Það er hárrétt hjá Stebba Sniper að ef menn eru sáttir við að skjóta eingöngu á stuttum færum þá er hægt að nota ýmsar haglastærðir og hleðslumagn með góðum árangri. Erlendis nota menn mest stærðir 7-8 á rjúpu og gjarnan 28g skot.
En vilji menn leggja meiri metnað í veiðar með haglabyssu - eins og ég veit að riffilmenn leggja t.d. í sínar riffil æfingar/veiðar - þá er hægt að ná betri árangri með því að leggja smá vinnu og hugsun í haglaskotavalið.
Mín skoðun er sú að tegund skotanna sé alls ekki aðal atriðið. Ég er nokkuð viss um að öll skot á markaðinum séu að skjóta þokkalega réttu magni af höglum og af þokkalega réttri stærð á hraða bilinu 1150-1350 fps (nota bene að buffer högl hafa nokkra sérstöðu). Upphafshraði á blýhöglum er ekki mjög mikilvægur - munurinn er orðinn mjög lítill úti á 30 metrum. Harkan í blýinu er líklega nokkuð svipuð líka, en þú hafa mér fundist amerísku (remington a.m.k.) höglin af dýrustu sort vera hörðust - sem skiptir aðallega máli varðandi að halda þröngri dreifingu. Einnig eru til í dæminu nikkel húðuð högl - sem e.t.v. getur skipt máli varðandi penetration - en er umdeilanlegt.
Endilega prófið nú að skjóta á pappír og reitið eina rjúpu og skoðið hverjar líkurnar eru á því að hún geti lent á milli hagla í sverminum. Ég á videó af sjálfum mér skjóta sama fuglinn 3 eða fjórum sinnum og í öll skiptin var miðið klárlega í lagi því snjórinn allt í kringum hann þeyttist til og frá - en hann lenti greinilega alltaf á milli haglanna og hljóp áfram. Þetta var með 28g #5 - sem er hættuleg blanda.
Ef menn ætla að nota stór högl þá þurfa menn þungar hleðslur - annars er of lítið af höglum til að tryggja að fuglinn verði fyrir hagli. En ef menn ætla að nota lítil högl - þá geta menn leyft sér léttari hleðslur - eða víðar þrengingar.
Nú er altalað á Íslandi að haglastærð #4 steindrepi grágæs á miðlungs og jafnvel löngum færum - þá geta menn varla haft áhyggjur af því að haglastærð #6 geti ekki drepið rjúpu á sama færi og engin ástæða að nota stærri högl - enda rjúpa skotlinasta veiðibráð landsins.
Ég ætla að hlaða mín rjúpnaskot sjálfur - og verð annarsvegar með 42g af high-antimony (5-6%) grjóthörðum nikkel húðuðum höglum #6 og buffer á lágum hraða (1200-1250 fps) fyrir langskot með þrönga dreifingu - en hinsvegar 42g af low-antimony (2-3%) höglum #7 og án buffers á miklum hraða (1350+ fps) til að fá víða dreifingu á styttri færin. Ætla að byrja með IC þrengingu - en breyti þessu e.t.v. eftir pattern pælingar í næstu viku.
Ég vil hvetja alla veiðimenn til að sýna metnað í hagla skotfæra vali og nálgast þannig okkar góðu riffla kollega sem velta hverju einasta smáatriði fyrir sér varðandi riffilskotin - þótt allir viti að hvaða verksmiðjuskot sem er úr ódýrasta rifflinum, með Tasco 2000 kíki á plast festingum fellir hreindýr í fyrsta skoti
