Page 1 of 1
100% snillingur
Posted: 10 Jan 2013 08:31
by T.K.
Hér er etv kominn einn skemmtilegasti veiðimaður sem sést hefur í lengri tíma. Hlífið okkur við fyrirlestri um lögmæti og öryggi. Þessi eldri herramaður, skemmtilega hress, veit hvað hann er að gera og þykir eðlilegt hinu megin á hnettinum....
http://www.youtube.com/watch?v=c5Tk07l_ ... ata_player
Re: 100% snillingur
Posted: 10 Jan 2013 09:48
by Aflabrestur
Sælir.
Tjahhh. Ég hef nú þótt nógu ruglaður að mæta hjólinu á skotsvæðið með rörið í tösku á bakinu og eflaust ekki margir sem hafa ekið frá Húsavík á Sauðárkrók á mótorhjóli með haglabyssu teipaða á stýrið.
Re: 100% snillingur
Posted: 10 Jan 2013 11:44
by T.K.
Ruglaður? Nei. Eðlilegur.
Re: 100% snillingur
Posted: 10 Jan 2013 11:45
by Veiðimeistarinn
Þórir þinn snillingur er nú hálfgerður amatör
http://www.youtube.com/watch?feature=en ... djgIPqfTH4
Þessi er hins vegar alvöru
Ég hef nú ekki skotið svona af krossara, en snjósleða

tófur og fl.
Það er nú svo langt síðan að kannski get ég farið að tala um það (fyrningareglan

)
Re: 100% snillingur
Posted: 10 Jan 2013 21:37
by Birgir stranda
Það er nú þannig þarna fyrir sunnan að mörg af þessum innfluttu kvikindum eru algerar plágur eins og t.d villisvín. það voru dæmi um það að menn flosnuðu upp af jörðum sínum vegna villisvína sem rifu í sig lömb á vorin. þannig að tilgangurinn helgar meðalið. svona eins og með minkinn hjá okkur.
Var í vinnu hjá bónda á Nýja Sjálandi sem var í vandræðum með villisvín og þetta er einmitt ein aðferðin sem við notuðum. keyrt um á fjórhjóli með lever action eða semi auto um hálsinn.
HAHA svona er þetta misjafnt milli landa.
Re: 100% snillingur
Posted: 17 Jan 2013 23:38
by Birgir stranda
Nú nú fyrst maður er farinn að tjá sig um þetta má ég til með að segja ykkur sögu sem gerðist fyrir nokkrum árum við þessa yðju. Þannig var að við vorum að vinna við smíða stórgriparétt og vorum orðnir uppiskroppa með vír og lykkjur. Vinnufélagi minn, Johnny fór á gamla Landcruisernum til byggða að ná í þetta, sem tók heilan dag.
Ég fór aftur á móti að leita af villisvínum á fjórhjólinu, Yamaha Big bear með Browning blr 243 um hálsinn. Við vorum búnir að búa í nokkra daga í willows smalakofanum og vorum búnir að sjá talsvert af svínum undanfrana daga en ekki haft tíma til að vera að elta þau. Ég sá mér leik á borði og ákvað að bæta úr því. Ég varð nú ekkert var við neitt svona í fyrstu nema kanínur og eitt svín á alltof löngu færi og var farin að halda að þetta væri einn af þessum dögum þegar ekki veiðist.
En veiðilukkan breyttist þegar ég kom á stað á bökkum Clarence árinnar sem heitir Palmer yards ( 42° 16´22 S 173°17´26 E á google earth) Þar sem ég er að keyra niður með ánni sé ég þrjú svín hlaupa milli mín og árinnar aðeins fyrir framan mig. Ég gaf í á eftir þeim og er fljótlega komin með þau í mjög gott færi til hliðar ca, 30-40 metra. Ég stoppaði hjólið og skaut tvö í sitt hvoru skotinu. Þá var þriðji grísinn komin út á 50-60 metra og farin að hverfa í gróðurinn. Ég tæmdi þessi tvö skot sem ég átti eftir í magasíninu á eftir honum en hitti auðvitað ekki. Ég botnaði hjólið á efir honum og dró hratt á hann en þá fór gróðurinn að þykkna, helvítis runnar sem heita sweet briar bush og eru þakktir þyrnum eins og eru á rósum og rífa mann í tætlur. Svínið var aðeins á undan mér en kom annað veifið í ljós þegar ég kom inn í lítil rjóður en hvarf svo inn á milli runnana. Svona gekk þetta í tvö eða þrjú rjóður og hann var alltaf til hliðar við mig þegar ég kom inn í rjóðrin. Ég var ekki viss um hvað ég ættlaði að gera. Var jafnvel hugsa um að reyna að stökkva á hann, sem var nú frekar fáranleg hugmynd með riffilinn um hálsinn og svona. Þegar ég kom inn í síðasta rjóðrið við hliðina á lítilli uppþornaðri tjörn þar sem flötin endaði og gróðurinn varð miklu þéttari, var hann beint fyrir framan hjólið, svona 2. metra fyrir framan. Ég gaf í botn og hann vöðlaðist undir hjólið, sem lyftist og ég fann hvernig hann rúllaði undir því. Öskrin í svíninu yfirgnæfðu hljóðin í mótornum og ég bjóst við að hann væri gjörsamlega búinn að vera, stöðvaði hjóli hoppaði af og ættlaði í makindum að stinga hann með þar til gerðum hníf. En þá stóð minn kall upp leit á mig með þessum kostulega kærileysissvip og skokkaði rólega í hvarf inn í kjarrið, ekki rispa á honum, hann stakk ekki við. Ég hafði engan tíma til þess að hlaða riffilinn en horfði í forundran á gaurinn hverfa inn í gróðurinn og var þar að auki að drepast í framhandleggjunum og andlitinu í marga daga eftir helvítis þyrnikjarrið sem hafði næstum rifið mig í ræmur. Var nú frekar ánægður með að enginn varð vitni af þessu þarna í restina þegar ég horfði á eftir honum inn í skóginn.
Svínin sem ég náði þarna voru nú frekar lítil, en í ekta stærð til átu. En sá sem slapp var stærri, minnsta kosti 70 kg. í sögunni sem þýðir sennilega eitthvað minna Í raunveruleikanum.
Nokkrum vikum síðar vorum við á ferðinni á sama stað í mjög heitu veðri og ákváðum að fá okkur sundsprett í ánni til þess að kæla okkur. Það var hylur þarna í ánni og klettur í honum miðjum sem stóð út úr landinu hinu meginn. Þarna voru engar mannaferðir þannig að við vorum kviknagtir og áin alveg mátulega köld. Johnny settist uppá klettinn eftir að hafa svamlað í nokkra hringi en ég var að duffla í hylnum þegar eitthvað ógeðslegt kvikindi réðst á hægri fótinn á mér. Ég syndi í land á ágætis tíma og Johnny spurði mig hvar ég hefði lært listsund þar sem ég hefði greinilega ekki verið að panikera. Ég sagði honum að það væri risaáll í hylnum og ég væri hættur í sundi þrátt fyrir hitan, en ég væri líka Íslendingur og þeir þola svo vel hita, eins og skáldið sagði. Hann sagði að það væri flott hjá mér en hann og fermingabróðurinn væru á kletti út í miðjum hyl og ófreskjan einhverstaðar á sveimi. Það þarf varla að taka það fram að hann synti baksund í land.
Ég var með nokkrar góðar rispur á fætinum eftir álinn þannig að því sé nú haldið til haga. Við fórum um kvöldið með vasaljós og veiðistöng á staðinn með innyfli úr kanínu í beitu. Við fengum nokkra ála en ekki þennan stóra sem var að minnsta kosti þrjár álnir.
Re: 100% snillingur
Posted: 18 Jan 2013 00:19
by TotiOla
Frábær saga og mikil öfund hér yfir þessari, vafalaust frábæru, upplifun.
Re: 100% snillingur
Posted: 18 Jan 2013 01:05
by Gisminn
Sæll Birgir það var gaman að lesa þínar veiðireynslur og upplífganir bara takk fyrir sögurnar.
Re: 100% snillingur
Posted: 18 Jan 2013 07:41
by E.Har