sælir þar sem ég hef pínu verið á neikvæðu nótunum undanfarið vil ég bara þakka öllum umburðarlyndið og að hafa virt skoðanir mínar og vona ég að ég geti launað það til baka með sömu virðingu fyrir ykkar skoðunum
En að öðru og þessvegna setti ég þetta hér undir þennan flokk
Ég hef verið í mikilli hreinsun ásamt öðrum góðum manni hér við að fækka sílamáv og svartbak og gengið bara nokkuð vel að mér finnst og nú er ég hér á Blönduósi og það er sama hvert ég lít.
Alstaðar eru litlir dúnhnoðrar sem heita gæsarungar og mjög fáir fljúgandi afræningar að hrella þá
Stórir laxar að veiðast í Blöndu og hef séð 3 rjúpur á hreiðrum innan bæjarmarka í örygginu hér.
Góðar stundir
Þeir eru flottir veiðimennirnir sem gera eitthvað á móti til að þakka fyrir sig Eins og að fækka vargi en ég tek hattin ofan fyrir þér með þetta. Ég var einmitt að ræða við félaga minn áðan um að gera eitthvað í þessum máva málum hér hjá okkur en það er orðið of mikið af honum. Vona að ég geti gert eitthvað í því. Hef einnig verið með minkagildrur og tekið nokkra. Það þýðir að nokkrir tugir anda hafa komist á legg. Ég vildi sjá fleirri veiðimenn stunda eitthvað svona. Ekki bara taka heldur gefa eitthvað líka
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546 "Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
já Magnús fínt að æfa sig svona úti á sjó búinn að komast að því td að 36gr skotin frá fiocchi drepa svartbakinn auðveldlega á 45-60m á meðan eley 42 á sama færi hrista fuglana bara og það þarf 2-3 skot á þá er reyndar ekki sá allra hittnasti en allt að koma aftur hjá mér hehe og svo eftir að maður fer aftur á sjó þá þarf ég að testa betur skotin frá hull var með 32gr stál frá þeim sem voru að koma slatti vel út tek með annan pakka til að bera saman við hlað og fiocchi
Lifa til að veiða, veiða til að lifa, það er lífið..