
Leitaði að hleðslum fyrir Nosler 120 gr BTip, ef hún fannst ekki fyrir hylkið þá tók ég 123 gr Lapua Scenar, sem er líka algeng og hefur nokkuð svipaðan feril og 120 gr BTip.
Ekki nákvæmustu hleðslurnar þarna heldur þær hraðfleygustu. Reyndi líka að taka hleðslur með púðri sem fæst hérna á klakanum (þegar það fæst

3300-3500 fps: 6.5 WSM, 6.5 Rem Mag, 6.5x65 RWS, 264 WinMag, 6.5-06.
3100-3200 fps: 6.5-284, 6.5x55 AI.
3000-3100 fps: 6.5 Creedmoor, 260 Rem, 6.5x55.
Minna en 3000 fps: 6.5x47 L
Það vantar þó upplýsingar um hlauplengd í 6.5x65 RWS mælingunni en þyrfti að vera a.m.k. 29“ til að hafa áhrif.
Ef menn hafa mælt hraðfleygari hleðslur í sínum 6.5-hylkjum fyrir þessa kúlu (120 gr) væri gaman að fá að vita um þær og þá hlauplengd. Gerði þetta mest til skoða hvort borgi sig að reama út gamla skandinavann (6.5x55) og þá í hvað. Þar kemur fleira til en hraði, t.d. nákvæmni, hlaupending, bakslag, aðgengi að hylkjum og upplýsingar um hleðslur. Val á hylki er líka mikil sérviska og af-því-bara…