Komið þið sælir félagar,
Gott að heyra að Sakoinn hafi reynst vel, þetta var eðal riffill
Jú ég var meðvitaður um þetta með láslengdina, það er alveg rétt að til að fá lás sem passar best fyrir kaliberið væri best að fá XS-Sako lás. Tikkan hefur sama lásinn og þar er nóg að skipta um boltann ef á að fara milli kalibera. Svona í hreinskilni langar mig ekkert í Remington lás ....
Málið er bara að ég ætlaði að setja þetta ofaní KKC skepti og eins og er eru bara til skepti fyrir Tikku lás, þannig að.... en auðvitað væri Sako lásinn heppilegri
Ef ég rekst á girnilega Tikku læt ég kannski vaða
Annars er ég með aðila úti sem getur skaffað nýja Sako lása, komplett með gikkverki og magasíni ef menn hefðu áhuga. Það eru Sako AII, Sako 75 og 85.
veiðikveðja,
Ágúst Bjarki