Ein breyting varðar nýjan flokk sem er C-leyfi og er það til bóta að taka loftskammbyssur úr D leyfinu.
Svona hljóða greinarnar í nýjum vopnalögum
Það sem hefur svo sett strik í reikninginn er að Dómsmálaráðuneytið hefur ekki ennþá sett reglugerðina til að styðja við þessa breytingar og því hafa ekki verið gefinu út C leyfi ennþá og ekki hægt að sækja um. Og því hefur ekki verið hægt að sækja um D leyfi heldur. Þetta er virkilega bagalegt í íþróttastarfi eins og loftskammbyssu þar sem aukning er á iðkunn að þeir sem hafa æft, og keppt í skammbyssuskotfimi geta ekki ennþá eignast sína eigin íþróttabyssu þótt þeir hafi æfti og keppt í lengri tíma.Í C-flokk skotvopna falla loftskammbyssur. Ráðherra skal setja í reglugerð ákvæði um hvaða skotvopn falla þar undir.
Lögreglustjóra er heimilt að veita einstaklingi sem hefur skotvopnaleyfi og hefur verið virkur meðlimur í viðurkenndu skotfélagi í a.m.k. eitt ár skotvopnaréttindi C. Ráðherra er heimilt að setja skilyrði um námskeið og próf sem viðkomandi þarf að hafa lokið og skal ráðherra jafnframt setja í reglugerð ákvæði um skilyrði.
Einstaklingur sem er með skotvopnaréttindi C hefur heimild til að nota skotvopn sem falla í C-flokk til íþróttaiðkunar.
Lögreglustjóra er heimilt að veita einstaklingi með skotvopnaréttindi C leyfi til að eiga vopn í C-flokki til íþróttaiðkunar.
Í D-flokk skotvopna falla íþróttaskammbyssur og íþróttarifflar. Ráðherra skal setja í reglugerð ákvæði um hvaða skotvopn falla hér undir.
Lögreglustjóra er heimilt að veita einstaklingi skotvopnaréttindi D sem er með og hefur haft skotvopnaréttindi C í tvö ár þar á undan og hefur verið virkur meðlimur í viðurkenndu skotfélagi. Ráðherra er heimilt að setja skilyrði um námskeið og próf sem viðkomandi þarf að hafa lokið.
Einstaklingur sem er með skotvopnaréttindi D hefur heimild til að nota skotvopn sem falla í D-flokk til íþróttaiðkunar.
Lögreglustjóra er heimilt að veita einstaklingi með skotvopnaréttindi D leyfi til að eiga vopn í D-flokki til íþróttaiðkunar.
Vonandi fer reglugerð að líta dagsins ljós og í samráði við hagsmunaaðila.