6,5 scener 123

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Stefán I
Posts: 7
Joined: 14 May 2012 22:06

6,5 scener 123

Unread post by Stefán I »

Sælir

eigið þið góða hleðslu fyrir mig í tikka 6,5x55 ?

kv.stefán i
Stefán Ingi Ólafsson
Borgarnesi
Benni
Posts: 122
Joined: 16 Feb 2012 09:33
Fullt nafn: Benjamín Þorsteinsson
Location: Húsavík

Re: 6,5 scener 123

Unread post by Benni »

Sæll Stefán í minn 6,5x55 var ég með 47gr af N-160 bakvið þessa kúlu í Lapua hylkjum og kom það best út, náði ekki að koma henni fram í rílur svo ég notaði magasín max lengd!

ATH þessi hleðsla er yfir MAX skv bókinni en var í lagi í minn riffil
Maggi
Posts: 26
Joined: 22 Feb 2012 20:34

Re: 6,5 scener 123

Unread post by Maggi »

45grs af N550 kom best út í mínum 6.5x55 riffli

kv
Maggi
Magnús Blöndahl Kjartansson
Stefán I
Posts: 7
Joined: 14 May 2012 22:06

Re: 6,5 scener 123

Unread post by Stefán I »

sælir
ég á bæði 550 og 560 púður. hef verið að hlaða 120 gr nosler bt með 560 50,5gr
en langar að prufa scener 123.
hvaða leingd hvfið þið verið með á þessu hjá ykkur

takk takk
stefán i
Stefán Ingi Ólafsson
Borgarnesi
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: 6,5 scener 123

Unread post by gylfisig »

Þetta hef ég hlaðið í Tikka í cal 6,5x55

Púður. N- 160
KÚLA. 123 SCENAR
PRIMER. CCI
HYLKI lapua.
HLEÐSLA 46,0 GRS
OAL: 78,8MM


HLEÐSLA NR, 2
KÚLA 120 GRS Sierra Pro-hunter
HLEÐSLA 47,5 GRS

Athugið að það er hæpið að miða við heildarlengd hjá öðrum , nema að því tilskyldu að sami reamer hafi verið notaður við chamberingu.
Manualinn virðist gefa upp nokkuð vægar hleðslur fyrir þetta hylki. Ég hef hlaðið alveg upp í 49 grs. með N-160 við 120 grs Nosler og fengið mjög ásættanlega nákvæmni upp undir , og við 49 grs.
Einnig talsvert heita með Lapua scenar 123 grs og N-160.
Að sjálfsögðu... og það er aldrei nógu vel hamrað á því: BYRJIÐ SAMT ALLTAF NEÐAR EN MAX Í BÓK !!!
Síðan er best að vinna sig upp með hleðslurnar.
Ágætt að hlaða þrjú hylki með sömu hleðslu, og fikra sig upp.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Stefán I
Posts: 7
Joined: 14 May 2012 22:06

Re: 6,5 scener 123

Unread post by Stefán I »

sælir

Er mikill munur á 160 og 560 púðri?

kv.Stefán i
Stefán Ingi Ólafsson
Borgarnesi
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: 6,5 scener 123

Unread post by Gisminn »

Já mín reynsla ef ég er mikið búin að vera að prófa með 160 og ekki gengið hefur 560 leyst hlutina og öfugt.
Núna eins og þú hefur tekið eftir þá eru menn með misjafna hleðslu fyrir 120 noslerinn.
ég var með 49 grn af 160 og það var allt í lagi en svo lækkaði ég nniður í 48 grn og lagaði aðeins kúlusetninguna og ég hef ekki enn fengið bil milli gata miðað við 5 skot á 100.
eins nota ég 160 á 100 grn nosler Bt kúluna
og svo nota ég 560 á 140grn VLD
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: 6,5 scener 123

Unread post by Veiðimeistarinn »

Stefán I wrote:sælir

Er mikill munur á 160 og 560 púðri?

kv.Stefán i
Það er ekki mikill munur á þessu púðri að því er ég best man annað er aðeins meira hægbrennanlegt en hitt, er ekki alveg viss hvort er hægbrennanlegra, held samt að það sé 560
En þetta veit fullt af mönnum sem eru hérna inni og eru færari um að svara þessari spurningu á fræðlegri máta en ég get :geek:
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: 6,5 scener 123

Unread post by maggragg »

Stefán I wrote:sælir

Er mikill munur á 160 og 560 púðri?

kv.Stefán i

500 púðrin eru tveggja þátta púður en þau eru með nitro glyserini sem aukaefni. Hægt er að ná meir hraða með sama þrystingi með þessu púðri en þau brenna aðeins heitar en hefðbundnu 100 púðrin og því frekari á hlaupin. Í sumum tilfellum henta þau betur ef leitað er eftir aðeins meiri hraða.

Tekið úr VV bæklingnum:
"The N500 series powders are impregnated extruded rifle powders with Nitroglycerol added as extra energy component. If higher loading densities and more energy are needed, N500 series powders are competent alternatives for the N100 series powders. N500 series High Energy powders are available in five different burning rates"

Brunahraði er svipaður og sambærilegu 100 púðri en það er ekki hægt að skipta þeim út þar sem 500 púðrin eru þéttari, þ.e.a.s. það er meiri orka á grein en í 100 púðrunum.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Stefán I
Posts: 7
Joined: 14 May 2012 22:06

Re: 6,5 scener 123

Unread post by Stefán I »

sælir

Takk fyrir þetta Maggi :)

Kv.stefán i
Stefán Ingi Ólafsson
Borgarnesi
Benni
Posts: 122
Joined: 16 Feb 2012 09:33
Fullt nafn: Benjamín Þorsteinsson
Location: Húsavík

Re: 6,5 scener 123

Unread post by Benni »

Annað með 500 seríuna og öll tveggja basa púður er að þau eru viðkvæmari fyrir hitabreitingum en venjuleg púður.

Margir lent í því að græja hleðslu um veturinn í kanski 5 gráðu frosti og skjóta svo sömu hleðslu í 20 stiga hita um sumarið og allt í bullandi yfirþrístingi.

Hver kannast ekki við að skjóta 4 skotum í flotta grúppu og ætla svo að vanda sig svakalega í síðasta skotinu og gefa sér góðan tíma og svo endar skotið langt frá hinum(=
Skotið kanski búið að vera í skothúsinu í mínutu eða meira í kanski 40-60 gráðu hita meðan hin voru bara sekúndur í rifflinum.
Hitamunurinn í púðrinu milli skota er farinn að bæta töluvert í þrístinginn sem veldur annari ákomu og maður brjálaður að hafa eyðilagt flottu grúppuna haha
Stefán I
Posts: 7
Joined: 14 May 2012 22:06

Re: 6,5 scener 123

Unread post by Stefán I »

sælri

Eiga þá veiðimenn að vera bara með 100 púður?

kv.
stefán ingi
Stefán Ingi Ólafsson
Borgarnesi
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: 6,5 scener 123

Unread post by maggragg »

Reyndar halda VV því fram að N500 púðrin séu minna sensitív fyrir hita en N100 og N300 púðrin en það á við um flest púður að maður verður að gera ráð fyrir hitamuninum eins og Benni segir. Það má ekki búa til hleðslu í 10 gráðu frosti og ætlast til þess að hleðslan virki svo á hreindýraveiðum í +20 gráðum, þar sem hún getur verið jafnvel hættuleg. Aldrei nota hleðslur sem voru nálægt max í kulda. Þær fara yfir max í hita.

Þetta er annars tekið úr bókinn um N500 púðrin hjá VV.
Adding nitroglycerol to the traditional single base powder
makes possible in addition to geometry and coating a third
controlled variable of ballistic properties: energy content.
Vihtavuori calls powders which have nitroglycerol added
(maximum 25 %) high energy NC-powders, which form
N500 series.

The composition of a typical high energy powder is as follows:
• nitrocellulose • nitroglycerol
• coating agent • stabilizer
• flame reducing agent • wear reducing agent
Geometrically the powders in the N500 series are equal to
the N100 series. Although these new powders have a higher
energy content, they do not cause greater wear to the gun.
This is because the surface of the powder has been treated
with an agent designed to reduce barrel wear.
N500 series powders work well at different temperatures,
even better than the traditional N100 and N300 series.
Temperature sensitivity naturally depends very much on the
weapon and on the cartridge. The manufacturing technique
employed permits a very high bulk density, which in turn
makes it possible to use a bigger charge in a certain limited
loading volume.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: 6,5 scener 123

Unread post by maggragg »

Stefán I wrote:sælri

Eiga þá veiðimenn að vera bara með 100 púður?

kv.
stefán ingi
Nei ekki endilega, en maður verður að hafa hitastig í huga ávalt. Extreme púðrin frá Hodgon eiga að vera minna viðkvæm fyrir hitabreytingum en önnur. Þetta er eitthvað sem menn eiga ekki að hafa stórar áhyggjur af heldur vera meðvitaðir um.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Stefán I
Posts: 7
Joined: 14 May 2012 22:06

Re: 6,5 scener 123

Unread post by Stefán I »

Ok
held mig þá við 500
Stefán Ingi Ólafsson
Borgarnesi
Post Reply