Page 1 of 1

Bjarndýra veiðar!

Posted: 19 Jan 2013 23:38
by Spíri
Jæja félagar ég hef lengi átt mér þann draum að fella bjarndýr, sennilega á ég aldrei eftir að fá að fella ísbjörn þó það sé æðsta óskin(nema maður kanski flitji á Krókinn :mrgreen: ). Getur einhver bent mér tengla hjá einhverjum sem bjóða uppá bjarndýra veiðar í kanada eða bandaríkjunum? Ætla að setja það á tíu ára planið að skjóta bangsa ;)

Re: Bjarndýra veiðar!

Posted: 20 Jan 2013 01:16
by Aflabrestur
Sælir.
Prufaðu að bjóða Tómasi Árdal á Króknum góðan daginn tomas@mikligardur.is eða 852-4411 Hann er búinn að fara þarna út og fella bangsa og gæti beint þér í rétta átt.
Annars værir þú velkominn á krókinn.

Re: Bjarndýra veiðar!

Posted: 20 Jan 2013 02:19
by Guðni Einars
Svartbjörn felldur með Sako Mauser .30-06.
Svartbjörn felldur með Sako Mauser .30-06.
IMG_0506.JPG (206.24 KiB) Viewed 1466 times
Ég fór með félaga mínum fyrir nokkrum árum til Nýfundnalands til svartbjarnaveiða. Við fengum hvor um sig tvo svartbirni, sá stærsti var um 450 pund. Veiðiþjónustan sem sá um ferð okkar heitir Tuckamore Lodge http://tuckamorelodge.com/ og er rétt hjá St. Anthony, nyrst í Nýfundnalandi. Það er ekki langt frá L'Anse aux Meadows þar sem Þorfinnur Karlsefni og Guðríður Þorbjarnardóttir bjuggu fyrst Evrópumanna í N-Ameríku og eignuðust Snorra Þorfinnsson. Ég skrifaði um þessa ferð í Skotvísblaðið. Við flugum í gegnum Halifax og þaðan til Deer Lake í Nýfundnalandi og vorum sóttir þangað.
Þú skalt endilega fara í svartbjörn, eigir þú þess nokkurn kost.

Re: Bjarndýra veiðar!

Posted: 20 Jan 2013 09:58
by gkristjansson
Ég hef verið þarna hjá þeim á Tuckamore Lodge og get mælt með þeim, gott fólk og góð aðstaða.

Er að fara aftur til þeirra núna í September þetta árið til að eltast við "Moose" og svartbjörn.

Re: Bjarndýra veiðar!

Posted: 20 Jan 2013 19:56
by Spíri
Þakka svörin félagar nú er bara að byrja að plana :)

Re: Bjarndýra veiðar!

Posted: 20 Jan 2013 20:29
by iceboy
Hérna er linkur á eina skemmtilega síðu sem er með veiðiferðir út um allan heim.
Það er þó allavega gaman að skoða myndirnar og láta sig dreyma.

http://mylla.no/

njótið