Ég hvet alla þá sem áhuga hafa á hreindýraveiðum til að eignast þessa bók og lesa hana, hún inniheldur eins og segir í undirtitlinum líflegar og fræðandi frásagnir, þó ég segi sjálfur frá, en ég segi jú sjálfur frá í bókinni, nóta bene

Meginmarkmiðið með því að stofna til þessa þráðar, þó mér sé að vísu málið skilt, er að fá fram upplifun spjallverja við lestur bókarinnar og umsagnir þeirra um bókina og viðtölin í henni.
Mér finnst höfundinum Guðna Einarssyni blaðamanni og rithöfundi hafa tekist býsna vel upp við ritun þessarar bókar.
Hafa ber í huga að þetta er fyrsta bókin sem fjallar eingöngu um hreindýr og hreindýraveiðar síðan bækurnar, Á hreindýraslóðum og Hreindýrin okkar, komu út um og fyrir árið 1950 eða í rúm 60 ár, svo það var sannanlega kominn tími til að eitthvað í þessum dúr liti dagsins ljós og Guðni og Guðjón Ingi Eiríksson hjá bókaútgáfunni Hólum, http://www.holabok.is/ eiga þakkir skyldar fyrir að ráðast í þetta verkefni.
Bókin er auglýst um helgina á kynningarverði í Hagkaupum sem gildir 8. til 10.nóvember á krónur 4.599 þegar venjulegt verð er 5.599 krónur, svo þar er enn tækifæri á morgun mánudag.