Ég vill samt byrja á að taka fram að ég versla mest hér heima og hef fundið út að oft borgar sig ekki að standa í þessum innflutningi. Strákarnir í Hlað hafa t.d. oft verði með mjög samkeppnishæf verð og fína þjónustu.
Það sem ég hef nánast alltaf verið að kaupa að utan er eitthvað sem ég hef ekki getað fengið hér heima.
En hvað um það ég skal byrja á þeim vefverslunum sem hafa reynst mér vel eða félögum mínum.
www.libertyoptics.com
Hef verslað riffilsjónauka, sjónaukafestingar, handsjónauka og fjarlægðarmæli af þessum. Fínn karl sem hefur alltaf staðið sig vel. Hann var reyndar frekar tregur að senda mér ákveðna tegund af riffilsjónaukum sem fengust ekki hér (Vortex - núna er Hlað komið með umboðið), en eftir að ég hafði keypt af honum nokkra hluti - mýktist hann og sagði einfaldlega "ég sendi þér allt sem ég sel".
www.tikkaperformance.com
Hér hef ég keypt aukahluti fyrir Tikkuna mína. Virðast senda nánast ALLT út fyrir USA nema sjónauka. Mjög góð þjónusta en það getur tekið alveg 3 vikur+ að fá hluti frá þeim - virðast senda löngu leiðina

www.riflesonly.com
Ekki verslað hér sjálfur en kunningi minn keypti sér Atlas tvífót hjá þeim um daginn. Skv. honum var það fljót og góð þjónusta. Hafði sjálfur reynt að fá svona tvífót sendan til Íslands af mörgu vefverslunum en án árangurs. Prufaði ekki þessa en hann fann hana og það gekk vel. Mælir með henni.
www.hss.net.au
Selja aukahluti fyrir Tikku. Eru í Ástralíu og framleiða þá hluti sjálfir. Ég keypti vörurnar þeirra frá www.tikkaperformance.com en sami félagi minn og nefndur er hér að ofan keypti boltahandfang og shroud frá þeim og það tók 10 daga að koma til Íslands. Nokkuð gott frá Ástralíu finnst mér.