Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???

Unread post by karlguðna »

130 GR. BAR TSX Hodgdon H4350 .277" 3.230" 51.0 2905 52,500 PSI 55.5 3111 63,500 PSI
130 GR. HDY SP Hodgdon H4350 .277" 3.180" 51.0 2865 45,200 CUP 54.3 3012 50,500 CUP

hérna eru tvær jafn þungar kúlur í sama cal. með sama púðri,, samt mismunandi col. og púðurmagn .
hvað er það sem veldur þessum mun ??? afhverju er 55,5 gr. bakvið aðra en 54,3 gr, bak við hina ??
hvorutveggja max,,
er að reyna að fatta þessi prinsib sem eru notuð en skil bara ekki neitt í þessu dæmi :oops:
væri þakklátur fyrir góð svör :?: :?: :?:
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???

Unread post by maggragg »

Bara lögun kúlunnar hefur mikið að segja hversu mikið viðnám hún hefur í hlaupinu og annað. Einnig eru hleðslurnar prófaðar af mismunandi fyrirtækjum við mismunandi aðstæður og með mismundani hlaupum og mismunandi lotunúmeri á púðri ( aldrei ganga út frá því að sama púðrið sé sama púðrið þegar keuptur er nýr dúnkur. )

Þyngdin ein og sér er ekki gott viðmið um hversu mikið púður á að nota og geta kúlur verið það mikið mismunandi að það getur verið hættulegt að horfa aðeins á þyngd kúlu.

Í þessum dæmum sérðu líka að það eru notaðar mismunandi mælieiningar á þrysting, annarsvegar PSI og hinsvegar CUP en þetta er sitthvort staðallinn og eftir því sme mig minnir er ekki hægt að breyta eða reikna á milli þar sem um gjörólíkar mæliaðferðir er að ræða. Þannig að þarna er verið að bera saman epli og appelsínur varðandi mælingur á þrýstingi og viðmið.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???

Unread post by gylfisig »

Ágætt dæmi um þetta eru til dæmis 100 grs kúlur í .243 win.
Þær eru mismunandi að lögun, og ég veit til þess að ýmsir 243 win. eigendur hafa lent í vandræðum þegar þeir hafa skipt úr einni kúluteg. yfir i aðra, í sömu þyngd (100 grs). Þó svo sama hleðsla hafi verið notuð.
Mig minnir að 100 grs Norma soft point frekar en Norma Oryx hafi verið að valda miklum yfirþrýstingi í mörgum rifflum í 243. Lögun kúlunnar er þannig að hún hefur mikinn viðnámsflöt, þ.e. hún byrjar ekki að mjókka neitt fyrr en bara rétt við enda. Með öðrum orðum, snubbótt, og nánast allur bolur hennar er snertiflötur við hlaupið. Ég er buinn að sjá ansi mörg dæmi um þetta, sérstaklega í áðurnefndu kaliberi. Svo mikill þrýstingur hefur myndast að rifflarnir höfðu ekki átt neitt annað eftir, en að springa í tætlur.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???

Unread post by karlguðna »

Takk fyrir þetta ,, skil aðeins betur en hefur það eitthvað að segja að núna eru þessar kúlur mis langt settar það er . col ??
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???

Unread post by gylfisig »

Coal = cartridge overall length. Heildarlengd hylkis (með kúlu).
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???

Unread post by karlguðna »

já ég skil það en er það að breita miklu með þrýsting ???
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???

Unread post by gylfisig »

Kúlusetning skiptir máli, hvað þrýsting varðar. Sé kúlan sett alveg í rillur, þá er hún búin að loka fyrir leið gass fram úr hlaupinu. Einnig getur þrýstingur aukist talsvert við að setja kúluna dýpra niður í hylkið. Þá er loftrými minna en ella.
Í stuttu máli: Að setja kúlu alveg í rillur, eykur þrýsting til mikilla muna. Þetta er gert við skotfæri til dæmis i Bench rest riffla, og til að minnka þrýsting,þá er einfaldlega puðurmagn minnkað vilji menn hafa kúluna á annað borð í rillunum.
Best er að hafa einhvern milliveg á þessu með veiðiriffla, og aldrei ætti að hlaða í þá með kúlu í rillur.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???

Unread post by karlguðna »

takk fyrir þetta félagar ,,, ég færist nær því að vita eitthvað,, :D :D :D
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Ef þú horfir á þessa mynd, þá sérðu hvernig uppbyggingin á kúlunum er mismunandi td. þykt kápunar og svo kúlur með þili/kjallara eða þykkum botni koparinn gefur jú minna eftir en blý og þess vegna mynda þær meiri þrýsting en hinar.
Image
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???

Unread post by karlguðna »

já þetta er athyglisvert og þarna sést líka hvað það er mismunandi hvað flöturinn er stór sem snertir hlaupið !!
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
joivill
Posts: 46
Joined: 26 Jun 2012 20:01

Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???

Unread post by joivill »

Sæll Kalli
Barnes TSX er heil kúla alveg í gegn ekkert blý og þessvegna harðari , þ.a.s gefur minna eftir , og efnið í TSXkúluni er eðlisléttara og þessvegna ætti hún að vera ögn lengri heldur en SP kúlan,og til að minka viðnámið í hlaupinu eru rendur í kúluni sem snerta ekki yfirborð hlaupsins. Semsagt kúlan er stýfari í og þessvegna minni hleðsla, en ég er búin að hlað þó nokkuð hin ýmsu Cal. með þessar kúlu og nota oftast eðlilega við miðun eins og með aðrar kúlur af sömu lengd , þannig að þetta er fullkomlega eðlilegt, Balasic sérfræðingur hjá Sako sagði mér að með þessum nýju kúlum má alveg vera 10-20 Gr undir í kúluþyngd miða við venjulega SP kúlu þar sem þær gefa svo góðan slagkraft, Sako eru að nota þessa kúlu í sum af sínum skotfærum. Hornady er með svipaða kúlu GMX
Kv Jói byssusmiður
Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður
www.icelandicknives.com
j.vilhjalmsson@simnet.is
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???

Unread post by karlguðna »

Sæll Jói,, þú segir ". Semsagt kúlan er stýfari í og þessvegna minni hleðsla" en í þessu dæmi sem ég setti þarna fram er þessu einmitt öfugt farið þar er meiri hleðsla í tsx kúlunni !!?? er nema von að grænjaaxlar eins og ég ruglist aðeins í rýminu :oops: :D :D :D

þessi þykist kunna að reikna psi. vs. cup. skil reyndar ekki hvernig en hér eru reiknihausar inni sem gætu skylið þetta og uppfrætt okkur hina :P http://www.shootingsoftware.com/ftp/psicuparticle2.pdf
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???

Unread post by E.Har »

Í raun gefa svona tölur frá framleiðendum bara brúklega nálgun.
6,5-55 var t.d oft gefin fyrir lágan þrýsting, mikið af rifflum frá liðlega 1900 (Mauser)
Þá þurfa hleðslurnar að vera "lögfræði" hæfar, :mrgreen:

Einn af þáttunum sem gerir hleðslu skemtilega er að fikra sig varlega áfram,
og ná einhverju sprækara, nákvæmara út úr sínum kokteil.

Auðvitað má ekki æla með að kíkja upp fyrir max á opnu spjallsvæði, en ef það er gert varlega og skoðuð hylki eftir hverja hleðslu þá kemur kannski í ljós að annar framleiðandin er bara að fara varlegar en hinn. Báðar kúlurnar þola svipaðan þrýsting og sömu hleðslu!

En enn og aftur í guðanabænum, fara varlega þegar verið er að kíkja upp fyrir uppgefið max :-)

Þetta er hinnsvegar skemtilegt figt :roll:
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Af hverju mismunandi hleðsla fyrir 130gr. kúlur ???

Unread post by karlguðna »

Haha Einar þú ert snylli .,,,ég er buinn að kíkja upp um 2 gr. en það breitir engu ,, takk samt kæri vin,,,,, en ég segi eins og villi heitinn ,,, einhverntíman skal ég hafa það ,,, :P :oops: :mrgreen: :D :D :D
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
Post Reply