7mm rem mag.

Allt sem viðkemur byssum
Robertomarsson
Posts: 1
Joined: 10 Nov 2013 14:14
Fullt nafn: Róbert Ómarsson

Re: 7mm rem mag.

Unread post by Robertomarsson »

Ég fór úr 22 LR í 30-06 springfield og ég elska höggið sem kemur frá honum. þessi of mikli recoil þvættingur í ykkur segir bara svolítið hvernig menn þið eruð ekkert illa meint :lol: En að mínu mati þá skiptir það engu máli. Bara skemmtilegt að fá aðeins að finna fyrir því hvað er að gerast þegar maður tekur í gikkinn :shock:

.22 LR (40 at 1165) 4.0 0.2 n/a
30-06 Spfd. (180 at 2700) 8.0 20.3 12.8
7mm Rem. Mag. (160 at 2950) 9.0 20.3 12.0
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: 7mm rem mag.

Unread post by TotiOla »

Robertomarsson wrote:Ég fór úr 22 LR í 30-06 springfield og ég elska höggið sem kemur frá honum. þessi of mikli recoil þvættingur í ykkur segir bara svolítið hvernig menn þið eruð ekkert illa meint :lol: En að mínu mati þá skiptir það engu máli. Bara skemmtilegt að fá aðeins að finna fyrir því hvað er að gerast þegar maður tekur í gikkinn
:lol: Þetta hljómar alveg eins og mótorhjólamennirnir sem halda að þeir séu mikið meiri menn af því að þeir eiga stærra hjól sem framleiðir meiri læti. Skömmin verður bara þeim mun meiri þegar vespurnar taka fram úr þeim ;) Ekkert illa meint.
Mbk.
Þórarinn Ólason
Hjörtur S
Posts: 56
Joined: 24 May 2012 13:41
Location: Reykjavík

Re: 7mm rem mag.

Unread post by Hjörtur S »

Það sjálfsagt eitthvað til í þessu hjá þér Gylfi um nákvæmni 6,5*47.
Ég hef sjálfur verið að nota 260rem og þegar ég næ 5 skota grúppu niður í 43mm á 400m færi þá held ég að ég fari ekki að skipta úr 260rem yfir í 6,5*47. Hraðann hef ég ekki mælt en við getum verið sammála um að 6,5mm sé góð stærð enda mikill fjöldi af kúlum til að velja úr.
Með kveðju
Hjörtur S
Hjortur@internet.is
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: 7mm rem mag.

Unread post by Gísli Snæ »

260 Rem er bara best Hjörtur :) Og ekki versnar minn við síðustu breytingar.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
257wby
Posts: 193
Joined: 21 Sep 2011 07:39
Fullt nafn: Guðmann Jónasson
Location: Blönduós

Re: 7mm rem mag.

Unread post by 257wby »

Þannig að niðurstaðan verður þá 6.5 Creedmore :D

kv.
Guðmann
Kv.
Guðmann Jónasson
kronos@simnet.is

Helstu verkfæri
Antonio Zoli Kronos 12 Ga u/y
Beretta A-300 12Ga semi auto
Otterup M70 breyttur á flesta kanta.
Mossberg 352 semi auto 22lr.
Post Reply