Hleðslutölur

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
marin
Posts: 72
Joined: 17 May 2012 04:42

Hleðslutölur

Unread post by marin »

Sælir.
Er að velta fyrir mér,hvar finn ég hleðslutölur um t.d hvaða púður ég get notað með hornady 130 gr sst, hornady hleðslubókin gefur upp viht n-160. Get ég þá ekk notað N-560?, Sumir segja að það sé betra púður?
Kveðja.
Árni Kristinsson
Fjallabyggð
marin
Posts: 72
Joined: 17 May 2012 04:42

Re: Hleðslutölur

Unread post by marin »

Sælir, gleymdi að nefna að þetta er í 270 cal.
Kveðja.
Árni Kristinsson
Fjallabyggð
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Hleðslutölur

Unread post by gylfisig »

Ég myndi prófa N- 165.
Byrja í 58 grs og fara upp í MAX 60 grs.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Hleðslutölur

Unread post by konnari »

já eða 55.5 - 58.0 af N-160
Kv. Ingvar Kristjánsson
User avatar
GBF
Posts: 31
Joined: 25 Apr 2012 19:57

Re: Hleðslutölur

Unread post by GBF »

Ekki taka mark á Gylfa ! Hann hefur aldrei átt 270, og svo er hann Húsvíkingur að auki.

Að öllu gamni slepptu þá var ég ekki hrifinn af N-165 með 130gr kúlum.
Hinsvegar gefur N-160 góða ákomu með Norma 130gr SP kúlum (ekki fáanlegar lengur) og NBT 130gr í mínum 270.
Mér finnst N-560 almennt gefa skemmtilegustu ákomuna í þessu kaliberi.

kveðja,
Georg B. Friðriksson
Post Reply