Þetta vill gleymast

Allt sem viðkemur byssum
Jónas
Posts: 8
Joined: 27 Dec 2012 11:09
Location: Reykjavík
Contact:

Þetta vill gleymast

Unread post by Jónas »

Allir þurfa að geyma byssur þannig að óviðkomandi komist ekki í þær sbr. 33. gr. reglugerðar 787/1998:

"Eigendur eða umráðahafar skotvopna og skotfæra skulu ábyrgjast vörslur þeirra og sjá svo um, að óviðkomandi nái ekki til þeirra. Í því skyni skal húsnæði sem geymir skotvopn og skotfæri ávallt læst ef íbúar eru fjarverandi. Við lengri fjarveru skal auk þess sem að framan greinir gera skotvopn óvirkt t.d. með því að fjarlægja af því nauðsynlega hluta aðra en láshús.

Þegar skotvopn og skotfæri eru ekki í notkun skulu skotvopn og skotfæri geymd í aðskildum, læstum hirslum."


Að sjálfsögðu getur lögregla haldlagt byssur hjá brotamönnum. Þær heimildir liggja fyrir í gildandi reglugerð og lögum.

Reglugerð 787/1998: http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/We ... 2/787-1998

Vopnalög 16/1998: http://www.althingi.is/lagas/142/1998016.html


kveðja

Jónas Hafsteinsson
Jónas Hafsteinsson
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Þetta vill gleymast

Unread post by Gisminn »

Góð ábending
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Jón Pálmason
Posts: 177
Joined: 16 Aug 2010 21:54
Fullt nafn: Jón Pálmason
Location: Sauðárkróki

Re: Þetta vill gleymast

Unread post by Jón Pálmason »

Sælir/ar.
Jú, þörf ábending hjá Jónasi eins og Steini bendir á.
Sé ekki betur en að Elvar Árni Lund þurfi að kynna sér þetta betur miðað við það sem haft er eftir honum í fréttatilkynningu sem vísað er í á Hlaðvefnum.
Vil einnig mótmæla því að vinnuhópurinn sem vitnað er í , hafi unnið jafn gott og óumdeilt starf og fullyrt er í fréttatilkynningunni. Um það vitnar allur sá fjöldi af athugasemdum sem alþingi bárust varðandi frumvarpið þegar það var lagt fram.
Held að Skotvís eitt félaga hafi verið ánægt ;) með þá vinnu.
Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Þetta vill gleymast

Unread post by maggragg »

Nauðsynleg árétting.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
TriCoreBallistics
Posts: 9
Joined: 15 Jun 2012 18:29

Re: Þetta vill gleymast

Unread post by TriCoreBallistics »

Það er að auki hægt að gera skotvopn óvirkt, t.d. að taka bolta úr riffli og geyma hann annarsstaðar. Þá er a.m.k. ekki hægt að misnota riffilinn komist óvitar eða einhver í annarlegu ástandi í riffilinn.

En..... þetta ku vera mikið rætt þessa dagana. Þrátt fyrir að það sé hið besta mál að árétta ábyrga meðferð skotvopna sem oftast, þá ætti alls ekki að gleyma því að Geðheilbrigðiskerfið brást og eða virkaði ekki eins og mörgum finnst að það ætti að virka, (varðandi atburðinn í Árbænum).
Kveðja.Geir G.
Tri-Core-Ballistics LLC
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Þetta vill gleymast

Unread post by Gisminn »

Jú takk Jón altaf gaman að taka snúningin á meðan vinskapur og virðing er í góðu og ég er í heildina ánægður með lögin enda í skotvís ;)
En svona til gamans fyrir vin minn :twisted:
http://www.youtube.com/watch?v=XIX0ZDqDljA
Last edited by Gisminn on 07 Dec 2013 01:15, edited 1 time in total.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Jón Pálmason
Posts: 177
Joined: 16 Aug 2010 21:54
Fullt nafn: Jón Pálmason
Location: Sauðárkróki

Re: Þetta vill gleymast

Unread post by Jón Pálmason »

Sæll félagi, Þorsteinn.
Spjöllum saman síðar á öðrum vettvangi. :P
Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði
Post Reply