins stýft að loka rifflinum, sérstaklega tikkunni, mauserinn er betri.
Re: Sót á hylkjum
Posted: 11 Dec 2012 17:00
by maggragg
Gömul hylki geta verið orðin hörð, og ef þau eru orðin of löng þá geta komið upp vandræði, gæti útskýrt af hverju erfitt er að loka rifflinum. Áttu skífumál til að mæla lengdina á hylkjunum?
Re: Sót á hylkjum
Posted: 11 Dec 2012 17:20
by Benni
Er þetta cal 6,5x55?
Það er eina caliberið sem ég hef lent í þessu með og var það of lítill þrístingur hjá mér þó það væri yfir minstu hleðslu í bók.
Með að nota hleðslur fyrir aðrar kúlur þá er það alls ekki algilt. meira atriði er að vera með eins uppbyggða kúlu td. 120 grain hollow point markkúla er allt allt öðruvísi en td, Barnes solid 120 grain sem er bara hreinn kopar í gegn og því lengri og mikið harðari sem breitir hleðslum mikið.
Svo er annað því þú ert með 2 tegundir af hylkjum þá skaltu varast að sama púðurhleðsla getur haft hrikalega mis mikinn þrísting eftir hylkja tegundum.
Td eru Norma oftast mun þyngri en Lapua sem þýðir að Norma hefur minna rúmmál og sama hleðsla skilar meiri þrísting í þeim en Lapua hylkjum.
Tildæmis mældi ég eitt sinn 22 Hornet hylki og voru Remington hylkin rúmum 20 greinum léttari en Sako hylki sem er enginn smá munur á svo léttu hylki.
Re: Sót á hylkjum
Posted: 11 Dec 2012 17:28
by Gisminn
Sæll Benni snérir þú ekki þyngdini við ? Allavega kemur 100 graina noslerinn á pari ef ég er með 50 í Lapua en 49 í Norma.
Re: Sót á hylkjum
Posted: 11 Dec 2012 18:26
by iceboy
Já skífumálið er til og ætla ég að taka mál af hylkjunum á morgun.
ég vissi af þessu með mun á hylkjum og eru þau hvort meri fyrir sig, mismunandi kúla í þeim og mismunandi hleðsla.
Re: Sót á hylkjum
Posted: 11 Dec 2012 19:17
by Benni
Jú Þorsteinn takk fyrir að benda á þetta, sneri þessu við hehe breiti þessu(=
Re: Sót á hylkjum
Posted: 12 Dec 2012 10:41
by Stebbi Sniper
Sæll Árnmar
Ég hef lent í þessu þegar ég var að prófa hleðslur í Tikkuna mína. Ég var reyndar nokkuð yfir min hleðslu en það sást greinilega að sótið hætti þegar ég kom í meiri hleðslur. Ég fór samt aldrei yfir Max hleðslu, en hylkin mín voru líka farin að vera of löng þannig að þetta getur verið blanda af þessu tvennu.
Re: Sót á hylkjum
Posted: 12 Dec 2012 11:15
by E.Har
Skil ég þetta þannig að þú sért að flakka með sama hylkið milli Tikku og gamals Mauser?
Það geta verið og eru örugglega misstór skothúsin á þessum rifflum.
Tikkan sennilega aðeins þrengri en Mauser´, og jafnvel styttra í rillur líka.
Það ætti samt ekki að vera ástæða sótsinns en ég myndi mæla með að halda sömu hylkjum í sama rifflinum.
Re: Sót á hylkjum
Posted: 12 Dec 2012 12:10
by iceboy
Svosem ekki flakkað með þau á mili, en ég notaði hylki í tikkuna sem búið var að skjóta úr mausernum, það fylgdu 200 hylki með honum þegar ég keypti hann og mig vantaði hylki í tikkuna, en já það er munur á þar, tikkan er greinilega minni.
En á ég að verða mikið var við það þó ég noti hylki sem var skotið úr mausernum og færi t.d 50 stk sem verða bara notuð í tikuna hér eftir, það er að sega ef ég nota full sise diean á hylkin
Re: Sót á hylkjum
Posted: 13 Dec 2012 09:52
by E.Har
Neibb það sem gerist er að hylkin þenjast út og verða eins og sá riffill sem þú notar í laginu.
Það að hylkið sé orðið eins og chamberið veldur því að engin orka fer í að formabreyta hylkinu og því ætti það að vera aðeins nákvæmara.
Hylki sem hafa verið notuð í Mauerinn (Her rifflar oft aðeins rúmir) gætu verið stíf í Tikkuna.
Hylki sem hafa verið notuð í tikkuna eru pínu rúm í mauser.
Þannig að það er betra að halda hylkjunum fyrir hvern riffil sér.
Annað að þeim mun líka örugglega líka mismunandi hleðslur.
að er bæði mismunandi tvsit í þeim og mismunandi hlauplengd.
(Mausetinn sennilega hugsaður fyrir 150-170 gr kúlur á rólegu flugi meðan Tikkutvistið sennilega hugsað fyrir meiri hraða.
Eitt af því sem þú ert að gera með að klæðskerasauma hleðslur fyrir þinn riffil er að þegar þú hleypir af þá víbrar hlaupið. Til að fá mesta nákvæmni þá á hlaupið að vera nákvæmlega beint þegar kúlan fer úr því. Ef þú lætur tvær reglustrikur vibrá þá munar mikklu um hve langar þær eru. Þannig að þú ert að eltast við að ná hleðsu sem vibrar sem minnst. Og hraðin á kúlunni sé sá að hún yfirgefi hlaupið á réttum stað í víbringnum. Þessvegna er verið að bæta örlitlu við af púðri eða mnnka örlítið.
Síðan getur kúlusetning og primer líka haft örlítið að segja en allt til samans ræður þetta nákvæmninni. Menn tala oft um sweetspotts, einn á mikklum hraða annan með soldið minni hleðslu þá er þá í næsta slagi fyrir neðan ú víbringnum.
Fyrir utan að hleðsla sem er heit í einum riffli getur verið mild í öðrum og jafnvel hættuleg í þeim þriðja. Svo altaf byrja lágt og bæta við í rólegheitunum, og hinna þá hleðslu sem hólkurinn fer best með. Hún er ekki nauðsinlega heitastahleðslan sem þú þorir að skjóta. Oft einhverju fyrir neðan það
Annars er þetta bara svona start á æðislega skemtilegum pælingum, Heill frumskógur af tilraunum þangað til maður heldur að ekki sé hægt að gera betur og eins og Valur fyrir vestan segir riffillin orðin leiðinlegur skítur bara gat í gat og ekkert hægt að figta meira

Re: Sót á hylkjum
Posted: 13 Dec 2012 16:40
by johann
Ég lenti í þessu með tikku í 243 sem lagaðist við að auka hleðsluna. Ef þú ferð með hylki á milli riffla þarftu að fullsæsa þau, t.d. ganga ekki hylki skammlaust úr mínum 243 í frúarriffilinn, þó báðir séu Tikka T3 ef ég nota bara neck dæjuna.
Re: Sót á hylkjum
Posted: 13 Dec 2012 16:48
by iceboy
Takk fyrir þetta, ég heff grun um að það muni lagast við að hækka hleðsluna, allavega ætla ég að prófa það.
Ég er svosem ekki að fara með skotin á milli riffla að örðu leiti en að ég tók 50 hylki og færði yfir á tikkuna, en hinsvegar er ég bara með full sie dia en ekki neck dia og hef því bara fullsæsað hylkin.
Það skal tekið fram að akkurat þessi skot hef ég bara hlaðið einu sinni.
Ég ætla að hlaða aðeins í þetta eftir helgi og sjá hvað gerist