Kiddi, að allt öðru.
Maggi, fyrirgefðu að ég skuli nota þráðinn þinn
Er hægt að nota 270 patronur til að hlaða fyrir 3006 í þær
Ég á fullt af Sako cal. 270 patronum og tengdasonur minn var að kaupa sér Howa í cal. 3006
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sæll Siggi.
Sé ekkert að því að necka .270 aftur upp í .30 cal bara spurning um hver lengdinn verður á hylkinu?
Annars eru rakvélar stórlega ofmetinn verkfæri
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Það er ekkert mál Siggi ! Fyrst þarftu að renna aðeins af hálsinum af 270 hylkinu í trimmaranum....270 er 64.5mm af lengd en 30-06 er 63.35, þannig að þú þarft að stytta 270 hylkið um sirka einn millimeter áður en þú rennir hylkinu í 30-06 full sizer diann.
Nb. Það er mun auðveldara að nota 270 hylki sem búið er að skjóta úr, annars gætu þau verið þröng í 30-06 diann !
Það er ekkert mál að nota 270 hylkin en betra samt að afglóða fyrst annars er hætt við að einhverjir hálsar rifni.Eg get afglóðað fyrir þig ef þú vilt.