Page 1 of 1

Hodgdon Varget og 6,5x55

Posted: 10 Jan 2013 20:39
by Sveinn
Sælir/sælar,

Hafa menn prófað Hodgdon Varget púðrið í 6,5x55 t.d. með 100 gr Nosler BT?

Sé á heimasíðu Hodgdon þessa hleðslu fyrir Sierra HP 100 gr:

42 gr Varget: 3177 fps, þrýstingur 45.800 CUP

Hámark fyrir nútíma 6,5x55 lása er um 50.000 CUP

Sama hleðsla (42 gr Varget) með Nosler 100 BT á Reloaders Nest síðunni gefur nákvæmni upp á 0,375 MOA / 100 yd hjá einum notenda en hraðinn er ekki gefinn upp.

Þetta er hratt brennandi púður en venjulega hafa menn hallað sér að hægbrennandi púðri fyrir 6,5x55, hefur mér skilist.

Væri gaman hressa upp á afann (hylkið tekið fram árið 1894) með extra 100-200 fps án þess að fórna nákvæmni :D

Einhver sem hefur prófað Varget?

Re: Hodgdon Varget og 6,5x55

Posted: 10 Jan 2013 20:42
by Gisminn
Ég fylgist spentur með þar sem Sakoinn minn er með 8 twist og mér hefur fundist að því hægar sem ég næ kúluni því nákvæmari verður hann.

Re: Hodgdon Varget og 6,5x55

Posted: 11 Jan 2013 09:05
by E.Har
Prófaði það og var ekkert þokkalega sáttur fyrir fjandi mörgum árum í mauser M-96 1908 árgerð af bolta. Svo fékk eg það ekki og endaði í Norma. Þarf að skoða hvort ég finn töflu. Þetta var á einhverjum púðurleysis týma. :cry: En það er sennilega djúpt á þetta.