Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Góðan daginn.
Þar sem maður er nú alltaf að skoða hluti sem væru sniðugir til innflutnings þá datt mér í hug að spyrja spjallverja,og þá sérstaklega þá sem eru mikið að dunda í endurhleðslu,hvort að þeir þekktu eitthvað til þýskra "dæja" frá Triebel (www.triebel-guntools.de) ? Var að skoða vörulistann frá þeim í gær og leyst vel á nokkra hluti þar
Sælir.
Nú líst mér á strákinn Tuma, annars er þetta hrein mannvonska að sýna manni svona verkfæraklám fyrir hádegi. Þekki ekki merkið persónulega en þegar kemur að þýskri nákvæmni þá efast ég ekki, og þetta er ekki beint ódýrt, þannig að þetta er væntanlega ekki í Lyman klassanum, 2 die á um 200 eur og svo boðið uppa varahluti líka sem er bara +. Töluvert af verkfærum þarna sem ég væri til í að eignast og efni lika td. blámi.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson