Page 1 of 1
Rjúpnatær
Posted: 23 Dec 2012 14:16
by Björninn
Sælir
Er að hamfletta rjúpuna, og krakkana langar voðalega til að eiga rjúpnalöpp. Er einhver leið að verka þetta sjálfur þannig að þær haldi fiðrinu, og úldni ekki?
Re: Rjúpnatær
Posted: 23 Dec 2012 15:30
by Veiðimeistarinn
Einfalt, þú þurrkar þær bara á þurrum stað, köldum fyrst og ferð svo með þær í meiri hita.
Aðal atriðið er að þel séu á þurrum stað, það er svo lítil fita í rjúpnafótum að þær þrána aldrei sem er mesta hættan með svona fætur og klær.
Það getur verið gott að setja þær í einhverskonar spelkur til að þær haldi þeirri lögun sem þú villt meðan verið er að þurrka þær, þær vilja annars herpast saman við þurrkinn.
Re: Rjúpnatær
Posted: 23 Dec 2012 16:00
by Björninn
Takk fyrir það Sigurður. Er búinn að strengja nokkrar tær við grillpinna

og setja í köldu geymsluna, og færi þær svo yfir í meiri hita. Veistu hvað þetta tekur ca langan tíma?
Re: Rjúpnatær
Posted: 23 Dec 2012 18:02
by Veiðimeistarinn
Þú sérð það á því hvenær þær eru orðnar harðar, þegar ekki hægt að beygja þær um liðina á kjúkunum ofan við klærnar.
Þá eru þær orðnar nógu þurrar, þetta tekur ekki mjög langan tíma, giska á svona viku til hálfan mánuð.
En þær þola illa að blotna þegar búið er að þurrka þær, þá getur rotnunin farið í gang aftur, þó hún verði aldrei jafn mikil og áður en þær eru þurrkaðar.