Sælir netverjar allir.
Nú er svo málum háttað að mig vantar hringi, ekki á fingur heldur sjónaukahölduhringi

flott orð

. En það munu vera 30mm hringir, sérlega vel vaxnir bæði upp og niður ( super high ), matt svarta helst, fyrir STD basa frá Leupold. Eða eins og framleiðandinn myndi orða það - Leupold STD rifle scope ring, 30mm, Super High, Matte Black og framleiðslunúmerið myndi vera 51033
Vonandi á einhver þetta hér á skerinu, þeir voru ekki til hjá Veiðihorninu né Vesturröst.
Kveðja Keli