
Auðvitað eiga menn að velja short action ef þeir fíla það en short action til að spara þyngd er ofmetin. Sako t.d. þar munar 100 g á short og long action og ekki mörgum mm í lengd. Þessi þyngdarmunur á lásum átti kannski við í gamla daga þegar málmtækni var önnur en í dag. Tikka framleiðir eina léttustu veiðiriffla í heimi og þeir eru allir long action, bara mismunandi magasín og boltar (og hlauprýmd) til að ráða við mismunandi hylki.
Minn veiðiriffill er upprunalega Tikka Light í 6.5x55, með léttu hlaupi, magasíni og plastskefti. Strípaður 2,8 kg. Vóg í byrjun með kíki, festingum og tvífót (en án skota), semsagt veiðiklár, rétt tæp 4 kg. Setti hann í norskt KKC límtrésskefti (stillanlegur kinnpúði og axlarpúði), stærri kíki og þyngra boltahandfang og hann er núna 4,6 kg. GRS skeftið er um 200 g þyngra. Hlaupið er ennþá „kínaprjónn“ (sem þykir ekki fínt á æfingasvæðinu…) 22,7“ en er nákvæmt eins og öll Tikka hlaup, þarf bara að passa að kæla það.
Hlaupið er að sjálfsögðu sá hluti sem skiptir mestu máli í þyngd eins og þú nefnir, Magnús. Tikka Varmint er með tæplega 24“ þungt hlaup sem er um 800 g þyngra en Lite/Hunter hlaupið. Þannig að Varmint í sama búningi og að ofan væri þá 5,4 kg. Væri enn léttur vargriffill. En ekki með tveggja þrepa gikk en þá má fá aftermarket. Weatherby Vanguard í sama búningi væri 5,2 kg með léttu hlaupi og 5,8 kg með þungu (og stuttu) hlaupi ef miðað er við þær gerðir sem Hlað auglýsir á sínum vef. En með tveggja þrepa gikk sem standard.
Það má heldur ekki gleyma því að þyngd á kíki og festingum skiptir máli. Ég er með Vortex Viper í 6.5-20x50 sem er um 620 g án festinga. Viper PST 6-24x50 er með FFP og ljósi í krossi er eitthvað um 650 g og gæti því hentað vel sem vargkíkir.
Ég myndi hugsa mig vel um áður en ég skipti úr 6.5x55 yfir í 260 REM því þau eru mjög áþekk í getu en 6.5x55 ræður betur við stærri kúlur enda lengra hylki. Bæði eru mjög nákvæm í réttum hleðslum og henta fínt sem varghylki. Tikka Lite í KKC skefti