Skotpróf vegna hreindýraveiða
Nú fer að líða að því að SKAUST fari [/code]að taka einstaklinga á skotpróf vegna hreindýraveiða. Samkvæmt upplýsingum frá UST verður námskeið fyrir prófdómara SKAUST haldið miðvikudaginn 6. Júní. Reiknað er með að við hefjumst handa um helgina, enda ekki seinna vænna þar sem prófunum þarf að vera lokið 1. Júlí. Við munum auglýsa fyrirkomulagið betur á vefnum okkar þegar nær dregur. Hægt er að beina öllum fyrirspurnum á bjarni@skaust.net og við munum reyna að svara eftir bestu getu.
Samkvæmt breytingu á lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og spendýrum og reglugerð 424/2012 er veiðimönnum hreindýra og leiðsögumönnum þeirra skylt að standast verklegt skotpróf áður en haldið er til hreindýraveiða. Leiðsögumenn með hreindýraveiðum eru einnig inní þessum prófum svo það fari ekki á milli mála. Samkvæmt upplýsingum frá UST eru um 165 veiðimenn skráðir á veiðar á austurlandi og þá eru eftirlitsmenn ótaldir. Það er því ljóst að það verður smá hasar að koma þessum einstaklingum í gegn og okkur hlakkar bara að til að taka á móti ykkur.
Helstu atriði sem hafa ber í huga fyrir prófið.
Æfingin skapar meistarann, það verður seint of oft endurtekið og það er mjög mikilvægt fyrir veiðimenn að vera búnir að æfa sig áður en haldið er í prófið og til veiða yfirleitt. Fyrir prófið er hægt að nota æfingaskífuna frá UST sem hægt er að prenta út.
Hafa með sér 4.500 krónur sem er prófgjaldið.
Athuga hvort skotvopnaleyfið sé í gildi og hafa það meðferðis. Kannað er hvort riffillinn og raðnúmer hans sé tilgreint í skotvopnaleyfinu. Ef hinsvegar um lánsvopn er að ræða þarf að framvísa lánsheimild sem er í gildi. Einungis má halda til veiða með þeim riffli. Reglur um lánsheimildir er að finna í 36. gr. reglugerðar 787/1998.
Hafa með persónuskilríki.
Takið lífinu með ró og kynnið ykkur vel efnið og mætið vel undirbúin.
Nánar áhttp://skaust.net
Fyrir hönd prófdómara SKAUST Bjarni Þór Haraldsson
SKAUST - Skotpróf vegna hreindýraveiða
SKAUST - Skotpróf vegna hreindýraveiða
Bjarni Þór Haraldsson
Dalskógum 5b
700 Egilsstaðir
Dalskógum 5b
700 Egilsstaðir