Fyrir þá sem þekkja Oehler Chronogaphin eða hraðamælinn vita að hann var ekki lengur fáanlegur en þetta er einn nákvæmasti hraðamælirinn sem almenningur hefur getað átt. Núna eru þeir hjá Oehler farnir að framleiða þennan þekkta og vinsæla hraðamæli aftur. Þessi mælir tekur tvær mælingar í hverju skoti en hann er með þrjá skynjara meðan flestir mælar á almennum markaði hafa bara tvo. Hraðamælirinn kemur með prentara og er í tösku. Verðmiðinn er rétt undir 600$