Page 1 of 1
Minkaveiðar í gildru
Posted: 29 Nov 2010 20:25
by maggragg
Væri gaman að heyra frá þeim sem stunda minkaveiðar í gildru hvernig hefur gengið, hvaða gildrur þeir eru að nota og hvað hefur verið að virka best hjá þeim. Væri áhugavert að sjá hversu margir eru að taka þátt í því að eyða minknum og hvernig þeir eru að stunda það.
Re: Minkaveiðar í gildru
Posted: 30 Apr 2011 23:42
by maggragg
Ég er allavega búin að ná tveimur í gildru á síðasta ári, byrjaði síðasta haust og setti upp nokkrar gildrur. Komu þessi tveir minkar í sömu gildruna. Vona að ég nái miklu meiru á þessu ári.
Re: Minkaveiðar í gildru
Posted: 27 May 2012 23:38
by E.Har
Ég er með 7 gildrur úti núna. Reikna með að bæta aðeins í þegar hvolparnir fara af stað. Veturinn var rólegur en um fengitíman fór allt af stað. Fengum t.d í flestar gildrurnar vikuna f. páska en rólegt síðan. Læðurnar noru hnakkabitnar. Gildrurnar sem ég nota eru annarsvegar sænskar, eða þannig. Heita ihjel eða einhvað slíkt. Heimsmíðaðir kassat, helmingurinn með neti í endan en helmingurinn opinn í gegn. Síðan er ég með glefsur í útfærslu frá Jóni P nema kassarnir um þær eru úr tré ekki steyptir. Þetta er svo staðsett á andaveiðisvæðunum mínum

Smelli myndum inn í vikunni.
E.Har
Re: Minkaveiðar í gildru
Posted: 31 May 2012 13:10
by E.Har
https://www.dropbox.com/home#!/lightbox/home/Public
https://www.dropbox.com/home#!/lightbox/home/Public
Prufa af mynd
Er ekki einhver sem getur fiffað þetta fyrir mig eða sagt mér hvað ég er að gera rangt!
Re: Minkaveiðar í gildru
Posted: 01 Jun 2012 21:32
by Padrone
Sæll
Þegar þú ætlar að setja inn mynd sem er hýst á netinu þá notar þú "Full Editor" valhnappinn í staðinn fyrir "Quick Reply"
Þar inni er takki sem stendur "IMG". Þú smellir á hann þegar þú ert með bendilinn þar sem myndin á að koma þá kemur texti (skipunin) sjálfkrafa. Þú þarft svo að afrita slóðina af myndinni með því að hægri smella á hana og gera "copy image location" (eða eitthvað í þá áttina) og þarft svo að líma (paste) á milli hornklofanna sem birtust í skipuninni.
[ i m g ] hér setur þú inn slóðina en það eiga ekki að vera nein bil í skipuninni [ / i m g ]
T.d. er þetta slóðin á seinasta linkinn sem þú settir inn (þú notaðir líklegat URL skipunina.
https://www.dropbox.com/home#!/lightbox/home/Public
(þessi slóð vísar á síðunu þar sem myndin er)
Þarna hefðir þú átt að setja þessa slóð
https://www.dropbox.com/static/images/login.jpg
(en þessi slóð vísar í myndina sjálfa)
Eg fæ þetta líklegast svona því ég er ekki með MS Dropbox, þarft líklegast að stilla myndina þar inni á public þannig að allir geti séð hana.
Ef þú ert að fara að setja inn mynd af tölvunni þinni, skoðaðu þá þennan þráð:
http://spjall.skyttur.is/leidbeiningar- ... ndir#p1657
Re: Minkaveiðar í gildru
Posted: 03 Jun 2012 22:27
by E.Har
ok myndir auðvitað allt allt of stórar 300 kb !
Redda þessu einhvertíma seinna en þetta eru ekki einusinni símamyndir!