Ef það viðraði ekki til þess að fara á riffilbrautina í dag, til að skoða hleðslur, þá viðrar víst aldrei til þess.
Ég fór með 6 BR-inn til þess að skoða aðeins hvað hann væri að gera með mismunandi kúlum, og púðri.
Var með 68 berger, og N-135 bak við hana.
Einnig 87 grs V-max og 88 Berger, og bak við þær RE-15 púður.
Primer við allar hleðslur var Rem 7 1/2 Bench Rest.
Kúlusetning við allar hleðslur var þannig að kúla var rétt við rillur.
Ég var ekki sáttur þegar ég var búinn að skjóta einni grúppu af hverri kúlutegund.
Grúppur o,5 tommur og stærri. 68 Berger var að koma best út.
Riffillinn er með uppréttum Sako 75´lás sem er beddaður.
Hlaupið HV Krieger tight neck twist 1-10.
Ég fór heim og hlóð aftur sömu hleðslur, en setti kúlurnar stíft í rillur í þetta skiptið.
Í næsta skiptið fékk ég mun þéttari grúppur, og sérstaklega með 68 berger, en hinar kúlurnar ekki alveg jafn þétt, en samt ásættanlegt. Máske get ég þétt klasann með því að skella tvífætinum undir, og prófa að skjóta af bílhúddinu, þ.e.a.s. ef það hvessir eitthvað

Að minnsta kosti sýnir þetta glöggt hvað kúlusetning getur skipt miklu máli, og er það ástæða þessa þráðar.