Hann byrjaði á að við feðgar borðuðum morgunmat og fórum svo í göngutúr þar sem málefni líðandi stundar voru rædd í þaula.
Sýðan lá leiðin inn í skúr að þrífa og forma riffil hylki sem fór þannig fram að ég þreif háls rétti syni mínum hylkið sem kendi svo pabba sýnum rest.
Sko pabbi þú gerir svona dududu í grafítið setur svo varlega hérna og togar svo handfangið varlega niður og sko sástu þetta datt og þá á að lyfta upp aftur og hérna nú mátt þú snúa í gatinu (þrífa hvellettusætið) og þetta var ebdurtekið 50 sinnum með sömu kennslu

Síðan var tekin pása og pabbinn fór á smá vargaveiðar til kl 17 þá fórum við feðgar aftur út í skúr að hamfletta stokkönd sem tekin hafði verin úr frystinum morgunin áður og sagði hann mér til verka að sjálfsögðu. Hvernig ætti að gera þetta allt og bætti við skáldaðari veiðisögu um hvernig hann kallaði inn öndina. Sem sagði ég er að koma ég er að koma og þá bara skaustu hana og hún var bara steindauð

Síðan var farið inn og ég setti bringur og hjarta í hunangs og aprikósumarmelaði bað.
Létt steikti svo og setti síðan í ofn og út úr ofni eftir kúnstarinnar reglum.
Síðan var öðrum bringuhlutanum skipt í tvent og skorin mjög þunt og sett inn í hamborgarabrauð með einhverju gúmmelaði og dugði hún í 2 andaborgara sem voru að sögn snáða ummm mjög ljúffengir.Pappinn var bara með andabringur og karteflur og grænmeti á sýnum disk en fannst líka maturinn ljúffengur

Síðan þegar pabbinn háttaði snáða þá sagði hann þessi frábæru orð.
Pabbi þetta var sko góður dagur og þegar ég verð stór ætla ég að vinna á sjúkrabíl og eiga riffilbysu.