Púður skammtarar?

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
heimirsh
Posts: 36
Joined: 30 May 2012 19:20

Púður skammtarar?

Unread post by heimirsh »

Halló

Hverju mæla menn með varðandi púðurskammtara?

Lyman, RCBS, Redding, LEE, Hornady? eða kannski rafmagnsdrifna græju?

Þetta er allt í kringum 25 kallin held ég, væri fróðlegt ef fólk deildi reynslu sinni af þessum græjum.

Ef maður stillir þetta í fyrstu, getur maður treyst því að þetta skammti rétt næstu 100 skammta eða svo?
Hvað hafa menn upplifað í þeim efnum?

kveðja

Heimir S Haraldsson
Heimir S Haraldsson
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Púður skammtarar?

Unread post by Gisminn »

Sæll Heimir ég hef átt 3 tegundir skammtara og enn hef ég ekki lent á skamtara sem ekki er með smá skekkju til eða frá segjum td 50 þá er skekkjan 49,7-50,3 á þeim flestum. Ellingsen er með Hornady skamtara og er ég að nota svoleiðis í dag og líkar vel en ég veit að það er hægt að fá í hann micro mæli og er hann sagður mun nákvæmari en sá sem er í skamtaranum orginal. En það sem mér líkar best við skamtarann er hve vel hann skamtar og klippir vel svo aðgerðin er hnökralaus og án allra leiðinlegra hikksta sem gefa oftast stæðstu skekkjuna en er ekki rafmagnsdrifna græjan á um 50 kall ?
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Púður skammtarar?

Unread post by Gísli Snæ »

Er sjálfur með gamlann RCBS sem er langt í frá nákvæmur. Nota hann til að grófskammta og nota síðan rafmagnstrickler og digital vog til að fá nákvæma hleðslu.

Ef þú vilt eingöngu nota skammtara þá myndi ég bara skoða Harrells í Hlað og þá ertu góður næstu áratugina.

Var með rafmagnsskammtara (Smartreloader) og hann var bara ekki að virka.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Púður skammtarar?

Unread post by konnari »

Ég á RCBS og átti Hornady í mörg ár, báðir mjög fínir en allir skeika þeir 0,5 +/- trikkið er að stilla skamtarann 0,5 undir og nota trinklerinn það sem uppá vantar upp á korn !
Kv. Ingvar Kristjánsson
User avatar
heimirsh
Posts: 36
Joined: 30 May 2012 19:20

Re: Púður skammtarar?

Unread post by heimirsh »

Sælir, takk fyrir svörin.

Jú rafmagnsdótið er á um 50 þús...

Ef þetta er ekki að skila nákvæmlega því sem ég vill fá í hylkið þá finnst mér ég alveg eins geta haldið áfram að vigta í hvert skot, sparast varla svo mikill tími á því að þurfa alltaf að tjékka og bæta við eftir skammtarann, eða jú kannski :)

Þarf að minsta kosti að prófa svona græju til að sannfærast um þetta.
Heimir S Haraldsson
Bc3
Posts: 156
Joined: 15 Jun 2012 16:15
Location: Grindavík

Re: Púður skammtarar?

Unread post by Bc3 »

Sæll það kemur líka eftir púðrinu. T.d 600$ neil jones skammtara er mjög náhvæmur uppy n135 en yfir það er púðrið orðið of gróft og sennilega líka með þessa frá harrels, annars nota eg bara gamlan rcbs og trickla restina sem vantar uppá, hef líka prufað rcbs rafmagns græjuna og hún er mjög náhvæm
Kv Alfreð F. Bjōrnsson
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Púður skammtarar?

Unread post by konnari »

Þú ert miklu fljótari að nota skammtarann og trickla restina sem vantar uppá heldur en að gera þetta allt með "höndunum" !!
Kv. Ingvar Kristjánsson
Post Reply