Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by Gísli Snæ »

Er einhver hér sem hefur hlaðið í Tikku í 260 Rem. Er að byrja að hlaða í nýja riffilinn og var að spá í hvort einhver hefur sett N160 á bak við Lapua Scenar 123 gr?

Einnig hvað menn hafa farið upp í COL og hylkið samt passað í magasínið.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
Padrone
Posts: 150
Joined: 02 May 2012 11:15
Location: Kópavogur

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by Padrone »

Sæll,

Hvernig finnst þér .260 REM koma út?
Hversvegna valdru þetta cal?
Skoðaðiru einhver önnur þegar þú vast að skoða þennan riffil?

Bara forvitni því maður er í þessum pælingum líka =)
Kv. Árni Vigfús Magnússon
arni1980 (hjá) gmail.com
699 4569
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by Gísli Snæ »

Engin reynsla komin á það ennþá. Fæ sjónaukann ekki fyrr en í þessari viku eða þeirri næstu.

Af hverju þetta?? Þegar að stórt er spurt. Það varð bara niðurstaðan eftir mikinn lestur. Var að leita mér á nákvæmu caliberi með miklu úrvali af kúlum (riffilinn keyptur í markskotfimi og einnig í varg). Valið stóð lengi á milli 260 Rem og 6.5x47. En um leið og Lapua hóf að framleiða hylki fyrir 260 Rem varð það fyrir valinu.

Og já ég skoðaði mörg caliber. En þó svo að ég hafi skoðað mörg þá voru samt frekar fá raunhæf. Er ekki með mikla reynslu í endurhleðslu þannig að öll caliber sem kröfðust mikillar vinnu í hylkinu (AI o.s.frv) komu ekki til greina. Einnig vildi ég fá caliber sem tæki ekki eins mikið púður og veiðiriffilinn minn - aðeins ódýrara. Var heitur fyrir .284 Win en það var eiginlega úti vegna fyrri atriða.

En næsti riffill gæti hæglega orðið í því caliberi - eins gott að konan lesi þetta ekki :)

Þannig að núna er ég sem sagt að bíða eftir sjónauka, hringju og basa. Búinn að hlaða 50 skot
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by maggragg »

Gísli, við erum á sömu línu hvað þetta varðar. Næsti riffill hjá mér verður í annað hvort .260 Rem eða 6.5 SLR eftir einmitt mjög miklar pælingar. .284 Win er hinn kosturinn :)

Einn af kostunum er að þetta er short action og það á ekki að vera vandamál með að setja .260 Rem í magasín nema með 140. gr. VLD kúlurnar skilst mér, en það er alltaf hægt að setja þær dýpra í svo ég held að það sé vel yfirstiganlegt.

Verður gaman að fylgjast með þessu hjá þér.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by Veiðimeistarinn »

Hvað er 260 Rem stórt hylki, lengd í millimetrum og hvert er kúluþvermálið í millimetrum?
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by maggragg »

.260 er .308 Win hylkið neckað niður í 6.5 mm. Hylkið er mjög sambærilegt 6.5x55 í getu en er auðvitað styttra. Hylkið tekur ekki allveg eins mikið púður og 6.5x55 en þolir meiri þrysting á móti. Reyndar ef 6.5x55 er notað í nútíma lásum þá þolir það meiri þrysting. Það er oft rætt um hvort sé betra, .260 Rem eða 6.5x55 og það er endaulaus umræða þar sem þau skila bæði því sama.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by konnari »

Gísli! Þú verður að mæla sjálfur hvað max col er í þínum riffli....í mínum sako varmint er ég að nota 73,9 með scenar 123gr. Max col hjá mér er 74mm. Það rétt passar í magasínið ! Magasínið er það langt að það er ekkert mál að hlaða langar 140gr kúlur. Varðandi púður þá hef ég prófað n-160 og n-550 og 550 kom betur út. Nákvæmnishleðslan hraðamældi ég á 3000 fetum slétt med orginal 24" hlaupi !

Siggi....260 rem heitir líka 6.5-08 og er sem sagt af 243, 7-08, 308 ættinni og hefur sem sagt 6,5mm kúlu og hylkið er 51,69mm að lengd.
Last edited by konnari on 03 May 2012 10:48, edited 1 time in total.
Kv. Ingvar Kristjánsson
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by Gísli Snæ »

Já Konnari ég veit. Hef bara aldrei gert það og er satt best að segja ekki alveg viss um hvernig ég á að snúa mér í því. Skoðaði eitthvað kit upp í Hlað en það voru nokkur plaststykki á rúmlega 4000 kr.!!! Ekki alveg tilbúinn í það. Hef verið að lesa um þetta og mun redda þessu.

Prufa N160 fyrst og ef það kemur ekki vel út prufa ég N550 eða eitthvað annað. Eða líklega mun ég prufa eitthvað annað bara til að prufa það :)

Hlakka mikið til að renna með þennan út í Hafnir
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by konnari »

Það er mjög einfalt....taktu eitt skotið hylki og klemmdu hálsinn á því med töng nògu mikið til ad kùlan haldist nokkuð stíf í....tiltu kúlunni í hylkið og lokað boltanum varlega.....opnaðu boltan aftur og taktu hylkið varlega úr.....nú mælir þú lengdina á hylkinu....endurtaktu þetta í 2-3 skipti til að fá nákvæma mælingu. Svo þegar þú hleður bakkar þú kúlunni til baka u.þ.b. 0,1-0,5 cm. Eftir því sem kemur best út.
Kv. Ingvar Kristjánsson
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by maggragg »

Hérna er það sem QL mælir með fyrir .260 Rem og 123 gr. Scenar. Niðurstöðurnar miða við 24" hlaup
Attachments

[The extension txt has been deactivated and can no longer be displayed.]

Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by Gísli Snæ »

Sama og Hjalli sagði. En hann sagðist aldrei treysta þessu 100%

Næst þegar maður fer til Cabelas (maður fer ekki til Minneapolis - maður fer til Cabelas) þá kippir maður þessu með sér.

http://www.cabelas.com/product/Shooting ... t104635080
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by Gísli Snæ »

Takk fyrir þetta Magnús

Djöfull er ég að verða ánægður með þetta spjallborð.

Ég er farinn að koma hérna inn mikið oftar en á hlad.is!
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by maggragg »

Svona til að það sé allveg á hreinu þá eru þessar tölur sem koma fram í skjalinu MAX tölur út frá forritinu. Byrja ætti allavegana 10% neðar eftir að búið væri að bera þetta saman við hleðslubækur. En þetta gefur samt raungóða mynd af því hvaða púður henta bestu hverri samsetningu.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by Gísli Snæ »

Nú á ég ekki QL (eitthvað sem ég þarf að kaupa). En í Vihtavuori bæklingnum sem ég fékk uppi í Hlað er max hleðslan fyrir N160 og 123 Scenar gefin upp 44,6 grain. Hvernig ætli standi á þessum mismun?
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by maggragg »

Þessi útreikningur gefur bestu hleðslurnar miðað við annað hvort max þrysting eða að hylkið sé 102% fullt. Í þessu tilfelli er hylkið stappað eða 102% og þrystingurinn vel undir mörkum sem bendir til þess að þetta púður nýtist ekki vel samkvæmt forritinu. Það segir að hylkið er orðið fullt áður en max þrýstingi er náð. Það er hinsvegar skrítið að þeir hjá VV komið 44,6 grainum í hylkið. QL miðaði við COL 71 mm eða 2.8" Það er eins og það sé eitthvað sem stemmi ekki í forritinu en VV hleðslan ætti að vera 108% fyllt hylki eða compressuð hleðsla.

Hinsvegar skeikar ekki nema 3 fps á hraða milli QL og VV bókarinnar. Maður velur alltaf það sem bókin segir ef það er mikill mismunur á niðurstöðum QL og hleðslubóka.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by gylfisig »

260 Rem er duglegt hylki.
Er samt á pari við hið nýja 6,5x47. þó 260 hylkið sé talsvert lengra.
Við vorum að hraðamæla meðal annars þessi tvö kaliber, með sömu kúluþyngdum, eða 123 grs.
ásamt fleirum . 260 Rem var með meðalhraða í kringum 2700 ft. en 6,5x47 var heldur hressara, eða um 3000 ft. mv sömu kúlu. En ég tek það fram, að 260 riffillinn (hans konnara) sem við hraðamældum var ekki mældur með max hleðslum, sem kann að skýra þennan mun. Max hleðsla í 260nhjá VV miðað við 120 grs kúlu, er 40,7 grs af N-550. Ég nota í 6,5x47 40,4 grs. og það skilar 3014 ft meðalhraða 5 skota. Nákvæmnin var með ágætum, þó svo ég hefði viljað sjá meiri hraða á svo stóru hylk sem 260 REm er. En líklegt er þó að 260 Rem sé duglegri þegar komið er upp í 130-142 grs kúlur, heldur en bæði 6,5x55 og 6,5x47.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by maggragg »

Það er erfitt að bera saman 6,5x47 og .260 Rem ásamt 6,5x55. Þetta eru allt hylki sem eru að skila svipuðu. 6.5x47 þolir töluvert meiri þrysting en hin og þessvegna er hægt að ná svipuðum hraða og með .260, með minna púðri. Ég hef verið að spá cal í þessum flokki og rakst á 6.5 SuperLR en það er samblanda af 6.4x47 og .260 Rem. Kostir beggja í einu hylki.

Image
6.5x47 og 6.5 SLR

Image
.260, 6.5SLR, 6.5 Creedmore og 6.5x47

Það eru svo til fleirri villikettir í þessum flokki sem eru endurbætur á þessum hylkjum en eitt er víst að ef maður er með eitt af þessum hylkjum þá er maður í góðum málum ;)

En maður er kominn smá útfyrir efnið hér. Ætlaði mér að setja inn þráð um þessi cal við gott tækifæri :)
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by konnari »

Af einhverjum ástæðum sem ég kann ekki skýringu á þá eru max hleðslur fyrir 260 rem með Scenar 123gr. með N-160 og N-550 töluvert fyrir neðan Max samkvæmt QL. Hann Gylfi setti þetta inn í forritið fyrir mig og ég get t.d. sett 3 gr. meira af N-550 í hylkið en bókin gefur upp.....n.b. með COL 73.9mm. Ég hef ekki orðið var við neinn yfirþrýsting og kúlan verður bara nákvæmari eftir því sem meira er sett í hylkið......í fyrstu var ég að fá um 2700 fet eins og Gylfi nefndi áðan, en nú er ég að ná 3000 fetum og er samt undir Max samkv. QL
Kv. Ingvar Kristjánsson
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by Gísli Snæ »

Takk fyrir þetta strákar. Prufa mig áfram og leyfi ykkur að fylgjast með.

Konnari ég verð að spyrja út af notendanafninu. Ertu eitthvað skyldur Jóhanni Konráð Birgissyni?
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Unread post by konnari »

já....við erum náskyldir :D
Kv. Ingvar Kristjánsson
Post Reply