Page 1 of 1

Bullet runout / skekkja í kúlusetningu?

Posted: 19 Jan 2013 11:28
by Maggi
Sælir,

Ég er að hlaða í 6.5x284, 120 nosler og 123/139Scenar með Redding standard dæjum. Eftir að hafa prófað mjög margar hleðslur í vönduðum riffli án þess að vera fyllilega sáttur við niðurstöðuna fór ég að leita skýringa í hleðsluferlinu.

Mældi með klukku 25 skot í morgun, scenar og Nosler, mælt á miðja kúlu:
139gr scenar skotin mín eru með bullet runout 0.20 - 0.30mm
123gr scenar um 0.20mm
120gr nosler 0.15-0.20mm

Scenar er ca 80mm heildarlengd og Noslerinn 79mm. Lapua hylki, hálsformuð í þriðja skipti.
Ég á eftir að mæla tóm hylki og reyna sjá hvort hylkin eða kúlusetningin er skökk.

Hvað er raunhæft að ætla ná lítilli skekkju með standard dæjum?

kv
Maggi

Re: Bullet runout / skekkja í kúlusetningu?

Posted: 19 Jan 2013 11:56
by 257wby
Sælll Maggi.
Einhverjar smá upplýsingar í þessari grein
http://blog.sinclairintl.com/2010/06/25 ... t-run-out/

Vona að þú hafir eitthvað gagn af þessu.

Kv.
Guðmann

Re: Bullet runout / skekkja í kúlusetningu?

Posted: 19 Jan 2013 13:28
by Stebbi Sniper
Sæll Magnús

Þetta eru mjög áhugaverðar pælingar hjá þér og ég hef nokkuð mikið spáð í þennan þátt. Mig langar að fá meiri upplýsingar hjá þér eins t.d. þessar.

1. Hvað kallar þú mjög vandaðan riffil, er þetta benchrest riffill, custom smíðaður veiðiriffill, SAKO eða Tikka veiðirifflar, Sauer, Tactical riffill, Sig Sauer, Jalonen, TRG o.s.frv.?
2. Hvernig ertu að skjóta þegar þú ert að prófa hleðslur, ertu að prófa af tvífæti með afturrest eða ertu með riffilinn í resti.
3. Hvaða hleðslur ertu að prófa og í hvað stórum skrefum (hvað er munurinn á milli hleðsla)?
4. Hvaða púður ertu að nota?
5. Á hvaða færi ertu að skjóta?
6. Hvað finndist þér ásættanlegt að vera að ná út úr þessum riffli?
7. Hver er niðurstaðan úr þessum tilraunum þínum?
8. Hvert er hleðsluferlið?

Það eru svo margar spurningar sem þarf að spyrja og svara áður en það er hægt að leita að niðurstöðu. Bullet runout er bara einn af mörgum þáttum sem hefur áhrif á það hvað þetta verður allt nákvæmt hjá þér.

Tangent Ogive kúlur á yfirleitt að vera auðveldara að fá til að skjóta eins vel og þær mögulega geta án þess að kúlusetja þær alveg fram í rílur. Tangent Ogive kúlur eru yfirleitt svona veiðikúlur og markkúlur sem ekki eru VLD.

Secant Ogive kúlur þarf yfirleitt að spá meira í kúlusetninguna og þess vegna myndi ég halda að þær væru mun viðkvæmari fyrir bullet runout en hinar. Secant Ogive kúlur eru VLD markkúlur sem eru svona oddmjóar fram. Ég myndi nú halda að Scenar kúlan flokkaðist sem Secant kúla án þess að ég sé viss um það.

Hér er ágætis lesning um þetta frá kúlu smið í ameríkuhreppi.

Re: Bullet runout / skekkja í kúlusetningu?

Posted: 19 Jan 2013 16:08
by Maggi
Sæll Stebbi,

Takk fyrir nákvæmt svar. Ég veit að nákvæmni er samspil mjög margra þátta eins og hleðslu, ytri aðstæðna og skyttunar sjáfrar.

Ástæðan fyrir þessum pælingum mínum er að ég hef séð riffilinn gera frábæra hluti með ákveðnum hleðslum sem svo virðast algjörlega fara út um gluggann. Eftir síðustu heimsókn á skotsvæðið var ég viss um að það væri kominn tími á að fara með massa í hlaupið í fyrsta skipti. Eftir að hann var skoðaður með hlaupsjá kom ekkert athugavert í ljós og enginin þörf á mössun. Þá var mér bent á að athuga hvort kúlurnar séu skakkar í hylkjunum.

1. Riffillinn er Jalonen, skotinn um 300 skotum.
2. Tvífótur með afturrest.
3. Búinn að prófa 123gr A-max með MRP og N560, 100gr Nosler með N560, 120 gr Nosler með N560 og MRP, 123 gr Scenar með MRP. Hef yfirleitt hlaðið með 0.5 gr skrefum upp að og yfir max.
4. MRP og N560
5. 100, 200, 300.
6. 0.5MOA
7. 0.5-1.0MOA
8. Tumbla-Neckforma-Mæla hylki-Prima-skammta púður og og set kúluna.

Þið sem mælið bullet runout, hvað eruð þið að sjá stórar skekkjur að staðaldri?
Kv
Maggi

Re: Bullet runout / skekkja í kúlusetningu?

Posted: 19 Jan 2013 17:55
by Kristmundur
Eg er ekki ánægður ef eg fæ meira en 0.003" í runout það er þumalputta regla að fyrir hver 0.001" í runout stækki grúppan um 1/10 úr tommu á 100 yardum, eg setti o hring á dæjan og þá lagaðist skekkjan töluvert.

Re: Bullet runout / skekkja í kúlusetningu?

Posted: 19 Jan 2013 18:33
by Maggi
Kristmundur, settirðu 0-Hring undir læsirónna á kúlusetjaranum eða formuanardæjanum?

kv
Maggi

Re: Bullet runout / skekkja í kúlusetningu?

Posted: 19 Jan 2013 23:38
by Stebbi Sniper
Ég myndi skoða að fá mér betri die-a, eða allavega að fá að prófa betri die-a. Hefur þú sett mælirinn á hálsinn á hylkinu til þess að sjá hvort run-out er á því eða í kúlusetninguni?

Sumir segja að þú eigir alltaf að full length size-a hylkin, aðrir eru ekki á sömu skoðun... þetta er eitthvað sem þú ættir kannski að skoða.

Ég myndi nota bestu fáanlegu die-ana í þínum sporum, athugaðu hvort þú þekkir ekki eitthvern sem á t.d. Redding Competition/Match, Type-S die-a eða jafnvel Wilson fyrir þetta hylki.

Einnig myndi ég halda að það væri betra að nota rest en tvífót til þess að prófa hleðslur. Annað sem mér dettur í hug, ekki skjóta of mörgum skotum í röð, leyfðu hlaupinu að kólna á milli þess sem þú ert að grúppa. Ég á Tikku í þessu cal og eftir svona 7 - 9 skot þá fór grúppan að opnast hratt hjá mér. Ég hef þó ekki gert neinar hávísindalegar tilraunir með þetta.

Einn vinur minn á svona Jalonen riffil í 6,5 x 284 og hann skaut minnstu grúppuna sem ég hef séð á hreindýra prófinu, allar 5 kúlurnar í klessu uppi vinstra meginn í 6-7. Ef hann hefði haft fyrir því að skrúfa til kíkirinn inn áður en hann skaut, þá er ég nokkuð viss um að þessi grúppa hefði skilað honum 50 stigum. Þetta var með 100 grs Nosler BT. Veit því miður ekki hvaða púður, hvelleta eða hylki.

Ég held að það sé ekki óraunhæft að halad sig innan við 0,5 MOA með þessum riffli ef þú gerir þitt. Gangi þér vel með þetta og skelltu endilega inn niðurstöðum úr þessu hjá þér þegar þú ferð að prófa betur.

Re: Bullet runout / skekkja í kúlusetningu?

Posted: 23 Jan 2013 07:06
by Kristmundur
Svo eg svari þessu nú loksins,eg er með O hring á báðum dieum undir læsingarrónni,það sem vert er að athuga líka er að ekki sé sót eða skítur í rásinni fyrir hylkið í haldaranum,ef það safnast upp óhreinindi þar verður þvingun á hylkinu þegar því er rennt upp í diean,best að skafa það út með bréfaklemmu,
annað sem eg geri er að eg þrengi ekki hálsin nema rúmlega kúlubreiddina.
Vona að þetta hjálpi eitthvað.