Veiðimynd.

Almennt um veiði eða veiðar á bráð sem ekki eru í undirflokkunum
Guðmundur

Re: Veiðimynd.

Unread post by Guðmundur »

Fottur veiðibíll hjá pólverjunum. ;)
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiðimynd.

Unread post by Veiðimeistarinn »

Ingvar flottar myndir, þú hefur víða farið! Hvar og hvenær í ósköpunum komst þú í að skjóta hreindýr í snjó :? Það hefur valla verið hérna fyrir austan, hér er alltaf sól :D
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Veiðimynd.

Unread post by konnari »

Ég lenti í því í fyrra að skjóta hreindýr í snjó og það meira að segja þann 28. Júlí ! Við vorum á svæði 7 og þurftum að elta tarfahóp lengst inn í búlandsdal....náðum þeim loksins í færi í um 900 metra hæð og þar var snjór yfir öllu (og glampandi sól) ! Það var fínt að kæla tarfinn í snjónum en fjandi langt að draga hann til byggða :D
Kv. Ingvar Kristjánsson
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Veiðimynd.

Unread post by konnari »

Hér er önnur mynd úr þeirri ferð sem sýnir landslagið betur.....ég held að ég fari rétt með að tindurinn í baksýn heitir Hrossatindur.

Image

Hér er svo mynd af veiðifélaganum með sinn tudda:

Image
Last edited by konnari on 02 May 2012 11:46, edited 1 time in total.
Kv. Ingvar Kristjánsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiðimynd.

Unread post by Veiðimeistarinn »

Út í allt annað!
Ingvar þú veist sjálfasagt að það er varasamt að kæla kjötið of hratt niður, það er eiginlega það eina sem getur gert villibráðarkjöt seigt.
Samkvæmt upplýsingum frá mér vitrari mönnum (þó ég sé nú bara ansi vitur að eigin áliti ;) ) dýralækni og kjötiðnaðarmönnum, er best að kæla allt kjöt niður við umhverfishita meðan dauðastirðnun fer fram, verð dauðastirðnunuin of hröð er hætta á að kjötið verði of seigt (samanber lambakjötið okkar sem stundum er sett á frost áður en það er orðið kalt :cry: )
Ég snögg kæli aldrei nýskotin hreindýr og set þau alls ekki vatn eða vatn inn í þau þegar búið er að taka innan úr þeim.
Einungis ef þau mengast af gori skola ég þau eins lítið og ég kemst af með en þá eru þau líka menguð hvort sem er en gott er að úða svolítilli ediksýru inn í dýrin ef þau mengast af gori, það drepur alla gerla.
Þegar búið er að taka innan úr þeim eru þau hrein og laus við sýkla að innan, EN það eru allskonar bakteríur í öllum okkar fjallalækjum og snjórinn þar meðtalinn (hver hefur ekki heyrt talað um gula snjóinn) það er gæsaskítur í öllum lækjum hér eystra ég tala nú ekki um pollana þeir eru undantekninglaust mengaðir af gæsaskít kannski með smá viðbót af hrafnaskít eða ég veit ekki hvað!
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Hrafnjo
Posts: 55
Joined: 03 Jan 2011 17:33

Re: Veiðimynd.

Unread post by Hrafnjo »

Þetta eru áhugaverðir punktar hjá þér Siggi með dauðastirnun og mengunina, sérstaklega þetta með ediksýruna. Oftar en ekki þá eru menn gríðarlega stressaðir á að koma dýrunum strax í næsta læk eða að kæla þau niður eftir að slitið er innan úr þeim.

Kv,
Hrafn
Kveðja,
Hrafn Jóhannesson
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Veiðimynd.

Unread post by konnari »

Já gott að vita af þessu ! Maður hefur þetta í huga í næstu ferð.....
Kv. Ingvar Kristjánsson
Einar P
Posts: 45
Joined: 24 Apr 2012 18:53
Location: Svíþjóð

Re: Veiðimynd.

Unread post by Einar P »

Hér er mynd af Elg sem ég skaut í okt. 2008, sláturviktin var rétt tæp 300kg þannig að lifandivikt hefur verið einhverstaðar rétt yfir 500 kg. Færið var frekar langt eða um 160 m. og hér í landi segir maður helst ekki frá ef dýr eru skotin á svona færum þar sem það er ekki talið gott veiðisiðferði að skjóta á mikið meira en 100 m. Vopnið mitt á elgveiðarnar er Sabatti rover inox 30-06 og státar hann nú af hljóðdeyfi sem ég verð að fara að prófa. Hingað til hafa þrír elgar fallið af mínum völdum. Kveðja frá svíþjóð.
okt 002-2.jpg
Kveðja frá Svíþjóð.
Einar P.
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Veiðimynd.

Unread post by iceboy »

Smá inn á þetta með kælinguna sem Siggi var að tala um. Ég var á fundi um daginn þar sem þetta var útskýrt vel með dauðastirnun og kælingu en það var í sambandi við lambakjöt.
Þetta hefur með sýrustigið í kjötinu að gera. Hitinn í kjötinu má ekki fara niður fyrir 11-12 gráður fyrr en sýrustigið er komið niður fyrir pH 6,3 ef sýrystigið er hærra t.d 6,5 þegar kjötið er komið niður fyrir 11gráður þá verður kjötið seigt. Þessvegna er snöggkæling slæm
Árnmar J Guðmundsson
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Veiðimynd.

Unread post by gylfisig »

.Tjörnes
Attachments
sKÁLAGRENI.JPG
sKÁLAGRENI.JPG (155.28 KiB) Viewed 3545 times
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
Tf-Óli
Posts: 119
Joined: 08 Mar 2012 21:26
Location: Borgarnes.

Re: Veiðimynd.

Unread post by Tf-Óli »

Tvær urtendur og ein stokkönd. Tekin í fyrrahaust
Attachments
4558_1145042915486_1509926206_374200_2387717_n.jpg
4558_1145042915486_1509926206_374200_2387717_n.jpg (191.35 KiB) Viewed 3530 times
Kveðja - Ólafur Ágúst Stefánsson
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Veiðimynd.

Unread post by iceboy »

Ein mynd frá skarfaveiði í vetur
Attachments
skarfaveidi.jpg
Árnmar J Guðmundsson
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Veiðimynd.

Unread post by gylfisig »

,græjur.
Attachments
07052012129.jpg
07052012129.jpg (75.45 KiB) Viewed 3497 times
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Veiðimynd.

Unread post by TotiOla »

Laglegt þríeyki þarna hjá þér Gylfi.

Hvaða kaliber eru þetta, ef ég má forvitnast?
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Veiðimynd.

Unread post by gylfisig »

Já, þarna er fjærst, Jalonen í cal.6,5x284 m. Zeiss 6-24x56
í miðju er Sako 75 með Hart hlaupi í 6,5x47 L. Nota líka h.v. Krieger hlaup í cal 6 BR á hann. Ofan á er NF 8-32
Næst er TRG-42 með Zeizz 6-24.
Og undir þessu öllu er gamla furuborðið sem ég fékk í brúðkaupsgjöf 1984. Það hefur staðið af sér allar kreppur, jarðskjálfta flóð.,og mun líklega gera það áfram :D
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Veiðimynd.

Unread post by Gísli Snæ »

Fyrsta hreindýrið - tekið árið 2008. Veiðimeistarinn gædaði.

Image

Image
Lungnaskot
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiðimynd.

Unread post by Veiðimeistarinn »

Já eins og sést á lungunum er þetta nánast fullkomið skot. Þessi lungnaskot drepa dýrið mjög örugglega auk þess sem þau orsaka fullkomið blóðrennsli dýrsins, svona stórt gat á lungunum og sú staðreynd að hjartað heldur áfram að dæla blóði þar til dýrið er dautt og blóðrunnið.
Sé dýrið hjartskotið sérstaklega ef hjartað er í drasli hættir það að dæla þegar kúlan hittir það og dýrið blóðrennur ekki eins vel eins og gefur að skilja, en dýrið er jafn steindautt.
Þið sjáið á myndinni að gatið eftir útskotið er stærra, það er vinstra megin á myndinni, dýrið hefur staðið aðeins skakkt við, innskotið er aðeins framar, en útskotið er alveg aftur við þind akkurat á réttum stað.
Eina sem betur hefði mátt fara í þessu skoti er ef dýrið hefði staðið alveg þvert fyrir skotinu, þá hefði innskotið getað verið aftar, það hefði verið betra en Gísli gat ekki gert neitt við því og tók innskotið þar sem það er, vegna þess að útskotið mátti ekki vera aftar, þá hefði það getað farið aftur fyrir þind og gormengað skrokkinn. Flott skot, það besta sem hægt var að gera í stöðunni. Verra að bíða og vona að dýrið sneri sér, það er ekki víst að það hefði snúið sér í rétta átt!
Hvaða kúlu notaðir þú aftur Gísli?
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Veiðimynd.

Unread post by Gísli Snæ »

130 gr Nosler Ballistic tip
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Veiðimynd.

Unread post by gylfisig »

Já.. og auðvitað 308 Win, Sigurður, hvað annað :D

Kúlan á myndinn eru leifar af 165 grs Nosler bt. sem ég skaut í hreindýrstarf á um 310 metra færi með 300 win mag. inni í Búlandsdal. Athyglisvert að kjötskemmdir voru engar eftir þessa kúlu. Þetta er bara kápan utan kjarnann, sem lá inni í holdrosanum við útgatið. Ég heyrði smell lengst uppi í hlíð þar sem kjarninn hefur lent... líklega í Búlandstindinum sjálfum, man það þó ekki. 'Eg þurfti að skjóta mikið upp í mót, og hafði bara rétt sekúnduna til að fella þennan tarf.
Attachments
P8240001.jpg
P8240001.jpg (30.46 KiB) Viewed 3437 times
Last edited by gylfisig on 11 May 2012 21:04, edited 2 times in total.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Veiðimynd.

Unread post by Gísli Snæ »

Hjá mér?

Nei ég veiði með 270 Win
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
Post Reply