Ok hér eru komnir nokkrir pungtar. Dóri vill skjóta seint og það er allt í lagi mín vegna.
Ég þekki líka menn sem vilja vera snemma, nota sumarfrí og vera úti þegar dagur er lengstur og heiðar þurrastar. Ekkert að því heldur.
Sveinbjörn ræddi um að haustveiði á hornum, þá í lok fengitíma tæki ekki frá íslenskum veiðimönnum, þar sem við vildum ekki hrútabragðskjöt! Auðvitað tekur þetta frá okkur líka. Kvótinn stækkar ekkert þó einhver dýr séu skotin seinna á haustinu. Það er ekki svo að tarfar hryji niður dauðir hvort eð er í lok veiðitíma!
Sveinbjörn er að líka tala um veiitengda ferðamennsku. Þar lyggur nefnilega hundurinn grafinn. Það var ekkert rætt við þá sem koma að veiðitengdri ferðamennsku. Að fella eitt dýr á Íslandi kostar erlendan túrista svipað og fella 4-5 í Afríku

Af hverju var ekkert rætt við þá sem eru í veiðitengdri ferðamennsku á Íslandi? Af hverju er búnaðarsambönd að velja veiðitíma! Er þetta ekki arfur frá gamalli og vondri tíð, þegar venjulegir veiðimenn fengu ekki að veiða dýr, heldur þurftu að þvælast milli, hreppstjóra og hreindýraráðs til að fá að veiða, allskonar klíkuskapur í gangi!
Með veiðistjórn heim í hérað, þá er tillaga þess eðlis kominn fram á þingi að undirlagi top náunga. þar er lagt fram að hreindýraráð ('obreytt) fari með yfirstjór þessara mála! Persónulega tel ég verndarteymi Umhverfisstofnunar skelfilegt. En nýja tillagan gerir ráð fyrir að upp verði tekið gamla kerfið! Hreindýraráð er óbreitt. Einn fulltrúi skipaður af ráðherra, einn af sveitarféölgum og 2 af búnaðarsamböndum! 4 samtals! Engin fulltrúi leiðsögumanna! Engin fulltrúi veiðimanna!
Er ekki þá bara næstaskref að úthluta dýrum á bæini eða hreppana! 1 dýr á eldavél, sv geta veiðimenn mætt í röð hjá starfsmanninum og vælt um að fá að veiða restina!
1 það er ekkert að því að færa stjórnina heim í hérað. En það verður að breyta samsetningu hreindýraráðs. Skaust, Skoatvís, Leiðsögumenn verða að eiga þar fulltrúa, allavega frekar en búnaðarsambönd! Einhver frá ráðuneiti til að tryggja fagmennsku.
2 Haustveiði eftir fengitíma er eitt en að fresta veiðitíma er annað. þarna er verið að taka af þeim sem eru með veiðitengda ferðaþjónustu möguleika á kúnnum. Ef menn eru núna allt í einu að hafa áhyggjur af kálfum, má þa ekki bara veiða þá til 15 ágúst!
Hvorutveggja breyting á veiðitíma, og breyting á stjórnun hreindýraveiða er einhvað sem hefði átt að ræða. Einhvað sem er eðlilegt að fjalla um, bæði kosti og galla. Af hverju hvorugt málið var kynt fyrir leiðsögumönnum eða veiðimönnum, finst mér næg ástæða til að stoppa þau. Ég vil ekki svona vinnubrögð. það er eitt að einhver þingmaður leggi til illahugsaða breytingu á stjórnun, en öllu verra að Verndarsvið Umhverfisstofnunar og Hreindýraráð leggi til við ráðherra í skjóli myrkurs breytingar án nokkurs samráðs. Það segir mér að hvorutveggja er óhæft!
Ég mun beita mér til að stoppa þetta. Einfaldlega vegna þess að mér finnst vanhugsað hvernig menn ætla að standa að stjórnun heima í héraði og einnig að mér finnst engin fagleg umræða hafa farið fram um veiðitímabreytinguna! Af hverju, til hvers, fyrir hvern, hversvegna eru spurningar sem ég vil fá svör við.
Með öðruvísi samsettu hreindýraráði, getur vel verið að ég fylgi þessu. Eftir faglega umræðu, getur vel verið að hægt sé að selja mér breyttan veiðitíma. En eins og þetta er í dag, þá beiti ég mér! Ég vil ekki sjá búnaðarsambönd velja hvar á að veiða dýr, ég vil ekki henda veiðimönnum út af veiðisvæðum til að hliðra til fyrir annarskonar ferðamennsku!