Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Ef þessi mælir virkar jafn vel og auglýsingarnar gefa til kynna þá væri ég gjarnan til í að fá þig til þess að mæla hreindýrahleðsluna mína við gott tækifæri þannig að ég geti útbúið RÉTT cheat sheetGísli Snæ skrifaði:Aðeins verið að uppfæra dæja og bæta í dótakassann. Nú er bara að drífa sig út í Hafnir og prufa
Endilega leyfðu okkur að heyra hvernig þetta kemur út.
Mbk.
Þórarinn Ólason
Þórarinn Ólason
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Fór og prufaði í kvöld Tóti - virkaði eins og til var ætlast. EKkert mál að hittast í Höfnum við tækifæri (eða á Álfsnesi) og mæla þinn.
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Flott að heyra Til lukku með nýju græjurnar.
Ég verð í bandi.
Ég verð í bandi.
Mbk.
Þórarinn Ólason
Þórarinn Ólason
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Var að koma frá Danmörku síðasta föstudag og keypti mer smá dót
Kv Alfreð F. Bjōrnsson
- Stebbi Sniper
- Póstar í umræðu: 9
- Póstar:492
- Skráður:09 Jun 2012 00:58
- Staðsetning:Reykjavík
- Hafa samband:
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Þetta er náttúrulega ekta dót Alfreð... velkominn í alvöru skotfimi!
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Skotfélag Kópvogs
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Þakka þetta heillar mig mjög mikið. En Benchrest rifillin minn verður líka klár núna i þessum mánuði held eg þannig maður sér hvort maður heldur áfram í
Kv Alfreð F. Bjōrnsson
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Þetta var ekki sá eini sem kom, er það Alfreð? Ég frétti af amk einum öðrum hjá öðlingi sem vinnur hjá IGS - voruð þið saman í innkaupaferð?
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Jújú eg og jónas komum báðir með það sama
Kv Alfreð F. Bjōrnsson
- gkristjansson
- Skytta
- Póstar í umræðu: 2
- Póstar:250
- Skráður:02 May 2012 14:21
- Staðsetning:Ungverjaland
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Jæja,
Ég er að fá mér nýjan riffil og þá þarf að sjálfsögðu kíkir á gripinn. Þessi var rétt að koma í hús:
Hann er með Zeiss VM rail festingu:
Nú bíð ég bara spenntur eftir rifflinum, ásetningu á sjónauka og svo, að sjálfsögðu, að fara að nota gripinn

Kveðja,
Guðfinnur Kristjánsson
Guðfinnur Kristjánsson
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Guðfinnur ! Þú verður nú að upplýsa okkur hvernig riffil þú ert að fá þér
Kv. Ingvar Kristjánsson
- gkristjansson
- Skytta
- Póstar í umræðu: 2
- Póstar:250
- Skráður:02 May 2012 14:21
- Staðsetning:Ungverjaland
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Sælir,
Ekkert mál, ég er að fá mér Merkel Helix í 9.3x62 (svo lengi sem ég fæ undanþáguna).
Þetta er mjög algengt kaliber hér í Ungverjalandi og gott í svo til alla riffil veiði sem við stundum hér. Svo er þessi með "straight pull" bolta sem er meiriháttar í rekstrarveiðina sem ég stunda mikið.
Skelli að sjálfsögðu inn myndum þegar (ef) ég fæ gripinn sjálfann.

þetta er svolítið mikið fyrir aldin kall í afmælisgjöf ,,, http://www.hlad.is/index.php/netverslun ... garmaelir/ gott að eiga góða konu,,,
er þetta flókin græja ????? er mikið mál að setja inn kaliber og að fá fallreiknirinn til ð virka ????

Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
BKV. Karl Guðna.
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Ég lenti í að kaupa þennan nú á dögunum, mér skilst að það sé hægt að fella hreindýr með þessu, ekki bara gata pappa, en það á eftir að koma í ljós. Mest verður þó gaman að etja kappi við Veiðimeistarann í hreíndýrahreysti næsta sumar
Remington 700 Varmint Synth., Heavy Barrel, caliber .308 Win.
Uppréttur lás – beddaður – gikkátak um 800gr
Hlaup 27“ (68,5cm) Shilen Sel.Match, 1:12" twist.
Kíkir NightForce NXS 5.5-22x56mm, Mildot kross m/ljósi, NF stálfestingar og NF 20 MOA PT rail.

- Viðhengi
-
- Remington
- riffill.jpg (66.61KiB)Skoðað 1823 sinnum
- Remington
- riffill.jpg (66.61KiB)Skoðað 1823 sinnum
- Stebbi Sniper
- Póstar í umræðu: 9
- Póstar:492
- Skráður:09 Jun 2012 00:58
- Staðsetning:Reykjavík
- Hafa samband:
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Sæll Jón Magnús
Þetta þykir mér verulega eigulegur gripur sem þú ert kominn með í hendurnar þarna.
1. Úrvarls sjónauki og kannski mest spennandi sjónaukinn fyrir peninginn að mínu mati. Ef ég væri að kaupa mér sjónauka á veiðiriffil í dag sem ég vildi líka getað notað í mót, þá býst ég við að ég myndi fá mér þennan sjónauka.
2. Fínt skepti, er þetta REM Sendero skepti?
3. Er Remington gikkur í honum eða aftermarket?
Ég er alveg kominn á það að notagildið á að vera það sem ræður för. Þess vegna myndi ég stytta á honum hlaupið um 4 - 5 tommur og setja uppáskrúfaðan hljóðdempara á hann ef ég fengi leyfi fyrir slíku.
Svo myndi ég líka munda DeWalt-inn og setja svona kinnpúða að hætti Ryan Cleckner á hann og tvífót sem stendur framúr skeptinu.
Þá væri þetta að verða fullkomið vinnutæki að mínu mati og tuttuguogfimman myndi ekki gera neitt annað en að rykfalla inn í skáp...
Einn fróðleiksmoli um .308!!! 6 - 8 þúsund skot af úrvals nákvæmni! Þó ég myndi mjög líklega freistast til að velja 7mm 08.
Annars mjög flottur riffil, til hamingju með hann.

- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 14
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Jæja Jón minn, ég skil, menn hafa lent í ýmsu hérna.
Nú hefur þú að vísu lent óvenju illa í því, enn, fátt er svo með öllu illt að ei boði gott, þú getur altént notað af honum sjónaukann !!!!
Ég ætla nú samt að vona að þú hafir ekki þurft að gefa augun úr, fyrir þetta apparat
Annað en sjónaukinn virðist þurfa svo mikillar lagfæringar við, að mati Stebba Snipers, að það svarar nú vart kostnaði að fara að krukka í það, alle samen.
Tuttugu og fimman verður fín með þennan sjónauka, með mil dot krossi og alles, þú getur allavega mætt mér á jafnréttisgrunni i Hreindýrahreystinni næsta sumar

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
-
- Póstar í umræðu: 8
- Póstar:285
- Skráður:11 May 2013 21:37
- Fullt nafn:Jens Jónsson
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Glæsilegur riffill hjá þér Jón Magnús til hamingju.
Það væri gaman að heyra hvað 125 gr Nosler kúlan ferðast hratt frá hlaupi með VV N135 púðri eða Scenar 155 gr með VV N150.
svona áður en þú ferð að ráðum Stebba og cuttar af hlaupinu nokkrar tommur.

Ég held að Scenar 155 gr kúlan sé með bestan flugstuðul miða við þyngd í 30 cal kúlunum sem eru undir 190 gr enda hönnuð fyrir 1000 yard keppnirStebbi Sniper skrifaði:Ég er alveg kominn á það að notagildið á að vera það sem ræður för. Þess vegna myndi ég stytta á honum hlaupið um 4 - 5 tommur og setja uppáskrúfaðan hljóðdempara á hann ef ég fengi leyfi fyrir slíku.
Jens Jónsson
Akureyri
Akureyri
- Stebbi Sniper
- Póstar í umræðu: 9
- Póstar:492
- Skráður:09 Jun 2012 00:58
- Staðsetning:Reykjavík
- Hafa samband:
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Ha ha... þetta er svolítið DV legt komment hjá þér Siggi!
Til að hafa allt rétt þá þarfnast þessi riffill ekki neinna lagfæringa... heldur var ég að lýsa þeim hugleiðingum sem brenna á mér!
Það er að segja hvernig setup ég myndi vilja hafa... sem er ekki mjög frábrugðið þessu. Get farið yfir það hvers vegna síðar!
Til að hafa allt rétt þá þarfnast þessi riffill ekki neinna lagfæringa... heldur var ég að lýsa þeim hugleiðingum sem brenna á mér!
Það er að segja hvernig setup ég myndi vilja hafa... sem er ekki mjög frábrugðið þessu. Get farið yfir það hvers vegna síðar!
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Skotfélag Kópvogs
- Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 14
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Jææææja Stebbi minn, bara alltaf í boltanum, á nú að bakka út úr öllu saman þú finnur riffilgarminum allt til foráttu og vilt breyta honum svona og svona mikð og klikkir svo út með því að segja að eftir svo og svo miklar breytingar mundir þú ekki einu sinni velja þetta apparat sem fyrsta kost.
Sveiattan, hér hafa menn nú reynt að standa og falla með því sem þeir segja, en reka ekki í bakkgírinn með skottið undir bíl, skott sem nær alveg fram að framhásingu, og vilja ekki kannast við neitt
Sveiattan, hér hafa menn nú reynt að standa og falla með því sem þeir segja, en reka ekki í bakkgírinn með skottið undir bíl, skott sem nær alveg fram að framhásingu, og vilja ekki kannast við neitt
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Siggi ! Nú vantar "like" takkann
Kv. Ingvar Kristjánsson