Page 1 of 1
Hlaupbremsa
Posted: 16 Jan 2013 22:03
by Sveinbjörn
Flestir sem hafa stundað skotæfingar í einhverri mynd kannast við hávaða og læti af hlaupbremsu.
Annað hvort við eigin not eða það sem er öllu óþægilegra þegar maður á næsta borði er með hlaupbremsu.
Þetta er sem sagt hávaði og læti þegar einhver annar er að nota þennan búnað.
Það sem ég er að velta fyrir mér snýr að veiðum og skotfimi á opnum svæðum. Hljóðbylgjur ferðast á misjafnan hátt og væri gaman að heyra frá ykkur hvaða áhrif þetta hefur í fjarlægð.
Skiptir þetta kannski ekki neinu máli? Eða er þetta betra eða verra gagnvart umhverfis/hljóð mengun?
Truflar hlaupbremsa sauðfé, menn og aðrar lifandi verur meira eða minna en hefðbundinn veiðirifill??
Fyrir nokkrum árum lá ég á greni ásamt veiðifélaga og var sá með 300Win Mag .Sá riffill var búinn hlaupbremsu. Í þetta skipti var svona um það bil 100 metrar á milli okkar. Þá upplifði ég hvellinn á annan hátt heldur en í skothúsi. Hvellurinn var þungur og þéttur en ekki óþægilegur eins og í skothúsi. Rétt að geta þess að það var rok og rigning af bestu gerð.
Re: Hlaupbremsa
Posted: 17 Jan 2013 17:42
by E.Har
Valur Rigter hefur smíðað lokaðar hlaupbremsur.
Þær kasta hávaðanum fram. Eru samt ekki eins og hljóðdeyfar heldur fer hávaðinn framm úr bremsunni en ekki aftur eða til hliðanna.
Flesta hlaupbremsur kasta hávaðanum aftur á bak og til hliðar þannig upplifum við hann verri í skothúsi eða við hliðskyttunnar. Rigtrinn kastar hávaðanum framm.
Annars erf þú hefur pláss þá er moderaror deyfor auðvitað fín bremsa en þar förum við að nálgast grátt svæði.
Re: Hlaupbremsa
Posted: 17 Jan 2013 22:31
by atlimann
Það er frekar hvimleitt að vera við hliðina á einhverjum sem er með "brake" á sinni byssu í skothúsi, væri ekki vitlaust ef að nokkrir básar væru þannig gerðir að skyttan situr nær glugga þannig að hlaupið stendur út úr skothúsi

Re: Hlaupbremsa
Posted: 18 Jan 2013 00:25
by TotiOla
atlimann wrote:Það er frekar hvimleitt að vera við hliðina á einhverjum sem er með "brake" á sinni byssu í skothúsi, væri ekki vitlaust ef að nokkrir básar væru þannig gerðir að skyttan situr nær glugga þannig að hlaupið stendur út úr skothúsi

Styð þetta. Góð hugmynd
Við vorum nú við hliðina á einum um daginn sem var með svo stutt hlaup að hann komst varla nálægt opinu með bremsuna, sem auðvitað leiddi til þess að manni leið eins og í þetta eina skipti sem maður prófaði svona electronic ab-flex belti. Kipptist til og herptist allur á 10 sek. fresti

Re: Hlaupbremsa
Posted: 18 Jan 2013 07:38
by E.Har
Man altaf þegar ég tók fyrsta leyfið fyrir leiðsögn á hreindyraveiðum.
Srefán Geir var við hliðina á mer með 300 og bremsu.
Maður skaut í sama takti og hann bara mitt á milli skotanna og svo sónaði í eyrun einhverja daga á eftir!

Re: Hlaupbremsa
Posted: 18 Jan 2013 07:56
by Sveinbjörn
Flestir kanast við þetta fyrirbæri úr skothúsum.
En hvernig er þetta undir berum himni og þá velti ég fyrir mér árhifum á umhverfi versus hefðbundinn hlaupenda
Re: Hlaupbremsa
Posted: 18 Jan 2013 11:48
by maggragg
Held að á lengri færum sé munur á hávaða ekki svo ýkja mikill. Það sem hlaupbremsan gerir er að kasta þrýstibylgjum til hliðar og aðeins aftur og því fylgir hávaðinn. Hann er mestur næst en þegar lengra dregur minnkar hann. Líklega heyrist aðeins meira til hliðar og aftur en án, en ég held að það muni ekki ýkja miklu samt. Það er aðalega þeir sem standa næst sem finna fyrir þessu.
Re: Hlaupbremsa
Posted: 18 Jan 2013 22:15
by Gísli Snæ
Er með hlaupbremsu og jú, ég kannast við að menn kveinki sér við að vera við hliðina á mér þegar ég er að skjóta.
Þess vegna væri ansi ljúft ef að maður gæti löglega notað hljóðdeyfi í staðinn.
Re: Hlaupbremsa
Posted: 20 Jan 2013 12:45
by Veiðimeistarinn
Ég hef mikla reynslu af að nota veiðiriffil með hlaupbremsu, hef átt svoleiðis græju í átta ár og notað til veiða á hreindýrum ref og fuglum.
Auðvitað er extra hávaði af bremsunni, sérstaklega aftur með rifflinum og til hliðar, ég get ekki séð að svona bremsuhvellur hafi neitt önnur áhrif á bráð en hefðbundinn hvellur.
Sennilega hefur bremsuhvellur minni áhrif á bráð ef eitthvað er vagna þess að hann leggur aftur með rifflinum og heyrist minna í átt að bráðinni.
En nota bene, öll bráð hræðist skothvelli nær undantegningalaust, jafnvel úr 22 lr.
Hin hliðin á peningnum er að sjálfsögðu sú að bremsuhvellirnir eru mun hættulegri fyrir heyrnina, en það skiptir kannski ekki höfuðmáli vegna þess að alltaf, undantekningalaust eiga menn að nota heyrnarhlífar eða tappa sem vernda heyrnina, þegar verið er að nota skotvopn af einhverju tagi og passa vel upp á að allir sem eru nálægt noti undantekningalaust heyrnvörn.
Það hvílir ákveðin ábyrgð á okkur sem erum að nota riffla með hlaupbremsu, vegna þess að fólk í nágrenni okkar áttar sig ekki alltf á hvaða áhrif hlaupbremsan hefur á nágrennið.
Í fjarlægð er bremsuhvellurinn ekkert hærri, en hann virkar sneggri og ekki eins langur og hefðbundinn hvellur og ekki svona eftirbergmál sem fylgir honum.
Re: Hlaupbremsa
Posted: 20 Jan 2013 16:30
by E.Har
Persónulega hálfleiðast mér hávaða söm brake.
Er soldið með Tóta héra í þessu.
Miða og sá vinnur sem stendur upp á undan
