Lenti í því að þrenging í öðrum remmanum mínum var föst og líklega verið það í allavega í einn tug ára

En þegar ég ætlaða að fara að skoða hvað þrenging væri í var allt fast mynti að það væri Mod en varð nú að losa kvikindið fyrst ég vissi af þessu og var fyrst byrjað rólega og látið liggja í steinolíu og svo tekið á því og viti menn afraksturinn BROTINN lykill

Nú var ákveðið að vera grófari og hlaupið hitað með hitabyssu og reynt aðeins og smurt með og árangurinn annar BROTINN lykill

OG VAR Ég þá búinn með lyklana mína og næsta skref að panta 2 nýja í Ellingsen

En þar sem ég var greinilega ekki á réttri leið með þetta leitaði ég ásjár hjá vini mínum og stór reddara Eysteinn heitir hann og eftir smá umhugsun sagðist hann hafa lausnina og rendi lykil og svarf til rest með slípirokk og svo var hitað og tekið á því og árangurinn Lykillinn hélt og helvítið kom úr.
á morgun verður dundað að skrúfa aðra þrengingu í og úr með olíu og þrifum og endað með að setja feiti á þrenginguna sem á að nota
Set hér mynd af master lykli
