Page 1 of 1
Baikal til sölu
Posted: 14 Jan 2013 19:42
by HISS
Þá er árlegi pöntunarlistinn fyrir Baikal kominn í gang.
Áætluð pöntun er Júlí/Ágúst.
Smoothbore Guns
Rifles and Combination Guns
Air Rifles
Áhugasamir vinsamlegast sendið fyrirspurnir á
hiss@hiss.is
http://imzcorp.com/en/company/open/weapon.html
Kv.
HISS.is
Re: Baikal til sölu
Posted: 14 Jan 2013 20:34
by Veiðimeistarinn
Hvernig vikur þessu við?
Ég fór inn á slóðina hiss.is og þar eru engar upplýsingar um hver stendur fyrir eða er ábyrgðamaður þesarar sölusíðu.
Ekkert nafn í fastri kveðju undir sem þó er orðinn ófrávíkanlegur vani hjá þeim sem eru að tjá sig hér og auglýsa eitthvað til sölu eða kaups!
Hér í þessari auglýsingu eru heldur eingar upplýsingar hver er að bjóða þessar vörur til sölu, aðrar en þær að boðið er upp á að senda fyrirspurn á hiss@hiss.is
Síðan þegar farið er inn á hiss.is eru eingar upplýsingar eins og ég sagði hér ofar, það fyrsta sem fyrir augun ber er hettuklæddur maður í camogalla með byssu í hönd, ekki mjög traustvekjandi.
Auk þess stendur mað áberandi rauðum stöfum á bleikum borða hér ofar ,,Auglýsandi skal setja fullt nafn með auglýsingu, annars áskilur vefstjóri sér rétt til að eyða auglýsingunni".
Ég skora á vefstjóra að eyða þegar þessari auglýsingu!
Re: Baikal til sölu
Posted: 14 Jan 2013 21:06
by baikal
Rauða spjaldið beint, og víti.
kv Baikal.
Re: Baikal til sölu
Posted: 15 Jan 2013 09:06
by Stebbi Sniper
20 sec rannsóknarvinna leiddi þetta í ljós.
Skráningarskírteini
hiss.is
Lén: hiss.is
Nafn rétthafa: Hiss ehf.
Heimilisfang: Gauksrima 23
Borg/Sveitarfélag: Selfoss
Póstnúmer: 800
Land: IS
Skráð: 20. ágúst 2008
Næsta endurnýjun: 20. ágúst 2013
Síðast breytt: 18. júlí 2012
Ef þú flettir Gauksrima 23 upp á já.is kemur þetta fólk upp.
Heimir Fredriksen Bates og Ingadóra Ragnarsdóttir
Re: Baikal til sölu
Posted: 15 Jan 2013 09:13
by Stebbi Sniper
Hvaða verð er annars á þessum byssum hingað komnar og hvernig er að fá í þetta varahluti?
Keppnis loftriffill
MP-573
Keppnis loftskammbyssa
MP-672
Re: Baikal til sölu
Posted: 15 Jan 2013 10:11
by Veiðimeistarinn
Sorrrrryyyy......
Ég á bara ekki að þurfa að standa í neinni rannsóknarvinnu vegna þeirra sem eru að auglýsa varning hér.
Það er ekki heldur traustvekjandi þegar menn sem eru að auglýsa sinn varning hér vilja ekki fara eftir reglum sem þeim eru settar!
Reglur sem eru skýrar og greinilegar í viðvörunarborðanum hér fyrir ofan.
Það á bara að vera sjálfsögð þjónusta við viðskiptavini
Það er út úr öllu korti að að stunda viðskipti við menn, með skotvopn af öllum hlutum, og það eina sem ég sé af þeim er mynd af vopnuðum hettuklæddum manni.
Síðast þegar ég sá svoleiðis mynd var það mynd úr eftirlitsmyndavél frá vopnuðu sjoppuráni í höfuðborg óttans.
Ekki mjög traustvekjandi að mínu viti

Re: Baikal til sölu
Posted: 15 Jan 2013 10:46
by Stebbi Sniper
Slakaðu nú aðeins á Siggi... auðvitað hlýtur fólkið að segja til nafns hér ef það ætlar að standa í því að selja byssur. Það er ekki þannig í siðmentuðu þjóðfélagi að þeir sem reika aðeins út af leið séu gerðir brottrækir með það sama, gefum fólkinu tækifæri á að bæta sig.
Reyndar hefði verið skynsamlegt af þeim að kaupa frekar auglýsingu af Magga hérna til þess að auglýsa sína starfsemi, eins og Sportvík, Vesturröst, Ísnes og þú sjálfur hafið gert.
Ef þau gera ekki bragarbót á þessu, þá er það einsýnt að þræðinum verði eytt, samkvæmt þeim reglum sem hér gilda, en kannski er Maggi nú bara að bíða eftir viðbrögðum frá þeim.
Það er líka ekki alveg öruggt að þau hafi komið hér inn síðan auglýsingin kom í gærkvöldi.
Re: Baikal til sölu
Posted: 15 Jan 2013 10:58
by Veiðimeistarinn
Ég er nú alveg slakur, þú hefur greinilega ekki heyrt í mér þegar ég æsi mig.......
Nú er málið ekki þannig vaxið að ég sé ekki að gefa þessu ,,hettufólki" eins og ég kalla það tækifæri, þetta er ekki í fyrsta skipti sem þessar auglýsingar birtast og ég held að ég hafi samviskulega gert athugasemdir við þær alltaf og það sem meira er, síðan hafa verið settar reglur hér á spjallborðinu, sem ekki er farið eftir.
Ég vona bara að fólk sem er að selja vopn fari annars eftir þeim reglum sem um það gilda.
Svona framkoma gefur því miður hugmyndir um annað

Re: Baikal til sölu
Posted: 15 Jan 2013 14:09
by maggragg
Sælir og takk fyrir ábendingarnar. Ég ætla að skoða hvernig þetta snýr með auglýsingar fyrirtækja og hvort sömu kröfur séu gerðar til þeirra, en þau hafa leyfi til sölu á byssum. Ef Hlað eða Vesturrösti myndi setja inn tilkynningu myndu fæstir gera athugasemdir þar sem allir þekkja þá Hjalla og Ingó og vita hverjir þeir eru og að auki bera fyrirtæki neytandaábyrgðir. Ég þekki þá Heimi og Sigga mjög vel sem eru með HISS og bendi þeim á þetta, en þeir eru líka notendur hér að ég best veit. En þetta verður skoðað eins og allt

Re: Baikal til sölu
Posted: 15 Jan 2013 14:40
by baikal
Sæll Magnús.
Hvað sem þú gerir, ekki gera ekki neitt .
Ég vil að sama regla gildi um alla, líka Hisssssara ,Hlaðara o.s.f.

Re: Baikal til sölu
Posted: 15 Jan 2013 15:57
by gkristjansson
Sammála, ef farið er að gera undantekningar frá reglum þá er aldrei að vita hvar það endar......
Re: Baikal til sölu
Posted: 15 Jan 2013 18:23
by Morri
Sælir
Væri ekki vit að hafa einhverskonar tilkynningahnapp ef menn eru óánægðir með þráð eða komment við þráð, líkt og er á facebook?? Report.
Um leið og einhver nýr kemur inn og er ekki með allar stillingar eins og þeir sem eru búnir að vera hér í marga mánuði þá snúast umræðurnar langt á eftir um stjórnun spjallborðsins og reglur.
Ekki ólíkt því sem gersit á hlað spjallinu sáluga þegar einhver nefnir eitthvað sem einhver gæti hugsanlega snúið upp í að viðkomandi hafi ekki farið að lögum eða framkvæmt eitthvað nákvæmlega eftir reglugerð. Svo snýst þráðurinn um það, langt útfyrir upphaflega efnið í þræðinum.
Bara svona létt innslag.
Re: Baikal til sölu
Posted: 15 Jan 2013 18:43
by Spíri
Nú kemur mér ekki við hvernig skyttur snúa sér í þessu tiltekna máli, en mér finnst frekar ósmekklegt hjá fyrirtæki að auglýsa á vef skotfélagsins þegar skotfélagið er á sama tíma að reyna að selja auglýsingar sér til fjáröflunar. En það skal tekið fram að ég er Skyttum þakklátur fyrir að halda úti þessum fróðlega og skemmtilega vef

Re: Baikal til sölu
Posted: 15 Jan 2013 20:50
by Stefán_Jökull
Morri wrote:Sælir
Væri ekki vit að hafa einhverskonar tilkynningahnapp ef menn eru óánægðir með þráð eða komment við þráð, líkt og er á facebook?? Report.
Við hliðina á "vitna í" hnappnum er upphrópunar merki. Ýttu á það til að senda tilkynningu um póst.
Bestu kveðjur....

Re: Baikal til sölu
Posted: 15 Jan 2013 22:37
by baikal
Góða kvöldið.
Ef menn lesa þræðina sem eru neðan við þetta spjall, þá sést að Sigurður er ekki að urra
á hissara í fyrsta skipti, þeir eru búnir að auglýsa oft hér.

Re: Baikal til sölu
Posted: 16 Jan 2013 00:04
by Morri
Stefán_Jökull wrote:Morri wrote:Sælir
Væri ekki vit að hafa einhverskonar tilkynningahnapp ef menn eru óánægðir með þráð eða komment við þráð, líkt og er á facebook?? Report.
Við hliðina á "vitna í" hnappnum er upphrópunar merki. Ýttu á það til að senda tilkynningu um póst.
Bestu kveðjur....

Já það er hnappur.... held að það ætti nú bara að duga