Page 1 of 1
Þrífa Skothylki
Posted: 21 Jan 2013 19:41
by atlimann
Sælir,
ég var að velta fyrir mér hvernig menn þrífa skothylki án þess að nota tumbler, eru ekki til einhverjir vökvar eða góð heimilisráð til að þrífa þetta svo þetta verði ekki eins og andskotinn

Re: Þrífa Skothylki
Posted: 21 Jan 2013 20:30
by Gisminn
Ég nota bara wd40 og spreyja í klút og nudda með klútinum og það virkar vel hjá mér en ég er ekki nema að skjóta ca 20-30 skotum á mánuði.
Re: Þrífa Skothylki
Posted: 21 Jan 2013 22:08
by Birgir stranda
Ég hef notað autosol massa þegar patrónurnar eru orðnar ljótar og tumblerinn ræður ekki við þær. Nota borvél og millistykki til að snúa þeim. Mjög fljótlegt en frekar sóðalegt.
Re: Þrífa Skothylki
Posted: 22 Jan 2013 08:59
by Fiskimann
Sælir félagar
Ég las e-r staðar að sumir þrífa hylkin ekki að innan öðruvísi en að bursta hálsin með koparbursta. Þurrka af þeim með olíu að utanverðu strax eftir notkun. Vilja meina að þannig sé minna viðnám og kúlan renni betur út. Virðist rökrétt en ég hef ekki fundið mikið um þetta. Hvernig eru menn annars að gera þetta.
Kv. Guðmundur Friðriksson
Re: Þrífa Skothylki
Posted: 22 Jan 2013 10:04
by Bc3
Re: Þrífa Skothylki
Posted: 23 Jan 2013 20:37
by atlimann
Birgir stranda wrote:Ég hef notað autosol massa þegar patrónurnar eru orðnar ljótar og tumblerinn ræður ekki við þær. Nota borvél og millistykki til að snúa þeim. Mjög fljótlegt en frekar sóðalegt.
já Mér datt í hug að nota autosol massa líka, en hvernig millistykki eru með?
áttu kannski mynd?
Re: Þrífa Skothylki
Posted: 24 Jan 2013 19:08
by Birgir stranda
Þetta eru nú ekki merkileg millistykki.
Ég nota reknagla, skrúfa naglan aðeins inn í plastið þannig að það sé smá átak að renna patrónunni uppá, klippi hausin af naglanum, þá er allt klárt og áður en maður getur sagt, það er fallegt í Árneshreppi er maður búinn með fyrstu patrónuna.
