Endilega fylgjist með þessu.

Almennt um veiði eða veiðar á bráð sem ekki eru í undirflokkunum
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Endilega fylgjist með þessu.

Unread post by Spíri »

Umhverfisráðherra svarar þessum spurningum í dag:

Fyrirspurn til umhverfisráðherra um tengsl undirbúnings umsóknar
um aðild að Evrópusambandinu og friðunar svartfugls.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.

1. Hvenær fékk umhverfisráðuneytið eða stofnanir þess upplýsingar um að lög um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, nr. 64/1994, væru í grundvallaratriðum ósamrýmanleg fuglatilskipun Evrópusambandsins?
2. Lágu fyrir upplýsingar frá Náttúrufræðistofnun og Umhverfisstofnun um að til að samræmast löggjöf Evrópusambandsins þyrfti að breyta ákvæðum laga nr. 64/1994 þannig að nýting hlunninda gengi ekki framar friðunarákvæði laga þegar starfshópur um svartfugla var starfandi?
3. Var starfshópurinn beinlínis stofnaður til að gera tillögu um lagabreytingar sem vitað var að væru nauðsynlegar vegna umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu?
4. Hvaða rannsóknir eða upplýsingar eru fyrirliggjandi um að hlunnindanýting hafi afgerandi áhrif á afkomu svartfuglastofna?
5. Hvað eru margir svartfuglar veiddir af eigendum hlunninda og hvar?
6. Hefur ráðherra upplýsingar um að eigendur hlunninda umgangist þessa auðlind þannig að hætta stafi af?
7. Beitir ráðherra þeim úrræðum sem tiltæk eru í lögum til að vernda þessa stofna, t.d. með því að halda í skefjum afræningjum eins og tófu og mink? Ef ekki, af hverju? Hver er þáttur þessa afráns í viðgangi svartfuglastofnsins?
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Endilega fylgjist með þessu.

Unread post by maggragg »

Það kom svosem ekki mikið frá ráðherra en hún sagði þó að það væri samningsmarkmið samningahópsins við ESB að veiðar á svartfugli myndi lúta stjórn Íslands, eða þannig skildi ég hana og svo að hún væri að skoða þær ábendingar sem komið hefðu frá nytjarétthöfum og öðrum aðilum sem reynslu og þekkingu hafa á svartfuglinum en væri ekki búin að taka ákvörðun enn.

Hérna má sjá upptöku af alþingi þar sem fjallað var um þetta mál:

http://www.althingi.is/altext/hlusta.ph ... 07&horfa=1
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Post Reply