Blessaða skotprófið.
Blessaða skotprófið.
Jæja, í dag fékk ég sent tölvubréf frá Umhverfisstofnun og var það um fyrirhugað skotpróf sem mér ber að standast áður en haldið skal til hreindýraveiða. Mér leikur forvitni á að vita hvort það sé leyfilegt að taka prófið á fleiri en einn riffil, hafði hugsað mér að taka tvo með mér austur og láta svo ráðast hvorn ég nota. Getur einhver svarað þessari vangaveltu minni?
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Re: Blessaða skotprófið.
Kæmi mér ekki á óvart að þú fengir 100% svar ef þú hefðir gert reply á mailið, en vonand færðu greinarbetri svör hér en þetta skææita comment mitt 

Kv. Árni Vigfús Magnússon
arni1980 (hjá) gmail.com
699 4569
arni1980 (hjá) gmail.com
699 4569
- Bowtech
- Posts: 184
- Joined: 11 Jan 2011 12:34
- Fullt nafn: Indriði Ragnar Grétarsson
- Location: Sauðárkrókur
- Contact:
Re: Blessaða skotprófið.
Eftir því sem mér skylst að þá er 1 próf = 1 riffill = 1 Gjald en ef þú ætlar með 2 riffla þá þarftu að taka 2 próf og því borga prófgjald fyrir hvern riffil.
En það er best að ath þetta hjá ust til staðfestingar..

Kv
Indriði R. Grétarsson.
Bogaskytta Cal.308
Indriði R. Grétarsson.
Bogaskytta Cal.308
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Blessaða skotprófið.
Hér er slóð á frétt hjá UST um verkleg skotpróf fyrir hreindýraveiðimenn og helstu verklagsreglur varðandi það
http://www.ust.is/einstaklingar/veidi/h ... veidimenn/
Hér er slóð á Lög um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum
http://www.althingi.is/lagas/nuna/1994064.html

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Blessaða skotprófið.
Í reglum UST um skotprófið stendur m.a.:
Ef skotprófið á að endurspegla raunveruleikann þá er þetta ferli ofar mínum skilningi.
Þar að auki mun létta hlaupið á mínum riffli hitna rækilega með 5 skot á 5 mín í þessu prófi enda tekur magasínið ekki nema 3 skot. Get ekki ímyndað mér neinar aðstæður heldur þar sem menn eru að dæla 5 skotum á hreindýrabráð á 5 mín. Myndi halda að menn hefðu 1 góðan séns til að fella, skot nr. 2 væri sennilega utan færis, nema að leiðsögumaður bregðist snöggt við.
Ég er ekki á móti prófinu en það á að spegla raunverulegar aðstæður, hvorki meira né minna.
Það má vel vera að hlaðið magasín teljist hlaðið skotvopn en ég held að 99% veiðimanna fari með fullt magasín í vasanum á veiðar og smelli svo í þegar þeir komast í færi eða hafi það jafnvel í riffli á veiðislóð en tómt (skotlaust) í hlaupi. Veit ekki um neinn sem myndi byrja á að hlaða magasín þegar dýr er í færi.Prófdómarinn gefur þér merki þegar tímatakan hefst og þá fyrst máttu setja skot í skotgeyminn á rifflinum. Ef um lausan skotgeymi er að ræða máttu ekki setja skot í hann fyrr en tímatakan hefst. Hlaðinn skotgeymir telst hlaðið skotvopn.
Ef skotprófið á að endurspegla raunveruleikann þá er þetta ferli ofar mínum skilningi.
Þar að auki mun létta hlaupið á mínum riffli hitna rækilega með 5 skot á 5 mín í þessu prófi enda tekur magasínið ekki nema 3 skot. Get ekki ímyndað mér neinar aðstæður heldur þar sem menn eru að dæla 5 skotum á hreindýrabráð á 5 mín. Myndi halda að menn hefðu 1 góðan séns til að fella, skot nr. 2 væri sennilega utan færis, nema að leiðsögumaður bregðist snöggt við.
Ég er ekki á móti prófinu en það á að spegla raunverulegar aðstæður, hvorki meira né minna.
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
Sveinn Aðalsteinsson
Re: Blessaða skotprófið.
Sæll, þú talar um raunveruleikann á hreindýraveiðum.
Tek það fram að ég hef ekki séð hreindýr skotið, og hef ekki skotið slíkt sjálfur en ég tel að ALLIR þeir sem fara á hreindýraveiðar hafi alveg nægan tíma til að setja skot í magasín og svo í riffilinn. Þú ert ekki heldur að henda þér í jörðina og skjóta á 20 sek.
Það þarf að pæla í öllum kringumstæðum og tel ég að menn gæfu sér nægan tíma til þess eins að velja dýrið sem á að skjóta, svo bakland og hvað sé á bakvið.
Persónulega finnst mér mjög óþægilegt að ganga um með skot í magasíninu, ÉG er öruggari með skotin í pakkanum og þar að leiðandi allir aðrir sem eru í nánd við mig.
ÖRYGGI allra á að vera í 1. sæti

- maggragg
- Skytta
- Posts: 1287
- Joined: 02 Jul 2010 07:59
- Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
- Location: Vík
- Contact:
Re: Blessaða skotprófið.
Ég sendi fyrirspurn um þetta atriði á UST og fekk svar við því. Þeirra túlkun er sú að þú getur tekið próf á eins marga riffla og þú vilt en verðu þá að taka prófið fyrir hvern og einn.Spíri wrote:Jæja, í dag fékk ég sent tölvubréf frá Umhverfisstofnun og var það um fyrirhugað skotpróf sem mér ber að standast áður en haldið skal til hreindýraveiða. Mér leikur forvitni á að vita hvort það sé leyfilegt að taka prófið á fleiri en einn riffil, hafði hugsað mér að taka tvo með mér austur og láta svo ráðast hvorn ég nota. Getur einhver svarað þessari vangaveltu minni?
E
Mér virðist prófið skiptast í tvo þætti, annarsvega hvort að menn hitta undir gefnum tíma og svo hvort að menn hafi kunnáttu til þess að meðhöndla vopnið. Það er hægt að falla á því einu saman að klikka á því að fylgja öryggisreglunum á prófinu. Með því að láta menn hlaða í magasínið sem hluta af prófinu er verið að kanna hvort að menn kunni að meðhöndla vopnið. Einnig er það væntanlega til þess að gæta jafnræðis milli þeirra sem eru með laus magasín og föst. Öll vandræði sem menn lenda í á þessum 5 mínutum, eins og að skot festist þegar verið er að hlaða láta tímann ekki stoppa og verða menn að bjarga sér. Þannig er einnig kannað hvort að menn séu með hæft vopn og skot til veiða og hafi nægjanlega kunnáttu. Þannig túlka ég þetta próf.Sveinn wrote:f skotprófið á að endurspegla raunveruleikann þá er þetta ferli ofar mínum skilningi.
Hinsvega tel ég nú að þetta ætti ekki að vefjast fyrir neinum hérna á spjallinu en er handviss um að handfylli manna munu falla á prófinu í fyrstu tilraun.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Re: Blessaða skotprófið.
Það verður spennandi að sjá hvernig prófin fara, ætli það verði gefin út einhver skýrsla um hvernig niðurstöður prófana í heild verða að hreindýra tímabilinu loknu, t.d. hvað margir náðu og hvað margir féllu og hvað þurfti margar tilraunir til að ná skotprófinu.
Ég veit að það er mælst fyrir því að menn æfi sig fyrir prófið, en ef einhver er það vitlaus að æfa sig ekkert, verður eitthvað takmark hvað hann má falla oft á prófinu á hverju ári?
Ég veit að það er mælst fyrir því að menn æfi sig fyrir prófið, en ef einhver er það vitlaus að æfa sig ekkert, verður eitthvað takmark hvað hann má falla oft á prófinu á hverju ári?
Kv. Árni Vigfús Magnússon
arni1980 (hjá) gmail.com
699 4569
arni1980 (hjá) gmail.com
699 4569
- maggragg
- Skytta
- Posts: 1287
- Joined: 02 Jul 2010 07:59
- Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
- Location: Vík
- Contact:
Re: Blessaða skotprófið.
Ef maður fellur í þriðja sinn þá fær maður ekki að fara á hreindýr það árið. Það er hægt að endurtaka prófið tvisvar. En já það væri spennandi að sjá reynsluna af þessum prófum og tölfræðina. Það er svolítið verið að stökkva í djúpu laugina með þetta, þetta er bæði með mjög stuttum fyrirvara og það er nýtt fyrir mönnum að þurfa að uppfylla ákveðnar kröfu til að fá að veiða.Padrone wrote: Ég veit að það er mælst fyrir því að menn æfi sig fyrir prófið, en ef einhver er það vitlaus að æfa sig ekkert, verður eitthvað takmark hvað hann má falla oft á prófinu á hverju ári?
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Re: Blessaða skotprófið.
En var eitthvað að hugsa þetta í fljótfærni, þá ætti að vera óþarfi að prófa menn í öryggismálum við skotvopn vegna þess að þeir þurfa að fara í gengnum þessa þætti í skotvopnaprófinu sjálfu, en að vísu ekki mikið prófaður verklegi þátturinn í þeim.
Kv. Árni Vigfús Magnússon
arni1980 (hjá) gmail.com
699 4569
arni1980 (hjá) gmail.com
699 4569
Re: Blessaða skotprófið.
Svo því sé haldið til bókar, þá er ég að mæla með fullhlöðnu magasínu í vasa, bolti læstur á tómt hólf. Sé ekki mun á því og skotum í pakka. Hafandi verið gordrengur og skytta á hreindýraveiðum þá veit ég að maður hefur hálfa til max 2 mín til að spá í bakland og bráð. Þá vill maður ekki spendera 1 mín í að föndra við að hlaða hólf eða magasín. Þú hefur max tvö skot, gædinn tekur það þriðja ef hann hefur færi. Ekki 5 skot á 5 mín. Magasín í vasa er málið.
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
Sveinn Aðalsteinsson
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Blessaða skotprófið.
Fór ásamt félaga mínum upp á skotsvæði Dreka í Fjarðabyggð að gera smá tilraunir.
Hann skaut 5 skotum úr 6,5-284 á 4 mínútum og riffillinn volgnaði varla!
Kíkirinn á rifflinum var ekki fínstilltur og mikil tvíbrá, til að öllu sé haldið til haga
Þetta voru að ég held 120 gr. soft pont kúlur kann ekki að nefna þær nánar, Gylfi það getur þú hins vegar, þú kannt þessa hleðslu.
Get ekki séð að þetta verði neitt vandamál vegna hita á rifflunum, þessi hleðsla er svo sem kannski ekki mjög heit hjá Gylfa

Last edited by Veiðimeistarinn on 05 Jun 2012 13:49, edited 1 time in total.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Blessaða skotprófið.
Vegna skrifa um raun aðstæður og slíkt þá er ég að spá í þessum öryggisreglum og er kannski líka með pínu derring hver veit
Ég ætla að skrifa athugasemdirnar fyrst og setja svo reglurnar fyrir neðan.
Er það réttur skilningur að eingöngu þeir sem hafa sjónauka á rifflinum þurfi að kíkja í hlaupið ?
Og þarf ég að finna skotmarkið í gegnum hlaupið ?
Hitt atriðið er að ef þú kemur með tómt magasín og ekki skot í riffli og opinn lás og set síðan þegar allt er klárt eitt skot í riffilinn og hleypi af. Tek svo skotið úr rifflinum. Hvers vegna í ósköpunum á ég samt að skoða magasínið aftur og kíkja í skothúsið og athuga hvort það hafi orðið kraftaverk og það sé skot í skothúsi eða magasíni?'
nema að það sé átt við að þegar skotprófi sé lokið þá eigi ég að athuga magasínið og skothúsið en ef ég hef fylgst rétt með þá fengi ég ekki að setja 5 skot í magasínið á skotvelli og skjóta þeim á skífuna er það ekki rétt ?
Öryggisreglur skotprófsins
Hægt er að falla á skotprófinu sé ekki farið nákvæmlega eftir öryggisreglum. Hluti af því er að ganga til og frá skotstað með óhlaðið skotvopn og þannig að lásinn sé opinn og/eða bolti tekinn úr og/eða ef um lamalás er að ræða á hann að vera opinn.
Ef um boltalás er að ræða tekurðu boltann úr rifflinum strax og þú byrjar að koma þér fyrir og setur hann ekki í fyrr en þú ert búinn að horfa í gegnum hlaupið og finna skotskífuna ef þú notar sjónauka.
Ef þú skiptir um skotstellingu eftir að próf hefst þarf lásinn að vera opinn.
Þegar þú ert búinn að skjóta áttu að kanna hvort skotgeymirinn og skothúsið séu tóm.
Þegar gengið er frá skotstaðnum á lásinn að vera opinn og/eða bolti tekinn úr og/eða ef um lamalás er að ræða á hann að vera opinn.
Riffilinn á ávallt að meðhöndla þannig að hlaupinu er aldrei beint í láréttri stefnu nema þegar því er beint að skotskífunum. Ef gengið er með riffilinn í láréttri stöðu telst prófið fallið.
Þú átt ávallt að meðhöndla skotvopnið á ábyrgan hátt og umgangast það eins og það væri hlaðið.
Meðhöndlunin á ávallt að vera þannig að prófdómarinn sé ekki í vafa um hvað þú ert að gera. Ef öryggisreglurnar eru ekki virtar telst prófið fallið óháð því hversu vel skotfimin sjálf gekk.

Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
- maggragg
- Skytta
- Posts: 1287
- Joined: 02 Jul 2010 07:59
- Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
- Location: Vík
- Contact:
Re: Blessaða skotprófið.
Við verðum að gefa þeim hjá UST smá séns, þetta er jú fyrsta prófið og allt með frekar stuttum fyrirvara.
Ég lít reyndar svo á að kíkja í gegnum hlaupið áður en maður byrjar að skjóta sé mjög góð öryggisregla. Maður veit aldrei hvort að sandur eða drulla hafi lent í hlaupinu og það er betra að kanna einusinni of oft heldur en einusinna of sjaldan.
Varðandi að kíkja í skotgeymin og skothús eftir að maður er búin að skjóta er regla sem að mínu mati er algjör skylda og aldrei hægt að framkvæma of oft. Ég hef gegnt herþjónustu og þetta gerði maður og gerir ennþá að í hvert skipti sem maður tekur upp vopn, leggur það frá sér, afhleður það, setur inn í skáp, tekur það út, tekur við vopni, réttir öðrum og við öll önnur tækifir þá kíkir maður í láshúsið og magasínið. Þetta er ekki hægt að gera nógu oft. Regla númer eitt er að öll vopn eru alltaf hlaðin. Punktur. Það mun alltaf koma að því að skot verði eftir í byssu þar sem það á ekki að vera.
Ég lít reyndar svo á að kíkja í gegnum hlaupið áður en maður byrjar að skjóta sé mjög góð öryggisregla. Maður veit aldrei hvort að sandur eða drulla hafi lent í hlaupinu og það er betra að kanna einusinni of oft heldur en einusinna of sjaldan.
Varðandi að kíkja í skotgeymin og skothús eftir að maður er búin að skjóta er regla sem að mínu mati er algjör skylda og aldrei hægt að framkvæma of oft. Ég hef gegnt herþjónustu og þetta gerði maður og gerir ennþá að í hvert skipti sem maður tekur upp vopn, leggur það frá sér, afhleður það, setur inn í skáp, tekur það út, tekur við vopni, réttir öðrum og við öll önnur tækifir þá kíkir maður í láshúsið og magasínið. Þetta er ekki hægt að gera nógu oft. Regla númer eitt er að öll vopn eru alltaf hlaðin. Punktur. Það mun alltaf koma að því að skot verði eftir í byssu þar sem það á ekki að vera.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Re: Blessaða skotprófið.
Þetta svaraði samt hvorugri spurninguni magnús og svo ég bæti einni fullyrðingu við þá mun ég ekki fást til að ganga frá skotstað að skífu og til baka með skothúsið opið með tilheyrandi áhættu á riki og drullu sem óumflýanlega er á brautini.Ég gæti sýnt prófdómara tómt hús og geymi og lokað svo og set riffilinn á bakið eða labbað með hann með mér og þegar til baka væri komið og menn komnir að skotstað þá að sjálfsögðu eins og á veiðum opnað boltan til að syna viðkomandi aðilum að eingin hætta stafaði af þessu skotvopni.Þegar á að sameina það að líkja eftir hreindýraveiðum en fara samt eftir ströngustu öryggisreglum skotvalla verður útkoman tómt rugl að mínu mati,
Ég bara spyr er nokkur sem hefur farið til hreindýraveið sem opnar boltan og er með hann opinn meðan hann labbar að hreindýrinu þessa 80-200 metra ?
Hvað varðar UST þá hafa þeir tekið þann pólinn að hunsa fyrirspurnina frá mér og ýtrekunina líka þar sem ég óskaði eftir rökstuðninginum og nú er bara að bíða og sjá hvort þeir hunsi ekki líka Skotvís.
Ég get því miður ekki gefið stofnun séns sem hefur alla og ég endurtek alla burði til að vanda til verks og senda svo út beinagrind af prófinu til skotfélaga og Skotvís og fá umsögn sníða af því gallana og setja svo reglugerðina út frá því.
Það hættulegasta í þessu er að þetta klífur menn í tvær fylkingar held ég.
Þú ert nú alveg búin að sjá línuna mína í þessu.
Stutta útgáfan.
Ég skil vel skotfélög sem eru eða hafa verið að byggja upp góðar aðstöður að þær hafi félagsgjöld og svo X brautargjald fyrir félagsmenn og x gjald fyrir utanfélgsmenn. Bara sanngjarnt.
Ég var jákvæður yfir þessu prófi og yfir höfuð jákvæður gagnvart skotfélögum líka en það er að snarbreytast hjá mér.
Afhverju ?
1: UST ákveður að hunsa að rökstyðja gjaldið og þá frá mínum bæjardyrum séð er ekki hægt að réttlæta það og það orðið ólögleg gjaldaka samkvæmt þeirra eigin reglu
2.Skotfélögin hafa tekið þessu fegins hendi og þakka pent fyrir þessa nýju fjáröflunarleið í skjóli þess að verið sé að gera menn hæfari á hreindýr.
Það er að mínu mati að verða aukahlutur. Skotfélögin eru að kynna svæðin sín og öryggisreglur.
Í alvöru aðsæðum eru þetta öryggisreglurnar !Ekki skot í skotgeymi fyrr en þú ætlar að skjóta, byssu ekki í lágréttri stöðu fyrr en henni er beint á það sem á að skjóta.Athugaðu hlaupið ef þu hrasaðir eða ef minnsti grunur gæti verið að hlaupið hafi snert jörð.
3. Skotfélagsmaður snérist gegn Skotvís eftir að skotvís benti á að Lögreglustjórar gætu framkvæmt prófið og hvernig Skotvís túlkaði gjaldtökuna.Með því var línan lögð fyrir mig og beið ég eftir svari UST til að móta endanlega skoðun mína á þessu prófi og tilgangi þess.
4.Lögreglustjóri úti í móa er líklega nær raun aðstæðum heldur en skotvellirnir þó hann muni fylgja þessum reglum öllum.Og bjóða svo próftökunum upp á pizzu og kók í sjoppuni til að uppfylla kostnaðarliðinn.
5. Pappírspési í UST á bara yfir höfuð ekkert með það að setja reglur og reglugerðir sem hann hefur ekki hundsvit á PUNKTUR
En svo það sé á hreinu þá er ég ekki að vega að Magnúsi eða nokkrum öðrum einstaklingum því allir hér inni eru að mér sýnist virkilega gott fólk.
En mín skoðun getur veist að skotfélögonum sem slíkt og það er annað mál.

Ég svaraði ekki fyrstu spurningunni, enda um tvíræða setningu hjá UST að ræða en maður túlkar hana nokkuð létt. Varðandi að kíkja í láshúsið þá stend ég á því sem ég sagði. Ég vorkenni engum að kíkja í láshúsið eftir hvert skot, það er bara þannig.
Það kemur hvergi fram að prófið eigi að líka eftir hreindýraveiðum og menn eru að pirrast yfir prófinu af því að menn gefa sér að það eigi að líkja eftir hreindýraveiðum. Það á einungis að kanna hæfni manna til að fara með skotvopn og fylgja öryggisreglum þannig að það á ekki að bera saman það sem menn gera á veiðum og svo á skotvelli í prófinu.
Menn eru reknir af svæðinu ef menn labba um með byssu með lokaðan lás. Það er einfalt. Hvort sem menn stunda skeet, eða hvað annað er boltinn ávalt opinn, hvort sem menn eru á skotlínu eða annarstaðar þar til skytta er komin í stöðu og það tengist því ekki á nokkurn hátt hvort að menn geri það á hreindýri eða ekki. Þetta er skotsvæði og þar er boltinn alltaf opinn. Það er nú ekki mikil hætta af því að það komi ryk í lásinn ef þessu 200 metra labbi, og ef riffillinn þolir það ekki þá myndi ég ekki treysta honum á veiðar
Það kemur mér reyndar á óvart að UST skuli ekki hafa svarað þér eins og þeim er skylt. Ef þú færð ekki svar frá þeim innan þess frests sem gefinn er í stjórnsýslulögum geturðu ítrekað beiðni þína og svo jafnvel kært ef þeir synja þér um svar. Þeir eiga að geta rökstutt verðið, enda kveður reglugerðin á um að gjaldið verði að vera hægt að rökstyðja.
En það mátti búast við því að menn yrðu ekki sammála með þetta. Það sem að mínu mati var stærsti gallinn er sá að þetta var of seint. Verðið átti að vera klárt áður en menn sóttu um hreindýr svo að menn vissu að hverju menn gengu. Framkvæmd prófsins á líka án efa eftir að þróast og pússast til þegar reynsla kemur á þetta og jafnframt getur ráðherra endurskoðað reglugerðina ef hann telur þess þörf.

Það kemur hvergi fram að prófið eigi að líka eftir hreindýraveiðum og menn eru að pirrast yfir prófinu af því að menn gefa sér að það eigi að líkja eftir hreindýraveiðum. Það á einungis að kanna hæfni manna til að fara með skotvopn og fylgja öryggisreglum þannig að það á ekki að bera saman það sem menn gera á veiðum og svo á skotvelli í prófinu. Kann ekki almennilega þetta að vitna í svo ég copyaði bara.
Þú fyrirgefur en var ekki meðferð skotvopna kend og tekið skotvopnapróf til að kanna hæfni manna með skotvopn og ef þeir stóðust það þá fengu menn skýrteini sem heitir í daglegu tali byssuleyfi.
Annað er það ekki rétt orðalag frá UST að þetta próf er til þess gert að mínka líkur á særðum dýrum á veiðislóð og gera menn hæfari til hreindýraveiða ? Og er það ekki nákvæmlega það sem ég á við að líkja eftir hreindýraveiðum ?
Og á skotsvæðum þá rölta menn ekki mikið um með rifflana þeir skilja þá eftir á borðum eða settir í tösku ekki satt ?
Og svona að lokum eina þróunin í þessum prófum verður hækkandi próftökugjald því miður og mögulega að skilda menn í að vera í skotfélagi.
Og hvað UST varar þá synja þeir mér ekki heldur bara svara ekki og ég læt skotvís um lagaflækjur.
En nú er nóg sagt og ég leyfi mönnum bara að meta þetta frá eigin sjónarhorni.Og móta sýnar eigin skoðanir.

Varðandi þetta blessaða skotpróf..
mitt inlegg í umræðuna;
Það er nokkuð ljóst að það þarf að sníða einhverja vankanta af því hvernig prófið er uppbyggt í þetta fyrsta skipti. Við, sem fórum í þetta námskeið, sem ég kalla svo, áttum með Einari Guðmanni, ágætt spjall , um tilhögun, og fyrirkomulag prófanna. Ég man ekki betur en Einar hafi sagt okkur að vankantarnir væru til staðar, og þeir yrðu sniðnir af, ef þurfa þætti. Hlýtur að koma í ljós þegar prófin eru afstaðin. Mér finnst að við eigum að gefa UST tíma og ráðrúm til að fara yfir alla þættina. Auðvitað er það þannig að það verða ekki allir ánægðir, en með tímanum ætti að vera hægt að koma til móts við alla. Það er nokkuð ljóst að prófið sem slíkt á alveg rétt á sér. Ansi margir sem hafa ekki gert sér grein fyrir því út í hvað þeir eru að fara, þegar farið er á veiðar í fyrsta skipti. Hef sjálfur séð ýmislegt á þessum veiðum, og hvað skyldu blessaðir leiðsögumennirnir þá hafa séð í sínum mýmörgu ferðum. Nýliðar, sem oft á tíðum eru með lánsriffil, og þekkja hann lítið, er ekki óalgengt, og ýmislegt fleira mætti telja upp, sem ég tíunda ekki. Síðan má ekki gleyma því að menn eru ekki alltaf afslappaðir þegar búið er að brölta í Austfirsku ölpunum, til að komast í skotfæri. þá er dælan líka alveg á fullu, og talsvert erfiðara að miða á réttan stað. Varðandi skotprófið sjálft, þá finnst mér hæpið að fella skyttuna, ef hún td klúðrar einu skoti út fyrir hringinn.
Það þarf ekki að vera að sú skytta sé óhæf, því mistök geta alltaf skeð. Ég tel mig talsvert vana riffilskyttu, en ég skaut afar illa í þessu prófi, þó svo ég hafi klankast í gegn.
Um öryggisþáttinn, þá finnst mér hann ekki síður mikilvægur, og tel eðlilegra að fella próftakann fyrir það að beina hlaupinu að.. ja.. til dæmis prófdómaranum, eða öðrum á svæðinu.
Því segi ég: Sýnum UST þolinmæði til að útfæra þetta próf þannig að það henti flestum eða öllum.
Annars var gaman að sjá gamla Jaloneninn minn þarna á myndunum fyrir ofan.
Hleðslan í hann ef kúlurnar voru með linum oddi er:
Nosler Partition 125 grs.
Púður: MRP
Hleðsla 54,5 grs.
Primer cci.
Skaut þessum Nosler kúlum alltaf mjög vel.
Var líka með 123 grs Lapua scenar og við hana 53,7 grs af MRP.
En þar sem komið er nýtt hlaup á riffilinn þarna, þá held ég að það hljóti að hafi verið dálítið erfitt að loka á þessi hylki sem ég hlóð fyrir nokkrum árum.. í gamla hlaupið, og allt neck sæsað

Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
- Aflabrestur
- Posts: 490
- Joined: 25 Feb 2012 08:01
- Location: Sauðárkrókur
Re: Blessaða skotprófið.
Sælir
Ég helda að það sé alveg sama hvað verður, Steini er komin í krossferð gegn skotfélögunum sem hann heldur verkfæri djöfulsins og UST sem hann telur handbendi þeirra beggja, bíð bara eftir því að sjá hann með heykvísl og kindil við tækjifæri.

kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Re: Blessaða skotprófið.
Þetta er því miður satt hjá þér minn kæri Jón þó ekki mæti ég með kyndil né kvísl
Stærðstu skotfélögin komu mjög snemma að borðinu um þetta próf. Og á bak við borðið sat fyrverandi formaður skotfélags Akureyrar til margra ára! Og á endanum sat Skotvísmaður sem hefur þá ósk heitasta að koma öllum veiðikortshöfum í skotfélag.Þarna er hinn gullni þríhyrningur skotfélagana í hnotskurn og af þessu ættu allir alvöru veiðimenn að hafa áhyggjur án þess að fara nánar út í það hér ég er að ræða það á öðrum vettvangi.
Þríhyrningur er víst eitt það sterkasta form sem til er svo mér dettur ekki í hug að ráðast beint á þríhyrning heldur þarf annað til þess.Og það verður ekki gert á spjallþráðum.
svo minn kæri Jón svo ég taki mér þín orð í munn sem voru.
Sem betur fer var ég ekki búin að borga í Skotvís þá eru mín orð þessi.
Ég borgaði í Skotvís en sé til hvort ég segi mig úr Skotvís í haust ef mér sýnist mínum hagsmunum betur varið utan þeirra það leiðir tíminn í ljós.
Að þessu sögðu þá hef ég sagt allt sem ég kæri mig um að segja opinberlega um þetta mál.
En svo ég sendi skotið þitt um kyndil og kvísl til baka þá vil ég mynna á gamlan málshátt sem er enn í fullu gildi.
Margur verður af aurum api