Já þetta er hálf þurrt, þrátt fyrir úrhellið hér fyrir utan.
En ég get þó frætt menn um að það voru felldir tveir tarfar í Seldal á svæði 5 í nótt og voru veiðimenn frekar sáttir um 6 leytið komnir með dýrin niður að fararskjótunum.
Annars er ég sjálfur ekki að fara á veiðar fyrr en um miðjan ágúst, þannig að mín saga verður að bíða.
Veiðimeistarinn er í fullri vinnu á sjóstangveiðimóti Sjónes og fer ekki í efra fyrr en líða tekur á mánuðinn, að hans sögn.
Rétt er það hjá þér Sveinbjörn að það hefur verið sama lognið hér á spjallinu og veðrinu það sem af er sumri, en ég hef nú fulla trú á að veiðimeistarinn standi sig í stykkinu og sendi okkur hreindýrafréttir þegar hann er hættur að dorga svo við bíðum bara fullir eftirvæntingar
MBK
Gæi
Garðar Tryggvason Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
Það er svo langt í að ég fari til hreindýraveiða að mig bráðvantar að fá veiðifréttir til að halda hleðslunni. Þetta er alltof rólegt en það er svo sem lítið liðið á tímabilið. Veiðimeistarinn hefur síðustu ár haldið úti skemmtilegasta þræðinum og vona ég að hann haldi því áfram.
Já, já.
Ég er kominn af sjóstangveiðimóti Sjónes, búin að vera á haus í hreindýraleiðsögn og rigningu.
Ennnnnnn, jú það fara að flæða yfir myndir frá mér, þegar ég hef tíma, sem vonandi verður óðara !
Attachments
Vaknaður og sestur við tölvuna, þá fer vonandi eitthvað að gerast.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is