Myndband

Allt sem viðkemur hreindýrum
User avatar
veiðifrúin
Posts: 17
Joined: 30 Oct 2012 20:15

Myndband

Unread post by veiðifrúin »

Vitið þið hvar hægt er að fá Augu hreindýrsins eftir Ásgeir Hvítaskáld keypt ?
Kveðja
María B Gunnarsdóttir
Gunson
Posts: 36
Joined: 03 Jul 2012 09:05

Re: Myndband

Unread post by Gunson »

Diskinn er hægt að fá hjá www.hvitaskald.is eða panta í síma 6619298. Mjög áhugaverð mynd um hreindýrin og aðstæður við veiðar.Kv. Gunson
Með kærri kveðju
Sigurður Rúnar Ragnarsson
Neskaupstað
User avatar
veiðifrúin
Posts: 17
Joined: 30 Oct 2012 20:15

Re: Myndband

Unread post by veiðifrúin »

Takk fyrir
Kveðja
María B Gunnarsdóttir
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Myndband

Unread post by karlguðna »

var að fá myndina í hús ,,,, virkilega gaman að þesumm disk, svolítið öðruvísi en það er bara betra ...
hvaða cal. notaði skáldið ?? ætla að skoða aftur ,,, :P :P
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Myndband

Unread post by Veiðimeistarinn »

,,Rassi" er cal. 243 8-)

Mér fannst þetta mjög góð heimildamynd, sem gefur raunsanna mynd af hreindýrum og hreindýraveiðum hér á Asturlandi í stuttu máli 8-)
Virkilega gott framtak hjá Ásgeiri Hvítaskáldi og Sólveigu Stefánsdóttir :D
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Myndband

Unread post by karlguðna »

Já virkilega gott framtak ,, saknaði nú reyndar að sjá ekki til veiðimeistaranns :lol: það virðist ekki vera hægt að draga fram myndavél á austurlandi án þess að hann sé festur á filmu ,,, enda gott myndefni :mrgreen: en myndin var frábær og ég á eftir að skoða hana nokkrum sinnum enn,, 243 "RASSI" hahaha er þetta ekki bara góð hefð að menn gefi rifflunum og kannski högglurunum nafn ??? það er allavegana góð og skemmtileg hefð í jeppabransanum ??? ég held ég láti mína tikku heita "LÚLLA" og það er" hún" L'ULLA :lol: :lol:
og ég segi bara takk fyrir mig Solla og Hvítaskáld
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
User avatar
Stebbi Sniper
Posts: 492
Joined: 09 Jun 2012 00:58
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Myndband

Unread post by Stebbi Sniper »

Ég pantaði mér að sjálfsögðu þessa mynd í Jólagjöf, hafði mjög gaman að henni. Ég hef samt aldrei lent í því að það sé svona erfitt að finna hreindýr eins og þarna, enda verið nokkuð mikið af þeim niðri á 7 undanfarin ár.

Það væri gaman ef maður gæti gert svona pró myndband að taka upp allt ferlið, frá æfingum til fullvinnslu (frystis)...

Mér fanst líka virkilega vel gert hjá honum að klára þetta svona skammlaust með lánsriffli og ekki meiri riffilskytteríis reynslu en þetta, þar að auki einn á báti án ára, eins og Villi Naglbítur myndi orða það...
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
User avatar
Morri
Posts: 116
Joined: 03 Oct 2012 22:07
Location: Efri-Hólum,Núpasveit við Öxarfjörð. Grenjavinnslusvæði: Austursvæði Melrakkasléttu

Re: Myndband

Unread post by Morri »

Daginn

Ég pantaði mér svona disk rétt fyrir jól, og horfði á hann á aðfangadag með 2 kvikmyndargerðarmönnum.

Umfjöllunarefnið er gott og hafði ég gaman af þessu. En mikið vantar nú upp á þetta til að mjög gott geti talist, hvað varðar fagmennsku í gerð myndar sem ætluð er fyrir almenning og í dreyfingu. Hljóð og mynd oft leiðinlega léleg. Hegðun veiðimannsins tilgerðarleg oft, sem er til óbóta.

Heilt yfir hafði ég gaman af þessum myndbandi og vonandi gera fleiri eitthvað í þessum dúr í framtíðinni.
Ómar Gunnarsson
morri(at)kopasker.is

Hvert skott er sigur
User avatar
gkristjansson
Skytta
Posts: 250
Joined: 02 May 2012 14:21
Location: Ungverjaland

Re: Myndband

Unread post by gkristjansson »

Pantaði mér líka þetta myndband og hafði mjög gaman af því að sjá þetta. Fór reyndar svolítið í pirrurnar hjá mér þegar hann talaði um "morðtól" og "leyfi til að drepa" auk þess senan þar sem þeir liggja í brekku og hlaupið á rifflinum vísar upp á við og virðist hafa beina skotlínu á manninn sem liggur ofar í brekkunni........
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Myndband

Unread post by Spíri »

Pantaði mér þessa ágætu mynd eftir að hafa séð umfjöllun hérna á vefnum og varð sannarlega ekki fyrir vonbrigðum, virkilega skemmtileg mynd og maður upplifði "mómentin" í gegnum sjónvarpið. Kærar þakkir Hvítaskáld :D
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Post Reply