Val á kúlu fyrir hreindýr
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Sæll Gylfi.
Ég var sömu skoðunnar og þú varðandi Lapua Scenar kúlurnar en rauninn er sú að þær eru veiðikúlur, svokallaðar "Hunting Match" kúlur.
Mér skilst að UST hafi samþykkt þær sem slíkar eftir að hafa fengið upplýsingar um uppbyggingu og eiginleika kúlurnar frá Lapua.
Lapua hefur hins vegar forðast að auglýsa kúlurnar sem "veiðikúlur" þar sem lang stærsti viðskiftamannahópurinn eru pappaskyttur og þeir eiga það til að vantreysta kúlum sem tengdar eru við veiði.
Sjálfur hef ég reyndar einungis notað Barnes TSX kúlur á hreindýr þar sem mér er illa við að fá matinn minn blýkryddaðann en hef notað Scenar mikið á pappír og líkað vel, enda mjög nákvæmar.
Hér er skotæfing frá því í fyrra. "300m hreindýraskotpróf" skotið með GRS Stiller, cal. 6,5x47 og 123 grs Lapua Scenar kúlu.
https://www.youtube.com/watch?v=hogKB-9uVeU
JAK.........sem ætlar að halda sig áfram við hreinan kopar.

JAK
Jóhann A. Kristjánsson
Jóhann A. Kristjánsson
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Flott video, og flott skotið. 6,5x47 er magnað hylki.
Varðandi það sem Siggi segir; þá hefði ég nu liklega lent i því sama með annað kal og léttari kúlu. Málið var það, að tarfurinn dottaði, og hneigði hausinn óreglulega, þannig að það varð að skjóta á hárréttu augnabliki, á svona færi (220m) Ætla að draga það stórlega i efa að hreindyr hefði farið langt eftir að hafa fengið 165 grs Nosler bt á 3130 ft hraða úr 300 wm. i gegnum hálsinn. Það er td sami hraði og er á 120 nosler ur 6,5x284. Skelli kannski inn myndum fljótlega af þessum tarfi, og skotsárinu... og þó Það var ekki fallegt, og alveg makalaust að dyrið skyldi standa upp eftir skotið. Það lafði allt hálstauið eins og það lagði sig, út um skotsárið.
VArðandi hraðann, þá heldur hann sér býsna vel á kúlu úr 300 wm. Siggi, þá mátt ekki ætla að hraðinn á 100 grs kúlu sé 3500 ft á 220 m færi. Hann er liklega ekki ósvipaður og á 165 grs kúlunni á sama færi

Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
-
- Posts: 285
- Joined: 11 May 2013 21:37
- Fullt nafn: Jens Jónsson
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Siggi er engin hætta ef svona kúlu er skotið á bógsvæðið að hún springi of snemma og særi bara dýrið í staðinn fyrir að drepa það t.d ef skotið er á mjög stuttu færi?Veiðimeistarinn wrote: vegna þess að lítil kúla um 100 gr. á góðum hraða um 3500 fet virkar eins og handsprengja þegar hún er komin 1 tommu inn í hold dýrsins.
Jens Jónsson
Akureyri
Akureyri
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Hérna er þónokkur umræða um Lapua Scenar sem veiðikúlu: http://www.24hourcampfire.com/ubbthread ... stics_of_t
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Hér er tiltölulega saklaus mynd af umræddum tarfi. Held að ég hefði aldrei þurft að óttast einhvern eltingaleik við hann. Sést sæmilega gumsið sem lafir út um hálsinn á dýrinu.
- Attachments
-
- tarfur.jpg (38.32 KiB) Viewed 6111 times
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Þetta er afgangurinn af 165 grs Nosle bt.Þetta sat eftir i holdrosa við útgat á tarfi sem skotinn var á 302 m færi með sama riffli. Kápan úr 165 grs Nosler bt situr eftirn en kjarninn small í hlíðar Búlandstindsins (: Hef séð fleiri svona tilfelli með þessa kúlu. Þ.e. kápan situr eftir í holdrosa við útgat, en kjarni kúlunnar fer í gegn, og út i buskann
- Attachments
-
- P8240001.jpg (30.46 KiB) Viewed 6109 times
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Jenni, nei það er engin hætta með 100 gr. kúluna í 6,5, hún gerir sitt gagn, jafnvel þó hún komi á dýrið þar sem bógurinn er þykkastur, hún mjölbrytur alla vega bógbeinið ef hún hittir í það og það dýr fer ekki langt svona fyrsta kastið, en kjötskemmdir eru miklar, bógurinn nær ónytur!
Ég hef hins vegar séð 70 gr. 6 mm. Nosler bt. kúlu gera bara smá hreiður í bóginn og tarfurinn var valla haltur eftir.
Gylfi, ég hef þurft að elta svona skotið dýr ansi langt, það er mesta furða hvað þau ber hratt yfir bara ef allir fætur eru heilir.
Ég held að kjarninn úr kúlunni fari ekki í gegn, nema að litlu leiti, hann verður að svona nokkurskonar sandkornum inni í dýrinu eftir að plastoddurinn fer úr kúlunni og hún splundrast.
Gylfi viltu senda mér betri mynd af sárinu á tölvupósti ??

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Jújú Siggi minn. Kjarninn fór i gegnum dýrið, og hefur alltaf gert í öll skipti sem ég hef notað 300 Wm á hreindýr. Kápan situr eftir í holdrosanum við útgat. Hef ekki fleiri myndir þar sem ég er staddur uti á sjó.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
-
- Posts: 285
- Joined: 11 May 2013 21:37
- Fullt nafn: Jens Jónsson
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Ég rakst á þessa formúlu til að reikna út þyngd á dýri sem kúla á að geta drepið miða við hraða kúlunni þegar hún lendir í dýrinu á flakki mínu um órafjarivíu í Ameríkuhreppi á internetinu, hvernig er það Siggi hefur ekkert kennt þeim um notkun á léttum og hraðfleygum kúlum, þeir virðast ekkert vera neitt sérstaklega hrifnir af þeim við veiðar á stærri dýrum.
OGW Optimal Game weight
OGW = Hraðinn3 x kúluþyngd2 x 1.5E-12
http://firearmshistory.blogspot.de/2012 ... eness.html
168gr Berger kúlan sem ég er að skjóta úr Cal 284 er komin niður í 1814 fps eftir 740 metra
OGW = 18143 x 1682 x 0,0000000000015 = 252 pund eða 114 kg
Hún er komin í 2164 fps eftir 480 metra OGW = 429 pund eða 194 kg
Eftir 220 metra er hún á 2550 fps þá er OGW = 700 pund eða 317 kg
Fyrir Cal 308 Scenar 155 gr kúluna með upphafs hraða 2750 fps (þetta er nú frekar lítill hraði gæti alveg verið meiri en ég er að skjóta á þessum hraða núna svo ég læt það standa)
hún komin í 1824 fps eftir 480 metra OGW = 218 pund 98 kg (kannski meðal tarf en líklega bara belju)
Og við 220 metra þá er hún á 2301 fps þá er OGW = 439 pund eða 199 kg
Fyrir Gylfa með 300 WM Nosler 165 gr hraði 3150 fps
Hún er komin í 2110 eftir 480 metra OGW = 383 pund eða 173 kg
Og við 220 metra þá er hún á 2640 fps OGW = 750 pund eða 340 kg (sennilega nóg að hitta í nágreninu)
Fyrir riffilinn hjá Veiðimeistaranum cal 6,5x284 miða við forsendur sem ég hef séð annað slagið
Kúla Hornady 95 gr Vmax upphafshraði 3500 fps
Hún er kominn í 2160 fps eftir 480 metra OGW = 136 pund eða 61 kg (Ég er alveg hissa á þeim þarna í Ameríkuhreppi þetta er rétt rúmlega nóg til að sálga kétti)
Og við 220 metra þá er hún á 2852 fps OGW = 314 pund eða 142 kg
Við 300 metra þá er hún á 2627 fps OGW = 245 pund eða 111 kg (þetta er alveg á mörkunum)
Það er alveg spurning hvort eftirlitsmaður þurfi ekki að vera með kúlu í rifflinum með að minnstakost svipaða sálgunargetu og Cal 308 eða skipta yfir í það ágæta caliber.

- Björn R.
- Posts: 105
- Joined: 10 Feb 2013 19:10
- Fullt nafn: Björn Jensson
- Location: Reykjavík
- Contact:
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Forvitnilegar tölur og sjálfsagt fullt mark takandi á þeim. Það er þó eitt við tölur frá USA. Þeim hættir til að stækka of mikið það sem þarf að stækka og minnka of mikið er fara þarf varlega að þeirra mati. Til dæmis bera fullvaxnir amerískir pickup bílar mun meira en gefið er upp. Þannig að ég hugsa að Sigurður hafi líka eitthvað til síns máls. Þótt hann með alla sína reynslu hafi tapað fyrir konu í skotkeppni hér um árið
(sorry ég bara varð
) þá held ég að hann sé alveg á réttu róli með sitt hraða og þá sennilega flata kaliber.
Svo er annað og það hefur títtnefndur Sigurður einnig sagt, að hraðinn drepur. Gott og vel. Kyrrstæð kúla er sennilega sjaldan til vandræða en ég hef aldrei heyrt um kaliber sem ekki hefur nægan hraða til að drepa
Svo er þetta auðvitað spurning um hvernig kúlan heldur hraðanum þegar hún er komin vel áleiðis.
Þá er ónefnt að Siggi hefur talað um ef ég man rétt að 150grs kúlur séu overkill. Ég veit ekkert um það en ef 100grs er löglegt þá er sennilega hægt að fara mun neðar en það. Sennilega er hægt að nota .22 ef færið er nógu stutt. Sjálfur mun ég líklega aldrei fara niður fyrir .308 og 150gr. Það er nú bara þannig að maður notar það sem maður þekkir þótt til sé fullt af öðru fínu dóti líka. Ætli niðurstaðan hjá mér þennan morgunninn sé ekki bara að tölurnar hans Jenna og viskan hans Sigurðar sé bæði rétt

Björn Róbert Jensson
bjorn(hja)stopp.is
618-3575
bjorn(hja)stopp.is
618-3575
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Jæja Siggi.
Nú sýnist mér að ég þurfi að sýna þér hvernig 284 hagar sér á hreindýraveiðum, ala Jenni Jóns. Við gætum nú tekið fáeinar prufur í leiðinni til að athuga hvort þessi reiknigeim að ofan standi undir nafni. . .
Gugga með Vaðbrekkuprikið og síðan teljum við niður... án vandræða.
Heyri í þér fljótlega.

Sindri Karl Sigurðsson
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Það kom á daginn að við félagarnir fengum báðir dýr. Líklegasta niðurstaðan á kúluvali verður 130 grn Barnes TTSX í .270 og sama tegund í 25-06
Brynjar Magnússon
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Til lukku með dýrið 130 fer býsna hratt og flatt í 270 

Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Brynjar til hamingju.
Á hvaða svæði fenguð þið leyfi?
Ég mundi nú nota 100gr kúlu í 2506!
Sindri, við verðum góð saman með 284 í öllum regnbogans gerðum, spurning með stertin hans Hemma
Björn, mæl þú manna heilastur!
Jenni, þeir eru nú frægir fyrir sitt overkill þarna í Ameríkuhreppi, ég tek lítið mark á þeim
Ég er nú heldur ekki mikið fyrir töflureiknistokks veiðimennsku, reynslan er miklu haldbetri.
Ég er alveg að verða búinn að fá nóg af þessu exelþjóðfélagi sem við lifum í
Á hvaða svæði fenguð þið leyfi?
Ég mundi nú nota 100gr kúlu í 2506!
Sindri, við verðum góð saman með 284 í öllum regnbogans gerðum, spurning með stertin hans Hemma

Björn, mæl þú manna heilastur!
Jenni, þeir eru nú frægir fyrir sitt overkill þarna í Ameríkuhreppi, ég tek lítið mark á þeim

Ég er nú heldur ekki mikið fyrir töflureiknistokks veiðimennsku, reynslan er miklu haldbetri.
Ég er alveg að verða búinn að fá nóg af þessu exelþjóðfélagi sem við lifum í

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Takk félagar. Við sóttum um og fengum á svæði 8. Ákváðum að spila á betri líkur. Spurning um að heyra í Snorra bróður þínum, Siggi, er hann kominn með leiðsöguréttindi? Ég er nú ekki sá með 25-06 en ég bara man ekki hvort það er 100 eða 110 graina kúla hjá honum. Samskonar rifflar.
Svakalega eru tarfarnir ásetnir núna á 1 og 2.
Svakalega eru tarfarnir ásetnir núna á 1 og 2.
Brynjar Magnússon
- Sveinbjörn
- Posts: 251
- Joined: 17 Jun 2012 23:49
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Það verður væntanlega 2506 sem verður valinn í hreindýraveiði hjá mér. Svo koma betri dagar með hækkandi sól til skotæfinga.
Á síðasta ári hætti ég að telja þegar kominn voru 500 skot í gegnum Sauer hlaupið og svo fór eitt í lunga á mínu dýri.
Vissulega hafði ég velt því fyrir mér að skjóta í haus eða banakringlu og ég veit að ég og mínar græjur eiga að geta það.
Þrátt fyrir þá snilli Stefáns leiðsögumans að skaffa góðan stein og hæfilegt færi. því var aðstaða með allrabesta móti lét ég það ógert að skjóta á höfuð.
Það er talsverður munur á því að skjóta á pappa eða vera í spennu og með hærri hjartslátt en flesta aðra daga.
Ég stefni að því að nota kúlu úr einsleitu efni og eða Hornady Interbond kúlu.Ég ekki viss um að þær opni sig nægilega í hálsi eða höfði.
því geri ég ráð fyrir öðrum 500 skotum í æfingar fyrir næsta lungnaskot.

Bestu kveðjur
Sveinbjörn Guðmundsson
Sveinbjörn Guðmundsson
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Brynjar, ég er með réttindi á svæði 8.
Snorri er ekki kominn með réttindi.
Snorri er ekki kominn með réttindi.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Auðvitað skaustu á lugnasvæðið fyrst þú hafðir möguleika á því. Hausskot er alltaf neyðarúrræði og þá helst ef fell þarf sært dýr. Ég reikna með að Stefán leiðsögumaður hefði ekki verið sáttu er þú hefði skotið dýrið í hausinn. Við erum allir með græjur sem eiga að ráða við að skjóta hreindýr í augað á 200 metra færi, það er bara ekki best leiðin til að fella dýrið. Það sem getur klikkað mun klikka og það sem hefur aldrei gerst getur alltaf gerst aftur.Sveinbjörn wrote:Það verður væntanlega 2506 sem verður valinn í hreindýraveiði hjá mér. Svo koma betri dagar með hækkandi sól til skotæfinga.
Á síðasta ári hætti ég að telja þegar kominn voru 500 skot í gegnum Sauer hlaupið og svo fór eitt í lunga á mínu dýri.
Vissulega hafði ég velt því fyrir mér að skjóta í haus eða banakringlu og ég veit að ég og mínar græjur eiga að geta það.
Þrátt fyrir þá snilli Stefáns leiðsögumans að skaffa góðan stein og hæfilegt færi. því var aðstaða með allrabesta móti lét ég það ógert að skjóta á höfuð.
Það er talsverður munur á því að skjóta á pappa eða vera í spennu og með hærri hjartslátt en flesta aðra daga.
Ég stefni að því að nota kúlu úr einsleitu efni og eða Hornady Interbond kúlu.Ég ekki viss um að þær opni sig nægilega í hálsi eða höfði.
því geri ég ráð fyrir öðrum 500 skotum í æfingar fyrir næsta lungnaskot.
Góður veiðimaður lætur því bráðina njóta vafans og fellir dýrið á eins öruggan hátt og mögulegt er.
Ég hef séð veiðimann skjóta Interbond kúlunni (cal. 270) í herðablað á hreindýri. Það kom gat á herðablaðið og fram fremsti hlutinn af fille-inu var ónýtur. Tarfurinn hljóp inn í miðjan hóp og hélt sig þar. Hann hélt svo ekki í við hópinn þegar hann fór og náðist skömmu síðar.
Ég mæli með 100 graina Sierra SBT í 25-06, ég hef notað þær í nokkur ár á hreindýr og aldrei lent í veseni.
-
- Posts: 285
- Joined: 11 May 2013 21:37
- Fullt nafn: Jens Jónsson
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Ég vil benda á að útreikningarnir sem ég gerði hér að fyrr í þræðinum eru eingöngu til viðmiðunar og ber að líta á þá sem slíka,
“It should be noted that most scientific theories/models regarding bullet lethality including this one I´m presenting are officially contested by someone, somewhere. Because of the many variables involved in lethality and the role of shot placement and the animal´s internal composition and health, exc. It is very hard to establish uncontested universal truths about exactly how bullets kill. In other words, lethality is not an exact science. However this is only model and as such, it doesn’t have to be 100% technically right in order to be useful.”
“Consider the generations of people that navigated by the stars with the assumption that the earth was flat and at the center of the universe. Their model was technically flawed but most of those people still got where they were going “
Höf. Brian Litz.
þeir koma alls ekki í staðinn fyrir yfirgrips mikla þekkingu Sigga Veiðimeistara og standa reynslu hans örugglega langt að baki þegar kemur að hreindýraveiðum.
þetta er að sjálfsögðu bara grín og fylgir því engin alvara.

Excel kom hvergi nærri þessum útreikningum, ég er alveg sammála því að Excel samfélag er ekki spennandi.Veiðimeistarinn wrote:Ég er alveg að verða búinn að fá nóg af þessu exelþjóðfélagi sem við lifum í
þetta er að sjálfsögðu bara grín og fylgir því engin alvara.
Það yrði verulegur skortur á umræðuefni ef allir væru með sama caliberið, sem væri þá væntanlega 308Jenni Jóns wrote:Það er alveg spurning hvort eftirlitsmaður þurfi ekki að vera með kúlu í rifflinum með að minnstakost svipaða sálgunargetu og Cal 308 eða skipta yfir í það ágæta caliber.

Jens Jónsson
Akureyri
Akureyri
Re: Val á kúlu fyrir hreindýr
Í frammhaldi af þessari ágætu umræðu hérna. Fyrir þá sem hafa áhuga
Við mágur minn prófum að skjóta ballistic gel með 6,5mm Lapua Scenar L 136 grain úr 6,5x55 og 6mm Lapua Scenar 105 grain úr 6XC.... þetta lýtur bara ágætlega út. Við vorum með einhverjar veiðikúlu líka (Sierra minnir mig í 6XC hjá mági mínum) en það klikkaði eitthvað að taka mynd af þessu til samanburðar. Satt að segja þá leit þetta mjög svipað út nema veiðikúlan opnaðist aðeins fyrr. Scenar kúlan virðist fara aðeins inn áður en hún fer að opnast. Myndin sýnir kubbin eftir 6,5x55... kubburinn hallaði aðeins þessvegna fór kúlan út ofarlega.