Nú er komið að þeim tímapunkti að fjárfesta í fyrsta stóra rifflinum og langaði mig að leita ráða hjá reyndari mönnum.
Ég hef enga reynslu af skytteríi úr stærri en 22.cal og svo virðist sem því meira sem les um þetta á netinu þeim mun erfiðari verður valið.
Það sem ég leita að er :
* Hentugt caliber í varg og brúkhæft í gæs
* Því minna fall því betra
* Úrval af verksmiðjuhlöðnum skotum ( sé ekki fram á að ná mér í hleðsluréttindi alveg strax )
6,5x55 virðist vera mjög vinsælt miðað við framboð af rifflum í því caliberi hér heima, hvernig stendur það sig miðað við 223 eða 22-250 ?
Kannski rétt að taka fram að það er ekki skilyrði að riffillinn sé löglegur á hreindýr þar sem það vantar í mig allan áhuga á svoleiðis skytteríi (allavega ennþá

Með von um góð svör