Page 1 of 1

Á helgri hátíð nú

Posted: 24 Dec 2012 15:14
by Veiðimeistarinn
Notendum þessa spjallsvæðis er margt til lista lagt.
Ég var að lesa fallegan jólasálm eftir einn af oss, Sigurð Rúnar Ragnarsson sem hér kallar sig Gunson.
Þessi fallegi jólasálmur er á blaðsíðu 39 í Morgunblaðinu í dag.
Ég gat ekki stillt mig um að taka skjáskot af ljóðinu og smygla því hérna inn.
Við mættum kannski stundum íhuga það með okkur sjálfum að það þíðir ekki að hugsa um það eitt, að veiða í dag og iðrast á morgun. Það þyrfti ekki nema eitt ,,voðaskot" og þá er það kannski um seinan.
Það er gott að hafa andlega fóðrið með veiðibráðinni, það fer alltaf vel saman.
Nafni, ég þakka þér kærlega fyrir þennan fallega og vel gerða jólasálm.