Fréttatilkynning frá stjórn SKOTVÍS - Verklegt skotpróf

Allt sem viðkemur hreindýrum
User avatar
Bowtech
Posts: 184
Joined: 11 Jan 2011 12:34
Fullt nafn: Indriði Ragnar Grétarsson
Location: Sauðárkrókur
Contact:

Fréttatilkynning frá stjórn SKOTVÍS - Verklegt skotpróf

Unread post by Bowtech »

Tekið af heimasíðu Skotvís. http://skotvis.is/index.php

Stjórn Skotveiðifélags Íslands – SKOTVÍS fagnar því að tekin er í gildi reglugerð og verklagsreglur sem lítur að verklagi skotprófs vegna hreindýraveiða, enda nálgast veiðitími hreindýra óðfluga og senn líður að 1. júlí sem er sú dagsetning sem hreindýraveiðimenn skulu hafa staðist verklegt skotpróf. Á síðustu dögum hafa prófdómarar frá hinum ýmsu skotfélögum fengið verklega kennslu og eru því skotfélögin hvert af öðru í stakk búinn að taka á móti veiðimönnum. Af gefnu tilefni vill SKOTVÍS koma eftirfarandi á framfæri til að skýra afstöðu félagsins til málsins:

Sjá nánar á heimasíðu Skotvís: http://skotvis.is/index.php
Kv
Indriði R. Grétarsson.
Bogaskytta Cal.308
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Fréttatilkynning frá stjórn SKOTVÍS - Verklegt skotpróf

Unread post by Gisminn »

Takk Indriði og í síðustu greinini er einmitt talað um það sem ég var að benda á og ég get ekki betur séð en að ég styðji hugmyndafræðina þarna heilshugar.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Fréttatilkynning frá stjórn SKOTVÍS - Verklegt skotpróf

Unread post by Aflabrestur »

sælir.
Þarna held ég að skotvís sé að "skjóta sig í fæturnar" þetta er opinber gjaldskrá sett af ráðuneyti og ef Skotvís er ósátt við hana ættu þeir að beina kröftum sínum að Umhverfisráðuneytinu ef þeir vilja vinna að hagsmunum veiðimanna í stað þess að vera að etja skotfélögum landsins samann. Plús það að vera að mælast til að próf séu haldinn út í móa ef ekki er til viðurkennd aðstaða.
þarna finnst mér skotvís hafa sett mjög mikið niður og því miður ekki í fyrsta skifti.
Eins gott að ég var ekki búinn að greiða árgjaldið í Skotvís þetta árið.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Post Reply