Lee classic loader 222/223

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
krossdal
Posts: 51
Joined: 19 Mar 2012 11:40
Fullt nafn: Kristján Krossdal
Location: Egilsstaðir
Contact:

Lee classic loader 222/223

Unread post by krossdal »

Sælir
Er nokkuð sem mælir á móti því að nota Lee classic loader 223 fyrir 222 ef maður styttir dæjann í rennibekk?

Image

Mbk,
Kristján Krossdal
Kristján Krossdal
Árskógum 5
700 Egilsstaðir
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Lee classic loader 222/223

Unread post by E.Har »

Mig mynnir að 223 sé breyðara, held allavega að það gangi ekki.
222 mag er hinsvegar mjög líkt!
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
Bc3
Posts: 156
Joined: 15 Jun 2012 16:15
Location: Grindavík

Re: Lee classic loader 222/223

Unread post by Bc3 »

Ef þú skoðar blueprint af báðum hylkjum þá sérðu að þau eru ekki eins
Kv Alfreð F. Bjōrnsson
User avatar
krossdal
Posts: 51
Joined: 19 Mar 2012 11:40
Fullt nafn: Kristján Krossdal
Location: Egilsstaðir
Contact:

Re: Lee classic loader 222/223

Unread post by krossdal »

Ég sé og veit að þau eru ekki alveg eins en ég sé hinsvegar að munurinn er mjög lítill, aðallega lengdarmunur. Lee classic loader er bara neck die eftir því sem ég kemst næst og því ætti ekki að þrengja mikið að boddíinu. Axlirnar á 222 eru .357 í þvermál en .354 á 223 hylkinu. Er það ekki eini staðurinn þar sem allt gæti setið fast og orðið til vandræða eða er bara algjör vitleysa að vera að spá í þessu? :D

222
Image
223
Image

Mbk,
Kristján Krossdal
Kristján Krossdal
Árskógum 5
700 Egilsstaðir
Sveinbjörn V
Posts: 109
Joined: 13 Dec 2012 20:55

Re: Lee classic loader 222/223

Unread post by Sveinbjörn V »

Verður þetta ekki leiðinlega stíft ? Þú kemst bara að því með að prófa :)
Sveinbjörn V. Jóhannsson
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Lee classic loader 222/223

Unread post by Aflabrestur »

sælir.
þetta er eh. sem ég mundi ekki grauta í af fenginni reynslu. það þarf ekki meira en rangt stilltan die til allt sitji fast á verstu stundu.
Ég hef séð skot sitja fast í miðju skotprófi og það svo rækjilega að það stóð allt fast þar til tekin var sjensin á því að útdragarinn héldi og slegið á handfangið með spítukkubb þá losnaði draslið, ástæðan hylkið var ekki almennilega "siseað" alla leið. Augljóslega féll próftakinn á prófinu.
Findu þér frekar réttu græjurnar þetta er til út um allt kosta klink á ebay ef þú finnur þetta ekki hér heima, það er svo einfallt í þessum málum ef þú ert ekki 100% viss sleftu því.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
User avatar
Stebbi Sniper
Posts: 492
Joined: 09 Jun 2012 00:58
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Lee classic loader 222/223

Unread post by Stebbi Sniper »

Sammála Jóni hér... þetta er eitthvað sem ég myndi ekki grauta í! Það væri dæmalaust vitlaust að sprengja lásin á svona tilrauna starfsemi. Það er mikið betra að redda sér bara die-a sem passar.
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
User avatar
krossdal
Posts: 51
Joined: 19 Mar 2012 11:40
Fullt nafn: Kristján Krossdal
Location: Egilsstaðir
Contact:

Re: Lee classic loader 222/223

Unread post by krossdal »

Gott mál, takk fyrir svörin! Held að ég fari að ykkar ráðum í þetta skiptið! :)
Kristján Krossdal
Árskógum 5
700 Egilsstaðir
Post Reply