Þetta er áhugaverð umræða. Ég get ekki verið hlutlægur í þessari umræðu þar sem ég er að vinna í að koma upp skotsvæði fyrir skotfélagið okkar og ég er ekki með hreindýr á þessu ár heldur.
Hvað verðið varðar þá myndi það kosta utanfélagsmann 1.000 kr. að fá að nota riffilbrautina á svæðinu en mér skilst að það sé lítið verð miðað við sum skotfélög. Þetta er verið fyrir þá þjónustu að nota brautina og er ein af fjáröflunarleiðum félagsins enda dýrt að koma upp skotæfingasvæði, sérstaklega í upphafi.
Að mínu mati er eðlilegt að félög rukki meira fyrir meiri þjónust eins og að menn fái aðgang að brautinni og svo prófdómara til að fara í gegnum prófið. Hversu mikið meira veit ég ekki samt.
Félagsgjöld og svo notkunnargjöld af aðstöðunni er helsta tekjulind skotfélagana og að sjálfsögðu vinna félagsmenn allt í sjálfboðavinnu í þágu félagsins. Núna eru fjórir prófdómarar hjá Skyttunum sem eru tilbúnir að fara á skotvöllinn til að fara í gegnum prófin með mönnunum og gera menn þetta af með glöðu geði m.a. í þágu félagsins því að við viljum jú geta boðið uppá betra skotsvæði og betri þjónustu.
Menn eru ekki sammála um þessi mál, það er á hreinu. Það eru mismunandi hagsmunir sem ráða. Þessar reglur voru setta á af UST og ráðherra og þeir ákváðu gjaldið en eins og Þorsteinn bendir á þá á það ekki að vera meira en rökstuddur kostnaður. Þetta er svolítið snúið.
Mér skilst að það kosti fyrir utanfélagsmann 2.500 kr. að nota riffilbrautina á álfsnesi. Það er þá rökstutt að það kostar minnst 2.500 að taka prófið. En þessi 2.500 kr. er aðeins fyrir riffilbrautinni. Er ekki eðlilegt að ef skotfélagið býður uppá meiri þjónustu en þessi 2.500 kr. eru fyrir að þá kosti það eitthvað meira? Væri það ósanngjarnt gagnvart öðrum sem ætla sér aðeins að notfæra sér riffilbrautarinnar án frekari þjónustu að borga það sama og þeir sem fá þessa auknu þjónustu ( ef þetta telst aukin þjónusta )? Það er allveg mögulegt að rökstyðja þetta verð á Álfsnesi.
En hvað með eins og hjá okkur og fleirrum skotfélögum úti á landi. Ef það kostar 1.000 kr að nota rifflibrautina, hvernig eru þessar auka 3.000 kr. rökstuddar? jú eitthvað fyrir aukna þjónustu en með hitt?
Þá kemur annað sjónarmið inn í þessar pælingar. Geta skotfélögin boðið mismunandi verð á þessu eins og þau vilja? Væri það ekki orðið mismunun eftir búsetu, þar sem mönnum er skylt að taka þetta próf fyrir ákveðinn tíma ef þeir ætla að skjóta á hreindýr. Það væri held ég ekki hægt að mismuna fólki á þann hátt. Að sá sem er staddur fyrir austan borgi kannski bara 2.500 kr. meðan sá sem býr í RVK borgi 4.500. Það myndi sennilega ekki standast jafnræðisregluna þar sem um opinbert gjald er að ræða.
Þetta er svona má innleg og hugleiðing inn í þessa umræðu en það er held ég erfitt að meta hvað er rökstuddur kostnaður. Það er jú ekki hægt að fara fram á það að félögin rukki minna fyrir þetta en þau rukka fyrir brautina öllu jöfnu, og svo er það mín skoðun að fyrir þetta aukna viðvik sé eðlilegt að þau taki aðeins meira, en hversu mikið væri eðlilegt veit ég ekki. En eins og ég segi er ég ekki hlutlægur í þessu enda í stjórn skotfélags sem er í erfiðasta fasanum akkurat núna við að setja flottasta skotsvæði landsins á laggirnar
