Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Sælir félagar, færði þesa fyrirspurn úr þræðinum "Hraði á kúlu" Væri einhver ykkar sem hefur aðgang að reikniforriti fáanlegur til að reikna fyrir mig hraða á 120 grain Nosler Ballistic Tip í 260 rem ?
Hleðslan er 42 grain af Vihtavuori N-160, hlauplengdin er 590mm eða 23,2" / Heildarlengd hylkis með kúlu er 71,2mm / Hæð upp í framlinsu sjónauka er 45mm / Hæð yfir sjávarmáli er ca 150m.
Er eitthvað annað púður sem þið mælið frekar með fyrir þessa kúluþyngd ?
Ég hef verið að nota N550 og náð skv mælingum á falli þ.e. mælt fall á 100m fresti út í 500m hraða uppá rétt tæp 3000 f/s en er að vísu með 123gr Amax og 26“ hlaup.
Ég þakka gott boð. Ég legg til að við látum verða að því að taka létta æfingu saman nú þegar stillurnar fara að koma í maí og hraðamælum þetta fram og til baka.
Glæsilegt Gísli.
Fer dótakassinn þinn nokkuð að fyllast? Er þetta þá MagnetoSpeed version V3? Ert þú etv kominn með fjarlægðarmæli ?
Er ekki rétt munað hjá mér að þú hefur verið með VV 160 púðrið við 140gr kúlu? Hefur þú hugmynd um hvaða hraða þú hefur verið að ná og hefur þú prófað léttari kúlur í 260rem?