Mig langar að deila með ykkur nýjasta gripnum í byssuskápnum....enda tel ég að slíkt sé nánast skylda sé maður hér á vefnum

Líffæragjafinn í þessu tilfelli er Otterup svo riffillinn er byggður á Mauser 98 lás.
Hlaupið er Lothar Walther 26" með 1/9 twist og að sjálfsögðu var það meistari Arnfinnur sem sá um alla vinnu við hlaupið og koma því á....glæsilega unnið eins og allt hjá honum

Caliberið sem varð fyrir valinu er 6.5-06AI svo þetta telst víst til villikatta.
Til að koma þessum skotum í magasínið þurfti að lengja það fram um 5mm og einnig stytta "feed rampinn" í lásnum um annað eins en það ásmt boltahandfangi, hlaupbremsu og skeptisvinnu sá undirritaður um, eða Petrolhead Engineering eins og Aflabrestur vinur minn orðaði það einhverju sinni

Nú vantar bara að koma glerinu á... vantar festingar... og fara að prófa gripinn, vona að það hafist um helgina.
MBK
Gæi