Figt kvöldsins

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Figt kvöldsins

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Smá tilrauna starfsemi, á eflaust eftir að slá öllu öðru við flatara, hraðara og hár nákvæmt auk þess sem feilskot og óhittni verða algjörlega óþekkt fyrirbæri. :roll: ekkert nema 10ur og x
Attachments
Nýtt.jpg
Nýtt.jpg (17.21 KiB) Viewed 11151 times
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
User avatar
petrolhead
Posts: 346
Joined: 08 Aug 2012 08:31
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Location: Akureyri

Re: Figt kvöldsins

Unread post by petrolhead »

Félagi Aflabrestur; ég tel að hér hafir þú hitt algerlega naglann á höfuðið :ugeek: . Frá þessari marg rómuðu kúlu kemur konungleiki, góður flugstuðull og mikil nákvæmni. Frá hylkinu kemur svo mikill hraði og flatur ferill svo það er mín trú að hér sért þú kominn með genatískt hið albesta cal. sem völ er á og það eigi eftir að skúbba allri samkeppni út af borðinu....og skífunum :mrgreen:

MBK
Gæi
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Figt kvöldsins

Unread post by sindrisig »

Merkilegur andskoti að það kemur hvergi fram hvaða kúla þetta er og hvað þá cal. Er þetta svona þraut eða þannig?

kv
Sindri Karl Sigurðsson
User avatar
baikal
Posts: 33
Joined: 16 Jul 2010 23:17
Fullt nafn: Einar Stefánsson
Location: Skagafjörður
Contact:

Re: Figt kvöldsins

Unread post by baikal »

Sælir félagar.
:twisted: er ekki bresturinn að vísa í 6.5 Creedmoor græjuna sem er á leiðinni til hans :D
eins og oft hefur komið fram hér á spjallinu, :?: spurningin er græjan komin á klakan :o
Kveðja úr Skagafirði.
Einar Stefánsson.
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Figt kvöldsins

Unread post by gylfisig »

Er þetta ekki bara 308 win með 10 grs " Ballester tip " kúlu :D
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Figt kvöldsins

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Það er spurning? það mætti kænski gera úr þessu getraun 8-) fyrst Gæi orðaði þetta svona skemmtilega en svarið kemur framm hjá honum ef menn hugsa málið.
Sumir vita að vísu meir en aðrir :twisted: (Guðmann þegi þú) :evil: .
OK hvaða kúla og hvaða hylki er um að ræða? þetta tvennt á oftast ekki samleið :mrgreen:
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
User avatar
baikal
Posts: 33
Joined: 16 Jul 2010 23:17
Fullt nafn: Einar Stefánsson
Location: Skagafjörður
Contact:

Re: Figt kvöldsins

Unread post by baikal »

Satt segir þú Gylfi,
:shock: brestinum gæti hafa dottið í hug að renna sápukúlu í 308 til
að fá meiri hraða :arrow: :mrgreen:
Kveðja úr Skagafirði.
Einar Stefánsson.
User avatar
petrolhead
Posts: 346
Joined: 08 Aug 2012 08:31
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Location: Akureyri

Re: Figt kvöldsins

Unread post by petrolhead »

Úr því að það er minnst á þetta cal. þá verð ég nú að setja hér inn mynd af 6,5 Creedmoor, þá hægt að fara að rannsaka lögun baukanna og bera saman :ugeek:

MBK
Gæi
Attachments
65creed01.png
65creed01.png (16.85 KiB) Viewed 11014 times
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Figt kvöldsins

Unread post by karlguðna »

ég giska á 308 og norma oryx :?
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
Jenni Jóns
Posts: 285
Joined: 11 May 2013 21:37
Fullt nafn: Jens Jónsson

Re: Figt kvöldsins

Unread post by Jenni Jóns »

Cal 308 win
kúla Lapua Scenar 220 grs :) (ég mynd allavega telja það fikt)
Jens Jónsson
Akureyri
User avatar
petrolhead
Posts: 346
Joined: 08 Aug 2012 08:31
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Location: Akureyri

Re: Figt kvöldsins

Unread post by petrolhead »

Sælir félagar.

308.....er það ekki eitthvað sem kastar kartöflum :lol:

Mig minnir að ég hafi látið frá mér fara þessi orð " Frá hylkinu kemur svo mikill hraði og flatur ferill" í minni túlkun er mikill hraði 3500- 4000 fps :twisted: og ég minnist þess nú ekki að hafa séð þann hraða neins staðar tengdan 308 hylkinu, nema þá þegar er búið að nekka það niður í 6mm og gefa nafnið 243, en amk. er hér ekki um hið ágæta hylki 308 að ræða.

MBK
Gæi
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
Jenni Jóns
Posts: 285
Joined: 11 May 2013 21:37
Fullt nafn: Jens Jónsson

Re: Figt kvöldsins

Unread post by Jenni Jóns »

Alltaf gaman að þessu :D :D :D
petrolhead wrote:308.....er það ekki eitthvað sem kastar kartöflum
Og þessu
petrolhead wrote:í minni túlkun er mikill hraði 3500- 4000 fps og ég minnist þess nú ekki að hafa séð þann hraða neins staðar tengdan 308 hylkinu,
þú hefur kannski aldrei skoðað neitt um hið ágæta hylki 308 win og því rétt að benda þér á hið hávísindalega rit Reloading Guide for Centerfire Cartridges frá VihtaVuori Bls 36 í útgáfu 11 (sennilega flestum útgáfum) á fyrstu línuna í hleðslutöflunni
og reyndar í netútgáfunni líka
http://www.vihtavuori.com/en/reloading- ... ester.html
Jens Jónsson
Akureyri
User avatar
petrolhead
Posts: 346
Joined: 08 Aug 2012 08:31
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Location: Akureyri

Re: Figt kvöldsins

Unread post by petrolhead »

Heill og sæll Jenni.

Ég get nú víst ekki þrætt fyrir það að hafa ofurlítið gluggað í tölur yfir .308 :oops: og get þá játað í leiðinni að hafa velt fyrir mér að fá mér riffil í því cal. og reyndar á ég trúlega eftir að fá mér einn slíkan, svona þegar ég er orðinn gamall og hægfara svo ég og riffill verðum í stíl :lol: :lol: :lol:

En þessa tölu hafði ég ekki séð en langar núna mikið að sjá þessa kúlu sem um ræðir, 57gn í .30 cal. hlýtur að vera eins og Rosanne Barr í laginu :lol:

Ég renndi nú yfir töfluna sem þú sendir mér og sé nú ekki betur en þessi fyrsta lína sé bara undantekningin sem sannar regluna :twisted: amk. held ég að það sé klárt að .308 er ekki "þekkt" fyrir að vera hratt og flatt eins og það hylki sem félagi Aflabrestur er með á myndinni.

MBK
Gæi
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
johann
Posts: 95
Joined: 18 Jul 2012 08:48

Re: Figt kvöldsins

Unread post by johann »

Ég myndi giska á 7mm-08
-----
Jóhann Þórir Jóhannsson - SFK
Jenni Jóns
Posts: 285
Joined: 11 May 2013 21:37
Fullt nafn: Jens Jónsson

Re: Figt kvöldsins

Unread post by Jenni Jóns »

petrolhead wrote:held ég að það sé klárt að .308 er ekki "þekkt" fyrir að vera hratt og flatt eins og það hylki sem félagi Aflabrestur er með á myndinni.
Það er ekkert ólíklegt að þú hafir rétt fyrir þér hvað það varðar.

Oftast verð nú samt "hröðu og flötu" ferlarnir töluvert bognir í endann ef færin lengjast og því fannst mér tilvalið að benda á kúlu úr 308 sem hefur hraðan og flatann feril út á 50 metra :D :D :D

Varla eru menn að tala um 7-08 því það er ekkert hraðara en 308
Og hylkið er tæplega nógu langt til að tilheyra 06 fjölskyldunni.

Ég held að kúlan sé Lapua Scenar en átta mig ekki á hylkinu
Jens Jónsson
Akureyri
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Figt kvöldsins

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Það er náttúrulega bara ein leið til að koma letingja eins og 308 úr sporunum og það er að hlaða hann með einhverjum sandkornum, ég tek undir með Gæa mér þætti gamann að sjá 57gn kúlu í .30 cal hun væri í verri hlutföllum en ég :oops:
Annars reyndi Remington sjálfur fyrir margt löngu að koma 308 úr sporunum með 55gn .22 cal kúlu (sjá mynd) hver nákvæmnin var get ég rétt ýmyndað mér, 308 og þetta hel....... eeeeennnn þessi óskapnaður fór í 4000 fet + :shock: þetta er kænski meira svona þrjúhundruð og hálfátta :lol:
Sumir eru á réttri leið aðrir ekki, en eitt er ljóst að 308 eða þess afkvæmi eignast ég ALDREI einu möuleikarnir væru KÆNSKI Browning BLR eða Sako Finnwolf.
En smá hint rétt kúlan er scenar og hylkið er oft kennt við villimann.
Attachments
þrjúhundruð og hálfátta.jpg
þrjúhundruð og hálfátta.jpg (30.85 KiB) Viewed 10740 times
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Sveinn
Posts: 166
Joined: 07 May 2012 20:58

Re: Figt kvöldsins

Unread post by Sveinn »

300 Savage með Lapua Scenar?
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Figt kvöldsins

Unread post by Aflabrestur »

Menn eru að hitna ;)
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Sveinn
Posts: 166
Joined: 07 May 2012 20:58

Re: Figt kvöldsins

Unread post by Sveinn »

300 Savage með 150 eða 180 gr Rem Core-Lokt? :)
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Figt kvöldsins

Unread post by Aflabrestur »

Kólnar! hint: mínus 50
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Post Reply